Morgunblaðið - 05.01.2017, Síða 30

Morgunblaðið - 05.01.2017, Síða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Þrettándinn er á morgun, 6. jan- úar. Lengi vel var hann mikill hátíðisdagur þegar jólin voru kvödd með viðhöfn. Eitthvað hefur dregið úr tilstandinu við að kveðja jólin en enn eru þó haldnar álfa- brennur á þessum degi, farið í blysgöngur, flugeldum skotið upp og eitthvað er um þrettándaveislur og gleðskap þó mikið hafi dregið úr því miðað við það sem áður var, að sögn Jóns Jónssonar, þjóðfræðings og verkefnastjóra Rannsóknaset- urs Háskóla Íslands á Ströndum – Þjóðfræðistofu. „Það er helst í kringum flugeld- ana sem haldið er upp á þrett- ándann nú, menn skjóta aðeins upp og kveðja jólin þannig. Þrett- ándabrennum er mikið að fækka og heyra víða sögunni til nema það takist ekki að brenna á gamlárs- kvöld. Það er líka enn til siðs að taka jólaskreytingar niður á þrett- ándanum en það er samt að aukast að fólk taki þær niður strax eftir áramót. Þá er nokkuð um það á þrettándanum að menn komi sam- an og spili en það er enn mjög mik- ið spilað á heimilum yfir jólin,“ seg- ir Jón. Jólin voru spiluð út Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson kemur fram að á þrett- ándanum, síðasta degi jóla, hafi oftast verið nokkuð um dýrðir og það borið fram sem eftir var af jólamat og drykk. Þá segir að þetta hafi líka verið síðasta mikla spila- kvöldið yfir jólahátíðina og var á öllu landinu talað um að spila jólin út. Haldnar hafi verið brennur og menn hafi kveikt á þeim kerta- stubbum sem eftir voru og hét hvorttveggja að brenna jólin út. „Eitt sinn voru heilmikil hátíðar- höld á þrettándanum og sérstök þjóðtrú sem hvíldi á þessum degi,“ segir Jón. „Öll landamæri á milli tímabila, eins og nýársnótt, þrett- ándanótt og jónsmessan, voru stórhátíðir í þjóðtrúnni, þá áttu að gerast allskonar undur; huldufólk var á ferli og kýrnar fengu manna- mál. Jólin eru flutningstími vættanna, þeir færa sig um set og tröll koma til byggða til að fá sér mannkjöt til hátíðabrigða. Það var hægt að lenda í hverju sem er á þessum jóladögum ef maður var á ferli. Síðasti jólasveinninn fer heim á þrettándanum og þá er búið þetta tímabil sem er varasamt og hættu- legt að vera á ferli í svartasta skammdeginu. Þá eru allir vættir búnir að finna sér ný heimkynni og komið á ró og næði. Það gat enginn átt von á að rekast á jólasvein eftir þrettándann, en fyrr á öldum voru þeir stórhættuleg kvikindi og fóru ekki að mýkjast fyrr en þeir urðu frá áhrifum af þeim ameríska,“ segir Jón. Hann spáir því að þrettándinn muni halda sér áfram að einhverju leyti sem síðasti dagur jóla en sið- venjur og aðrar hefðir í kringum daginn líklega hverfa alveg í fyll- ingu tímans. Samkvæmt spám mun viðra ágætlega til hátíðarhalda annað kvöld, en spáð er hlýnandi veðri og vaxandi sunnanátt með slyddu eða rigningu vestantil. Þrettándahátíðarhöld hverfandi  Helst haldið upp á þrettándann nú með flugeldum  Var áður nokkuð um dýrðir og mikið um þjóðtrú  Þótti varasamt að vera á ferli yfir jólahátíðina  Komið á ró og næði í heimi vætta eftir þrettándann Morgunblaðið/Golli Jólin búin Álfadrottningar á þrettándabrennu Hauka á Ásvöllum fyrir nokkrum árum. Haukar halda þrett- ándagleði á Ásvöllum annað kvöld, þangað mæta meðal annars álfar, púkar, tröll og jólasveinar.  Þrettándabrennur í Reykjavík verða þrjár. Í Vesturbænum hefst blysganga við Melaskóla kl. 18 og að brennu við Ægisíðu sem hefst kl. 18.30. Í Grafarvogi verður þrettánda- gleði við Gufunesbæ, farin verður blysför frá Hlöðunni kl. 17.55 og hefst brenna kl. 18. Í Grafarholti verður gengið frá Guðríðarkirkju um kl. 19 inn í Leirdal þar sem kveikt verður í brennu.  Á Selfossi fer blysför frá Tryggva- skála kl. 20 að brennustæði við Gest- hús.  Á Akranesi hefst blysför við Þorp- ið að Þjóðbraut kl. 18. Álfar, tröll og jólasveinar munu leiða gönguna að brennunni.  Í Borgarnesi verður þrettándagleði í Englendingavík og hefst hún kl. 20.  Á Ásvöllum í Hafnarfirði hefst þrettándagleði kl. 18 og lýkur með flugeldasýningu kl. 19. Á svæðið mæta álfar, púkar og tröll og jóla- sveinar.  Í Reykjanesbæ hefst ganga kl. 18 frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8.  Á Akureyri verður þrettándagleði Þórs haldin á bílaplaninu við Hamar kl. 18. Þrettándagleði í þéttbýli FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ GLERAUGNAÞJÓNUSTA Á LEIÐ ÞINNI TIL ÚTLANDA SJÓNMÆLINGAR ERU OKKAR FAG Smáralind • 528 8500 – Hafnargötu, Keflavík • 421 3811 Verslaðu á hagstæðara verði í gleraugnaverslun okkar á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð SJÓNGLER FRÁ HOYA Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ • 425 0500
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.