Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 27
í níu vikur og þá ákvað ég að hætta,
fannst þetta orðið ágætt,“ segir Dóra.
Hún var þó ekki alveg hætt á þessum
togurum því hún tók tvo afleysinga-
túra síðasta sumar og þá skaust Árni
Gunnarsson með í för til að filma um
borð. „Okkur var vel tekið og ég fann
að áhöfnin hafði saknað mín úr eld-
húsinu, sem var ánægjulegt að finna
eftir brösuga byrjun þarna í fyrstu.“
Fjölskylda hennar er sem fyrr seg-
ir aftur flutt á Höfn, búin að kaupa
sér þar hús en er þó með annan fótinn
í Reykjavík þar sem tvær elstu dæt-
urnar stunda nám.
Líður vel á sjónum
Dóra útilokar það ekkert að fara
aftur á sjóinn, þó að það sé ekki beint
á stefnuskránni. Frekar stefnir hún
að því að klára íslenskunámið við Há-
skólann og „finna sér einhverja full-
orðinsvinnu“ eins og ein vinkona
hennar orðaði það, sem fannst sjó-
mannsbrölt Dóru orðið ágætt.
„Kennsla kæmi alveg til greina eða
einhver þægileg innivinna. Það er
heldur ekkert hlaupið að því lengur
að fá pláss á fiskiskipum, margir um
hituna ef eitthvað losnar. Það er mikil
breyting frá því sem var hér áður
fyrr. Annars líður mér vel á sjó og ég
gæti alveg hugsað mér það áfram, þó
ekki í löngum túrum. Maður verður
dálítið skrítinn á því,“ segir Dóra að
endingu og hlær.
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
„Konur eru að verða æ sjaldséðari í
áhöfnum skipa almennt og rann-
sóknir sýna að um og yfir 90% sjó-
manna eru karlkyns. Við fylgdum
Dóru eftir hér heima og á Græn-
landsmiðum og reynum að gefa ein-
læga og sannfærandi innsýn í líf
hennar og starf sem sjókonu. Ég er
mjög þakklátur fyrir samvinnuna
við hana, fjölskyldu hennar og
áhöfnina sem reri með henni. Við
erum sátt við útkomuna og vonandi
hafa áhorfendur gagn og gaman af
því að skyggnast inn í þennan sjald-
séða heim.“
Þetta segir Árni Gunnarsson hjá
Skottu Film, sem er leikstjóri heim-
ildarmyndarinnar um Dóru og ann-
ar handritshöfunda ásamt Steffí
Thors, klippara myndarinnar.
Mögulega sýnd á RÚV
Árni segir myndina hafa verið í
vinnslu í tæp tvö ár en aðdragand-
inn sé að vísu nokkuð lengri.
Myndin er 52 mínútur að lengd
og ráðgjafi við gerð hennar var
Martin Schlüter. Spurður hvort
myndin verði mögulega sýnd á
RÚV segir Árni skriflegt vilyrði
liggja fyrir um kaup, „með hefð-
bundnum fyrirvara um að þeim lít-
ist á hana og efni hennar“. Árni sá
um kvikmyndatöku ásamt Árna
Rúnari Hrólfssyni. Um tónlistina
sáu Helgi Svavar Helgason og Þor-
steinn Einarsson, báðir úr hljóm-
sveitinni Hjálmum. Friðjón Jónsson
sá um hljóðvinnsluna.
Árni og Skotta Film hafa áður
unnið nokkrar heimildarmyndir,
m.a. Kraftur - Síðasti spretturinn,
sem tilnefnd var til Edduverðlauna,
Búðin – Þar sem tíminn stendur í
stað, Í Austurdal og Laufskálarétt.
Um borð Árni Gunnarsson kvik-
myndagerðarmaður að störfum.
Þakklátur fyrir samvinnuna við Dóru
Árni Gunnarsson er leikstjóri og annar handritshöfunda
Heimildarmyndin Dóra - Ein af
strákunum var „heims-
frumsýnd“ samtímis á Höfn í
Hornafirði og Sauðárkróki á
gamlársdag. Stefnt er að því að
sýna myndina á kvikmynda-
hátíðum hér á landi og erlendis.
Myndin var styrkt af Kvik-
myndamiðstöð Íslands, iðn-
aðarráðuneytinu, sjávarútvegs-
ráðuneytinu og Menningarsjóði
Kaupfélags Skagfirðinga.
Sýnd heima
og erlendis
DÓRA - EIN AF STRÁKUNUM
Ljósmynd/Kontor Reykjavík
búningseldhús verður áfram í kjall-
aranum.
Öll efri hæðin verður endurnýjuð,
gólf og loft og ný húsgögn verða
keypt. Settur verður upp langur bar
sem er bæði eldhús og drykkjarbar.
Arkitektarnir Ingibjörg Jóns-
dóttir og Davíð Pitt hanna staðinn en
þau teiknuðu einnig endurbætur á
Jómfrúnni, sem voru framkvæmdar í
fyrra.
Á sólardögum á sumrin er vinsælt
að sitja framan við Café París. Þar
verða húsgögn endurnýjuð með
marmaraborðum og frönskum
stólum. „Þetta verður eins og að sitja
á kaffihúsi í París,“ segir Jakob
Einar.
Morgunblaðið/Eggert
Café París Veitingahúsið fær and-
litslyftingu, bæði innanhúss og utan.