Morgunblaðið - 05.01.2017, Side 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Til Færeyja &
Danmerkur 2017
Bókaðu
núna og
tryggður
þér pláss
Færeyjar
Tveir fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . . . . . . . .kr. 34.500
Danmörk
Tveir fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . . . . . . .kr. 74.500
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík · Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 · info@smyril-line.is · www.smyrilline.is
Viljum við benda þeim sem hyggja á ferð með
okkur að bóka sem fyrst meðan ennþá er hægt
að finna pláss.
Bæklingurinn okkar fyrir 2017 er komin út og í
honum finnur þú frábær tilboð og verð.
Bæklinginn má nálgast á www smyrilline.is
Enn er unnið að því að afla fjár til
smíði göngubrúar yfir Markarfljót
til móts við Húsadal í Þórsmörk.
Hönnun brúarinnar er lokið og er
hún byggð á verðlaunatillögu Eflu
verkfræðistofu og Studio Granda frá
árinu 2014. Ekki er minnst á fram-
kvæmdina í fjárlögum ársins 2017,
að því er fram kemur í frétt á heima-
síðu Skógræktarinnar.
Fram hefur komið í fréttum að
búið sé að tryggja alls 84 milljónir
króna til verksins. Hins vegar er
heildarkostnaður við undirbúning og
byggingu brúarinnar áætlaður um
220 milljónir kr. og er þá ekki gert
ráð fyrir kostnaði vegna vegabóta
inn að brúarstæðinu.
Margvísleg þörf er fyrir göngubrú
á þessum stað af ýmsum ástæðum.
Krossá er mikill farartálmi á leiðinni
í Húsadal en með göngubrú yfir
Markarfljót yrði auðvelt að ganga
eða hjóla yfir í Þórsmörkina og fólk
yrði ekki háð öflugum fjallabílum til
ferðalagsins, segir í frétt
Skógræktarinnar.
Brúin verður 158 metra löng
hengibrú og brúargólfið sverir stál-
kaplar klæddir með timbri, sem
meiningin er að verði íslenskt sitka-
greni. Hegðun brúarinnar í vindi
hefur verið rannsökuð í vindgöngum
hjá fyrirtækinu Force Technology í
Kaupmannahöfn með líkani í
stærðarhlutföllunum 1 á móti 12.
Halli brúargólfsins verður mestur
8%, sem er innan þeirra marka sem
sett eru um viðunandi aðgengi fyrir
hjólastóla. Að brúargerðinni standa
Vinir Þórsmerkur í samvinnu við
Vegagerðina. sisi@mbl.is
Hönnun brúarinnar lokið
Reynt að afla fjár til smíði göngubrúar yfir Markarfljót
Tölvuteikning/Vegagerðin
Göngubrúin Hún er hönnuð þannig að hún taki sem minnstan vind á sig.
Tryggingafélög geta ekki leitað
sameiginlegan í gagnagrunn líkt og
tryggingafélög á Norðurlöndunum
og víðar geta gert þegar kemur að
því að tengja saman einstaklinga
sem stunda
tryggingasvik.
Sveinn Fjalar
Ágústsson,
deildarstjóri
ábyrgðar- og
slysatjóna hjá
VÍS, telur þó að
vátryggingasvik
séu tiltölulega
sjaldgæf á Ís-
landi, en umfang
þeirra hefur ekki
verið rannsakað í langan tíma. „Auð-
vitað er eitthvað hulið sem fer
framhjá okkur en tilfinning okkar er
sú að þetta sé ekki hátt hlutfall af
kúnnahópi okkar,“ segir Sveinn.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að tveir menn voru dæmdir fyrir vá-
tryggingasvik í Héraðsdómi Reykja-
víkur. Í dómnum segir að mennirnir
hafi sviðsett árekstur og skilað inn
tjónaskýrslu í því skyni að fá tjónið
bætt.
Ekki vitað um umfangið hér
Samkvæmt breskri rannsókn frá
árinu 2010 er hlutfall vátrygg-
ingasvika þar í landi 10-15%. Ekki
hefur verið framkvæmd sambærileg
rannsókn á Íslandi frá árinu 2003
þegar niðurstaða samnorrænnar
rannsóknar var sú að svikin væru á
bilinu 5-10% en áætlað var þá að tal-
an væri enn lægri á Íslandi.
„Við vitum ekki um umfangið en
erum vakandi fyrir því þegar tjón er
tilkynnt að atvikum sé lýst á réttan
hátt. Tryggingasvik geta líka verið
falskar upplýsingar þegar verið er
að kaupa tryggingu og fleira,“ segir
Sveinn Fjalar.
Hann segir að ekki sé horft til
einnar tegundar tjóna umfram önn-
ur þegar kemur að trygginga-
svikum. „Við skoðum reglulega mál
en alla jafna eru skýringar á þeim.
Þetta getur þó verið allt frá því að
hafna greiðslu vegna tjóns yfir í það
að hafna tjóni og kæra til lögreglu,“
segir hann. vidar@mbl.is
Engin
gögn um
svikara
Sveinn Fjalar
Ágústsson
Telur trygginga-
svik sjaldgæf
Arnarlax áformar að hefja laxeldi í
sjókvíum í Ísafjarðardjúpi á næsta
ári. Í þeim tilgangi hefur fyrirtækið
lagt fram tillögu að matsáætlun
vegna mats á umhverfisáhrifum
stöðvarinnar sem framleiða mun 10
þúsund tonn á ári, með aðstöðu í
Bolungarvík. Þar verður laxinum
slátrað og pakkað til flutnings á
markað erlendis. Allir geta gert at-
hugasemdir en þeim ber að skila til
Skipulagsstofnunar fyrir 20. jan.
Áforma stórfellt lax-
eldi í Ísafjarðardjúpi