Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Baðaðu þig í gæðunum
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mogginn og blaðburðurinn hafa í
um það bil tuttugu ár ár verið sam-
eiginlegt verkefni fjölskyldunnar.
Við hjónin sinnum þessu með krökk-
unum okkar sem eru alls átta. Í
þessu starfi hafa þau lært að vinna og
fengið vasapening,“ segir Heiðar
Bergur Jónsson í Hafnarfirði. Alls
eru um 20 ár síðan þau Heiðar og
Þorbjörg Sandra Sveinsdóttir kona
hans tóku að sér blaðburð í Kinna-
hverfinu í Firðinum og nokkrum göt-
um þar nærliggjandi. Á aldreifing-
ardögum þarf að setja blaðið í nærri
500 lúgur en nokkru færri þegar að-
eins áskrifendur fá blaðið.
Klukkan fimm á morgnana
Elstur átta barna Heiðars og Þor-
bjargar Söndru er Hjalti Snær sem
er fæddur árið 1981. Hann greip í út-
burðinn á fyrstu Morgunblaðsárum
fjölskyldunnar og það hafa systkini
hans gert, hvert á eftir öðru. „Sunna
Lind er skráð fyrir hverfi núna en
yngstur er Jón Víðir sem er tólf ára.
Hann tekur sjálfsagt við á næstu
misserum,“ segir Heiðar.
Það er um klukkan fimm á morgn-
ana sem fjölskyldan í Fögrukinn fer
úr húsi. „Við hjónin förum oftast
saman, skiptum hverfinu á milli okk-
ar og þetta sport tekur yfirleitt um
klukkustund. Já, það er notalegt og
hressandi að taka þennan göngutúr
snemma dags. Koma frískur heim
um klukkan sex og hálftíma seinna
þarf ég að vera mættur í vinnu. Þetta
hefur gengið vel í vetur, veður verið
milt og hlýtt og hálkudagar með
mannbroddum eru aðeins tveir,“ seg-
ir Heiðar sem er bílstjóri hjá Slátur-
félagi Suðurlands. Sér meðal annars
um að keyra í verslanir og vagna
pylsurnar góðu sem oft eru sagðar
þjóðarréttur Íslendinga, rétt eins og
Mogginn er blað allra landsmanna.
Helstu fréttir dagsins
„Morgunblaðið er alltaf með helstu
fréttir dagsins. Ég byrja lesturinn
yfirleitt á íþróttunum og renni síðan
yfir helstu fréttasíðurnar. Í vinnunni
getur maður því oft bryddað upp á
umræðum og haft þann formála að
þetta hafi staðið í Mogganum. Svo er
ég kominn á þann aldur að þurfa
nauðsynlega að fylgjast með dánar-
fréttum og minningargreinum.
Raunar er æði margt í blaðinu sem
þú verður að vita og mátt ekki missa
af,“ segir Heiðar í Hafnarfirði að síð-
ustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Moggamaðurinn Heiðar Bergur flettir blaði dagsins. Árin í útburðinum eru
orðin um tuttugu og bréfalúgurnar í Kinnahverfinu eru alls um 500.
Blaðberinn frískur
eftir göngutúrinn
Nýliðið ár var eitt það hlýjasta síðan
mælingar hófust árið 1845, eins og
fram hefur komið í fréttum.
Nýliðinn desember lagði sitt af
mörkum til þess, eins og fram kemur
í yfirliti yfir mánuðinn sem Trausti
Jónsson veðurfræðingur hefur birt á
vef Veðurstofunnar.
Tíð var lengst af hagstæð og sam-
göngur greiðar nema fáeina daga
undir lok mánaðar, segir Trausti.
Óvenjuhlýtt var í veðri og um
austanvert landið var mánuðurinn
sums staðar sá hlýjasti frá upphafi
mælinga og í hópi þeirra hlýjustu um
land allt. Úrkomusamt var og
dimmt. Ekki var mikið um illviðri að
undanskildum fáeinum hvössum
dögum undir lok mánaðarins og urðu
þá nokkrar samgöngutruflanir. Þá
kólnaði nokkuð og var snjór á jörðu
um allt land að kalla yfir jólahátíð-
ina. Þann snjó tók þó fljótt upp aftur.
Að tiltölu var hlýjast norðaustan-
lands, 4,5 stigum ofan meðallags síð-
ustu tíu ára í Möðrudal. Kaldast að
tiltölu var undir Eyjafjöllum, þar
sem hiti var innan við tveimur stig-
um ofan meðallags sömu ára. Það
telst til tíðinda að á Teigarhorni í
Berufirði var desember sá hlýjasti í
þau 144 ár sem mælt hefur verið.
Sömu sögu er að segja af Dalatanga,
en þar hefur verið mælt í 78 ár, og á
Egilsstöðum, þar sem hitinn hefur
verið mældur í 62 ár.
Úrkoma var víðast hvar meiri en í
meðallagi. Úrkoman í Reykjavík
mældist 146,7 millimetrar, tæpum
90% umfram meðallag og sú mesta í
desember síðan 2007. Sólskins-
stundir í Reykjavík mældust aðeins
3,2 – níu færri en í meðaldesember
og hafa ekki mælst svo fáar í desem-
ber síðan 2004. sisi@mbl.is
Hitamet féllu
víða á Austurlandi
Úrkoma í Reykja-
vík 90% yfir meðal-
lagi í desember
Morgunblaðið/Eggert
Höfuðborgin Vegfarendur þurftu
oft að bregða regnhlífum á loft.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Þetta er draumadagbókin fyrir upp-
teknar húsmæður,“ segir María
Katrín Ármann, fjögurra barna móð-
ir og hárgreiðslunemi í Neskaupstað.
Hún og Brynja Gunnarsdóttir, vin-
kona hennar og nágranni, sem er
þriggja barna móðir, hönnuðu Lífs-
stílsdagbókina 2017 sem kom nýver-
ið út og ætti að henta þeim vel sem
ætla að huga að heilsunni á nýju ári.
María Katrín og Brynja voru í
námi í margmiðlunarhönnun við
Borgarholtsskóla í fyrra og var loka-
verkefnið á vorönninni að fá hug-
mynd að bók, vinna hana og gera
klára fyrir prentun. Þær fengu hug-
mynd að lífsstílsdagbók og komu
henni á koppinn.
Vildu hafa allt á einum stað
„Við vorum báðar í lífsstílsáskor-
uninni Sterkar stelpur og stundum
mikla hreyfingu. Í ræktinni eru fljót-
andi A4-blöð úti um allt með æfinga-
prógrömmum. Í áskoruninni áttu all-
ir líka að vera með stílabók til að
skrifa niður prógrammið sitt og hug-
myndin að dagbókinni kviknaði út
frá því; að vera með allt á einum stað
frekar en á mörgum blöðum,“ segir
María Katrín.
„Dagbókin er uppsett þannig að
hver mánuður byrjar á klassísku
mánaðarplani, það er hægt að setja
niður markmið fyrir mánuðinn og
skrá niður mælingar á líkamanum og
þyngd. Í byrjun hverrar viku er
hægt að skrifa niður matseðil fyrir
vikuna, markmið og svo er smá dálk-
ur þar sem hægt er að skrá niður
andlega heilsu. Við töluðum við
hjúkrunarfræðing og létum nokkrar
stelpur prófa dagbókina og meðal
annars fengum við ábendingu frá
einni sem keppir í fitness um þennan
dálk, en það er oft erfitt andlega.
Hver dagur er svo þannig að það er
hægt að setja inn æfingarplanið og
matseðil dagsins, allar máltíðir og
skráðar kaloríur, þá er tímatafla til
að punkta niður fundi og viðburði
yfir daginn.“
Hugmyndin með Lífsstílsdagbók-
inni er aðhald og yfirsýn, að sögn
Maríu Katrínar, að geta skráð allt
niður sem viðkemur hreyfingu,
mataræði, heilsu og daglegu lífi á
einum stað. Vissulega sé hægt að
vera með forrit í símanum sem gegni
svipuðu hlutverki en með bókinni sé
hægt að halda þessu saman á einfald-
ari hátt auk þess sem flestir noti sím-
ana sína til að hlusta á tónlist í rækt-
inni. „Mér sýnist á öllu að fólk haldi
enn dagbækur. Það eru mjög margar
gerðir af dagbókum í boði núna, sér-
staklega eru vinsælar sérhæfðar
dagbækur sem nýtast fyrir eitthvað
ákveðið,“ segir María Katrín.
María Katrín og Brynja létu fyrst
prenta 200 eintök af bókinni í lok
október og seldust þau strax upp.
Fleiri eintök komu rétt fyrir jól og
eru til í takmörkuðu upplagi hjá Fit-
ness Sport. Eins og staðan er núna
lítur allt út fyrir að dagbókin muni að
fara í framleiðslu um hver áramót
eftirleiðis.
Skelltu sér í skóla
Eins og áður segir er María Katrín
starfandi hárgreiðslunemi og lýkur
hún náminu í vor en Brynja er
sjúkraliði. Þær ákváðu að skella sér í
margmiðlunarhönnun í Borgar-
holtsskóla í fyrra þegar tímamót
voru í lífi þeirra beggja.
„Það frestaðist hjá mér að klára
hárgreiðsluna og Brynja datt á leið-
inni í ræktina og fékk brjósklos og
gat ekki stundað vinnuna sína, þann-
ig að við vorum báðar á stað þar sem
við vissum ekki alveg hvað við áttum
að fara að gera og fórum því í þetta
nám. Við erum báðar mjög virkar í
ræktinni og það er mikil heilsuefling
hér í Neskaupstað svo að Lífsstíls-
dagbókin var kannski eðlileg afurð
úr því námi,“ segir María Katrín.
Stóðu á tímamótum
Lífsstílsdagbók Brynja Gunnarsdóttir og María Katrín Ármann.
Fóru í nám og hönnuðu lífsstílsdagbók sem hentar upp-
teknum húsmæðrum Með allt á einum stað í ræktinni