Morgunblaðið - 05.01.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 05.01.2017, Síða 25
Morgunblaðið/Ómar Jólaball Flest jólatré enda í Sorpu. Þrettándinn er á morgun og vænt- anlega margir farnir að huga að því að taka niður skraut, seríur og jólatré. Íbúar Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðar eru þeir einu á höfuð- borgarsvæðinu sem þurfa sjálfir að koma jólatrjám sínum til eyðingar; annars staðar á höfuðborgarsvæðinu eru trén fjarlægð á vegum sveitar- félaganna. Þetta fyrirkomulag hefur verið við lýði í Reykjavík undanfarin ár en nokkuð hefur verið um það að íþróttafélög hafi boðið upp á að fjar- lægja jólatré gegn gjaldi í fjáröfl- unarskyni. Þá er hægt að losa sig við jólatré á endurvinnslustöðvum Sorpu án þess að greiða fyrir það. Byrjaðir í Kópavogi Þetta er í fyrsta skiptið sem íbúar Hafnarfjarðar þurfa sjálfir að koma jólatrjám sínum í endurvinnslu og að sögn Ásdísar Ármannsdóttur, upp- lýsingafulltrúa Hafnarfjarðarbæjar, var þetta fyrirkomulag ákveðið af umhverfis- og framkvæmdaráði bæjarins í október og snýst fyrst og fremst um forgangsröðun verkefna. Byrjað var að fjarlægja jólatré íbúa Kópavogs í gær, þeim að kostn- aðarlausu, og verður það gert til 10. janúar. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu þar í bæ þurfa að setja trén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið. Í Garðabæ sér Hjálparsveit skáta um að hirða trén í öllum hverfum bæjar- ins og verður það gert á sunnudag- inn, 8. janúar. Í Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ munu starfsmenn fara um dagana eftir þrettándann og hirða þau tré sem komið hefur verið fyrir fyrir utan lóðamörk. annalilja@mbl.is Sumir sækja jólatrén, aðrir ekki  Mismunandi á höfuðborgarsvæðinu FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is Grundvöllur er að myndast fyrir frekari lækkanir á gjaldskrám Orkuveitunnar, segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi, sem sit- ur í stjórn fyrirtækisins. „Það er ekkert því til fyrirstöðu, það þarf bara að samþykkja lækkun ef það skapast skilyrði til þess. Þegar skuldir fyrirtækisins hafa lækkað niður í ákveðið hlutfall þá finnst mér sjálfsagt að lækka gjöldin og skila til baka því sem var velt yfir á notendur,“ sagði Kjartan í samtali við Morg- unblaðið. Hann sagði að hug- myndin hefði ver- ið rædd á stjórnarfundum en það sé spurn- ing um réttan tíma og sennilega yrði það ekki á þessu ári. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar hefðu aukið tekjur fyrirtækisins um rúma tíu milljarða króna. Tekjuaukinn var hluti af að- gerðaáætlun í fjármálum Orkuveit- unnar, sem hefur skilað um 58,3 milljörðum, rúmum átta milljörðum umfram markmiðið. Um áramótin lækkuðu því gjöld fyrir raforku- dreifingu og kalt vatn hjá Veitum, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, þar sem veituþjónustan lýtur lög- um um hámarksarðsemi. „Við er- um að nýta uppsafnaðan skattaaf- slátt vegna tapára til fulls og skuldirnar lækka jafnt og þétt. Nú þegar planinu lýkur þá skapast að mínu mati skilyrði til að lækka gjöldin,“ sagði Kjartan. Heita vatnið hækkar Sparnaður í rekstrinum gerði fyrirtækinu kleift að lækka gjald- skrá rafmagnsdreifingar um 5,8 prósent en rafveita Veitna þjónar Reykjavík, Akranesi, Mosfellsbæ, Kópavogi og meirihluta Garða- bæjar. Gjaldskrá vatnsveitnanna lækkar um allt að 11,2 prósent en miklar fjárfestingar í fráveitum og hitaveitum leyfa ekki lækkun á þeim gjaldskrám, að því er kemur fram í tilkynningu frá Orkuveit- unni. Heita vatnið hækkaði um 0,48 prósent í takt við vísitölu neysluverðs. Betri fjárhagsstaða OR gefur góðar vonir  Lækkun skulda skapar skilyrði fyrir frekari lækkanir á gjaldskrá  Tekjuauki umfram væntingar Kjartan Magnússon 6 vikna námskeið fyrir konur og karla Hefst 9. janúar EPOC (eftirbruni) EPOC stendur fyrir eftirbruna (Excess Post-Exercise Oxygen Consumption). HIIT (High Intensity Interval Training) er afar áhrifarík leið til að koma í veg fyrir stöðnun. Hjól, stöðvaþjálfun, lyftingar o.m.fl., ávallt með áherslu á snöggálag, þ.e. stuttar álagslotur með hléum. Engir tveir tímar eins. Alhliða formbætandi æfingar með tilheyrandi átökum og svita. EPOC er fyrir konur og karla sem vilja fjölbreytt og kröftugt æfingakerfi þar sem tekið er hraustlega á í stuttum lotum. Nánari upplýsingar og skráning á hreyfing.is Álfheimar 74 - Reykjavík - S: 414-4000 - www.hreyfing.is Matvælastofnun hefur fengið upp- lýsingar frá Innnesi ehf. um inn- köllun. Um er að ræða eina lotu af sveppum sem er innkölluð vegna gruns um listeríu. Neytendum sem keypt hafa vör- una er bent á að neyta hennar ekki og skila vörunni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun. Varan ber vöruheitið Enoki mushroom en um er að ræða hvíta granna enoki- sveppi. Strikanúmer vörunnar er 8713021310103. Listeria í Enoki- sveppum frá Innnesi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.