Morgunblaðið - 05.01.2017, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRVísindi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
Loftpressa 205 L/mín
Afkastar 205 L/mín, 25L Kútur
heldur 8 Bar þrýsting.
RT MS423
19.990
Verð
Loftslöngur gúmmí 6mm 10m
Stærð 6mm x 10m, kemur með tengjum.
Til í fleiri stærðum
Framleidd á Ítalíu
GAV 3050/1
Loftbyssa fyrir dekk
Vönduð loftbyssa frá GAV.
Þrýstingur 0 ÷12 BAR.
GAV NYCA G
3.990
Verð
3.990
Verð
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tími var nokkuð sem doktorsneminn
Stephen Hawking átti ekki að hafa,
þegar hann greindist með blandaða
hreyfitaugahrörnun, sem einnig er
þekkt sem ALS, árið 1963. Hann var
þá 21 árs og spáðu læknar því að
Hawking yrði örendur innan tveggja
ára. Raunin varð þó önnur. Hawking
er nú þekktasti núlifandi eðlisfræð-
ingurinn og mun hann að óbreyttu
fagna 75 ára afmæli sínu á sunnudag-
inn kemur.
Latur við námið
Stephen William Hawking fæddist
hinn 8. janúar 1942, sonur læknis-
hjónanna Frank og Isobel Hawking.
Fjölskyldan hlúði vel að námi sonar-
ins þrátt fyrir þröngan efnahag, en
Hawking hefur oft sagt að hann hafi
verið latur við nám framan af ævi
sinni. Hann sýndi þó snemma getu og
áhuga á stærðfræði og hugðist leggja
hana fyrir sig þegar tíminn kom að
háskólanámi.
Frank vildi að sonur sinn færi í
University College í Oxford eins og
hann sjálfur hafði gert, og hvatti
Stephen til þess að verða læknir, þar
sem fá störf væru fyrir stærðfræð-
inga. Hawking fylgdi vilja föður síns
að hálfu, hann samþykkti að fara í
University College, en í staðinn fyrir
læknisnám brá hann sér í eðlis- og
efnafræði.
Hawking leiddist í Oxford. Honum
fannst námið of auðvelt og hann var
yngri en flestir hinna. Hawking gerði
sér sérstakt far um að falla í hópinn
og tók meðal annars þátt í róðrar-
keppnum innan skólans. Allt var það á
kostnað námsins. Námsletin kom
honum þó í koll að lokum, og ljóst var
að hann myndi þurfa að útskrifast
með fyrstu einkunn til þess að komast
í draumanám sitt í heimsfræði við
Cambridge.
Hann svaf illa aðfaranótt loka-
prófsins og útkoman var á mörkum
fyrstu og annarrar einkunnar. Hawk-
ing neyddist því til að þreyta munn-
legt próf til þess að skera úr um það
hvoru megin hryggjar hann ætti að
lenda. Hawking óttaðist að hann hefði
á sér óorð meðal kennaranna fyrir
leti, þannig að þegar hann var spurð-
ur um framtíðaráætlanir sínar sagði
hann: „Fái ég fyrstu einkunn fer ég til
Cambridge, en ef þið gefið mér aðra
verð ég hér áfram. Ég geri því fast-
lega ráð fyrir að þið munið gefa mér
fyrstu einkunn.“ Hvort sem það var
vegna þess að kennararnir vildu ólmir
losna við hann eða ekki varð Hawking
að ósk sinni.
Sjúkdómurinn kemur fram
En ský dró brátt fyrir sólu. Á loka-
ári sínu í Oxford hafði Hawking orðið
var við skerta hreyfigetu og aukinn
klaufaskap. Sjúkdómurinn ágerðist
uns að lokum Hawking leitaði til
lækna árið 1963, eins og fyrr var getið,
og greindist með hreyfitaugahömlun.
Greiningin var Hawking mikið
áfall. Hann lagðist í þunglyndi og sá
enga ástæðu til þess að leggja sig
fram við námið, þar sem hann yrði að
öllum líkindum ekki langlífur. Leið-
beinandi hans, Dennis William
Schiama, sannfærði hann hins vegar
um að snúa aftur til starfa.
Hreyfitaugahrörnun Hawkings
ágerðist með árunum en andláts-
spár læknanna reyndust rangar.
Undir lok sjöunda áratugarins var
Hawking þó kominn í rafmagns-
hjólastól eftir að hafa gengið lengi á
hækjum, eftir mikið japl, jaml og
fuður. Hann fékk fljótlega á sig orð í
Cambridge fyrir að vera mikill öku-
þór, og máttu nemendur jafnt sem
samkennarar vara sig þegar Hawk-
ing var á ferð.
Á sama tíma varð erfiðara og erfið-
ara að skilja Hawking, og þurfti túlk
til þess að flytja fyrirlestra hans. Eftir
að Hawking fékk alvarlega lungna-
bólgu um miðjan níunda áratuginn
neyddust læknar til þess að gera rauf
á barka hans, og missti Hawking þá
málið algjörlega. Til þess að bæta upp
fyrir það fékk Hawking sérstakt
tölvuforrit, „Equalizer“, árið 1986,
sem gerir honum kleift að tjá sig með
hjálp sérstakrar tölvuraddar. Hin
nýja „rödd“ Hawkings talaði með
skrýtnum hreim og hrynjanda en var
þó mikil framför fyrir Hawking. Fyrir
vikið hefur hann neitað að „skipta
um“ rödd, jafnvel þó að honum hafi
staðið það til boða. Má segja að hin
sérstæða tölvurödd Hawkings sé orð-
in hluti af „vörumerki“ hans meðal al-
mennings.
Áhrifum Hawkings á eðlisfræðina
hefur verið líkt við þau sem Isaac
Newton og Albert Einstein höfðu á
sínum tíma, enda gegndi Hawking á
sínum tíma sömu prófessorsstöðu við
Cambridge og Newton gerði forðum.
Helsta framlag Hawkings var að
sanna það að Miklihvellur hefði átt sér
stað fyrir um 14 milljörðum ára, auk
þess sem eftir hann liggur mikið af
fræðum um svarthol, tilvist þeirra og
eðli. Hawking hefur sett fram kenn-
ingar um að svarthol gefi frá sér geisl-
un, sem aftur leiði til þess að líftími
þeirra sé takmarkaður.
Hawking er þó ekki óumdeildur eða
óskeikull, og átti hann til dæmis í rit-
deilu um margra ára skeið um tilvist
Higgs-bóseindarinnar, sem Hawking
sagði að væri ekki til, og myndi því
ekki finnast. Önnur varð þó raunin,
þar sem bóseindin fannst árið 2012.
Saga tímans færð í letur
Hawking er þó líklega þekktastur
fyrir framlag sitt til þess að gera vís-
indi og heimsfræði aðgengileg al-
menningi. Árið 1988 skrifaði Hawking
bókina A Brief History of Time, sem
þýdd hefur verið á íslensku sem Saga
tímans. Í bókinni reyndi hann að út-
skýra á aðgengilegan hátt upphaf al-
heimsins og sögu hans, allt frá Mikla-
hvelli.
Bókin varð fljótt að vinsælustu vís-
indabók sem gefin hefur verið út. Hún
gerði Hawking umsvifalaust að
heimsþekktum einstaklingi og hefur
hann síðan birst í fjölda sjónvarps-
þátta, þar á meðal Star Trek, Simp-
sons og The Big Bang Theory, ávallt
sem hann sjálfur.
Hawking er tvískilinn, en samband
hans við Jane, fyrri konu hans, var
efniviður kvikmyndarinnar The
Theory of Everything, sem kom út í
hitteðfyrra. Saman áttu þau þrjú
börn, Robert, Lucy og Timothy.
Árin tvö sem Hawking voru gefin
árið 1963, eru nú orðin að fimmtíu og
fjórum. Á þeim tíma hefur hann gert
meira en flestir aðrir til þess að
breyta skilningi okkar á alheiminum
og því hvert leið mannkynsins liggur,
en Hawking hefur varað við því að
mannkynið gæti tortímt sér á næstu
hundrað árum og að helst þurfi að
bregðast við núna, hvort sem litið er
til gróðurhúsaáhrifa, kjarnorkuvopna,
eða hættunnar af gervigreind. Enginn
veit enda betur en hann að tíminn
fram undan er dýrmætur.
Maðurinn sem sigraði tímann
Eðlisfræðingurinn Stephen Hawking fagnar 75 ára afmæli sínu á sunnudaginn Greindist með
blandaða hreyfitaugahrörnun árið 1963 Hefur reynt að gera vísindi auðskiljanleg fyrir leikmenn
AFP
Á fundi með páfa Stephen Hawking hitti Frans páfa í nóvember síðastliðnum. Hawking er ekki trúaður en ritaði í
Sögu tímans að með því að uppgötva það sem lægi á bak við Stóra hvell yrði hægt að skyggnast í þankagang Guðs.
Fjársöfnun til styrktar Færeyingum
vegna eignatjóns, sem varð í Fær-
eyjum í óveðri í lok nýliðins árs,
heldur áfram, en ákvörðun um lok
hennar verður tekin í vikulok.
Utanríkisráðuneytið greindi frá
því í byrjun árs að Poul Michelsen,
utanríkisráðherra Færeyja, hefði af-
þakkað aðstoð frá Íslandi, þar sem
tjónið væri að mestu leyti tryggt.
Hann segir í samtali við færeyska
netmiðilinn in.no að stjórnvöld í
Færeyjum geti ekki tekið á móti
styrk frá íslenskum almenningi og
deilt honum til þeirra sem á þurfa að
halda, en þau séu ekki mótfallin söfn-
uninni og vilji aðstoða við að koma
fénu í réttar hendur.
Rakel Sigurgeirsdóttir, einn af að-
standendum söfnunarinnar, segir að
haft hafi verið samband við fær-
eysku ræðismannsskrifstofuna áður
en söfnuninni var hrundið af stað og
haft verði samráð við Færeyinga um
framhaldið.
Hópurinn sem stendur að söfnun-
inni hitti ræðismann Færeyja hér á
landi á fundi í gær, en nú hafa safn-
ast um fjórar milljónir króna (söfn-
unarreikningurinn í Sparisjóði
Strandamanna er 1161 26 006000
170961-7819).
Söfnunarhópurinn Færeyingar og Íslendingar eru frændur. Gísli Gíslason,
Valdís Steinarsdóttir, Rakel Sigurgeirsdóttir og Orri Vigfússon.
Halda áfram söfn-
un fyrir Færeyinga
Hafa safnað um fjórum millj. króna