Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 49
49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 Svifið yfir Dyrhólaey Fuglar breiða út vængina á flugi yfir brimi við Dyrhólaey í Mýrdal. Í Dyrhóley og dröngunum úti fyrir henni er mikið varp og sjófuglar halda sig þar einnig á veturna. RAX Nýlega var gefinn út fyrsti heildstæði rammasamningurinn sem kveður á um þá þjónustu sem hjúkr- unar- og dvalarheimili landsins eiga að veita, samkvæmt sam- komulagi Sjúkratrygg- inga Íslands, Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) þar um. Hingað til hafa flest hjúkrunarheim- ili verið rekin fyrir daggjöld sem rík- ið hefur lagt til án samninga, í mörg- um tilfellum áratugum saman og í engu samræmi við þá verðlagsþróun sem verið hefur á hverjum tíma. Samningurinn markar því ákveðin tímamót fyrir bæði þá sem veita þjónustuna og ekki síður notendur þjónustunnar. Með samningnum er ætlunin að styrkja grunnstoðir þjón- ustu hjúkrunarheimila með það að markmiði að tryggja íbúum ein- staklingsmiðaða, heildræna og örugga þjónustu. Einnig er samn- ingnum ætlað að auka gegnsæi og samræmi í greiðslum fyrir veitta þjónustu. Samtök fyrirtækja í velferðar- þjónustu eru hagsmunasamtök sjálf- stætt starfandi aðila sem ekki eru í eigu ríkisins og starfa á heilbrigðis- sviði samkvæmt þjónustusamn- ingum eða öðrum tengdum opinber- um greiðslum, til dæmis dag- gjöldum. Innan SFV eru nærri fimmtíu aðilar; fyrirtæki, félagasam- tök og sjálfseignarstofnanir, þar á meðal langflest hjúkrunarheimili landsins. Opinberar greiðslur til að- ila í SFV nema um 20% af heildar- útgjöldum ríkisins til heilbrigðis- mála á ári. Umfangið varpar því ekki síst ljósi á mikilvægi þeirrar vel- ferðarþjónustu sem hinir sjálfstætt starfandi aðilar í SFV veita innan ís- lenska heilbrigðiskerfisins, enda er nýi samningurinn sem undirritaður hefur verið sá stærsti sem Sjúkra- tryggingar Íslands hafa gert. Aðild að samningnum eiga hjúkrunar- heimili um land allt sem hafa yfir að ráða um 2.500 hjúkrunar- og dvalar- rýmum. Samkvæmt samningnum munu árlegar greiðslur úr ríkissjóði nema tæplega 30 milljörðum króna á ári. Að mati SFV hefur ríkisvaldinu alla tíð borið rík skylda til að gera skýr- an samning um þá þjónustu sem aðilum í SVF hefur verið gert að veita fyrir hönd hins opinbera, enda verið að ráðstafa fé úr vösum al- mennings. Það er því fagnaðarefni að hinn nýi samningur skuli nú loks hafa tekið gildi. Enda þótt mörg áherslumála hjúkrunarheimilanna hafi ekki náð fram að ganga telja SVF að áfanga- sigur hafi náðst á ýmsum sviðum sem réttlætt hafi gerð samningsins að þessu sinni. Í viðræðunum var mikið rætt um mönnun á hjúkrunar- heimilum og hvaða viðmið skyldi leggja til grundvallar í þeim efnum. Skjal sem ber heitið „Viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum skil- greind“ og gefið er út af Landlækn- isembættinu var fyrirferðarmikið í samræðum aðila, hvaða þýðingu við- miðin þar hefðu í raun og hvaða skyldur þau legðu á hjúkrunarheim- ilin. Ástæða umræðunnar var auð- vitað sú staðreynd að fjármagnið sem ríkið greiðir í dag og hefur greitt í gegnum tíðina dugir engan veginn til að uppfylla þær skyldur sem viðmið landlæknis gera til þjón- ustu hjúkrunarheimilanna. Í stuttu máli má segja að fulltrúar ríkis- valdsins hafi ekki verið tilbúnir að greiða hjúkrunarheimilunum þá upphæð sem dugir til að uppfylla kröfurnar og er það mjög miður. Það er þó einlæg ósk SFV að úr þessu verði bætt sem allra fyrst. Sé litið til jákvæðustu hliða samn- ingsins má nefna að svokölluð kröfu- lýsing er lykilatriði samningsins. Hún er í raun skjal með upptalningu á lágmarkskröfum sem hið opinbera gerir til þess aðila sem tekur að sér rekstur þjónustunnar og um þá þjónustu sem veita skal. Kröfulýs- ingunum sem slíkum ber mjög að fagna enda mikilvægt að öll þjónusta sé vel skilgreind. Kröfulýsingarnar auka gegnsæi og tryggja sem kostur er að helstu hagsmunaðilar, ekki síst notendur þjónustunnar og aðstand- endur þeirra, starfsfólk og rekstrar- aðilar, átti sig betur á hvaða þjón- ustu nákvæmlega er verið að gera kröfu um, en ekki síður hvaða þjón- ustu ekki er farið fram á. Kröfulýsingar er oftast hægt að kostnaðargreina og með þeim má meðal annars gera greinarmun á draumsýnum (til dæmis stjórnmála- manna) og raunhæfum væntingum með hliðsjón af því fjármagni sem ríkisvaldið er tilbúið að setja í mála- flokkinn. Rekstraraðilar heilbrigð- isþjónustu sitja stundum undir því ámæli að þykja lítt hæfir til verka þegar þeir eru einmitt að fara að lög- um, reglugerðum og kjarasamn- ingum sem gera að verkum að ómögulegt er að standast ætlaðar fjárheimildir. Auðvitað á að gera rík- ar kröfur til rekstraraðila í heil- brigðisþjónustu um hagkvæmni, skýra áætlunargerð og markvissa eftirfylgni eins og í öllum öðrum ábyrgum rekstri. Það verður því að liggja fyrir í upphafi að úthlutað fjármagn dugi fyrir þeirri þjónustu sem ríkið vill kaupa með þeim rétt- indum og skyldum sem því kunna að fylgja. Það er í allra þágu. Von okkar hjá Samtökum fyrirtækja í vel- ferðarþjónustu er því að hinn nýi rammasamningur um starfsemi dvalar- og hjúkrunarheimila og kröfulýsingin sem honum fylgir verði öldruðum og öldrunarþjónustu til hagsbóta í samfélagi okkar til framtíðar. Nýr rammasamningur skýrir hlutverk og skyldur öldrunarstofnana Eftir Pétur Magnússon og Björn Bjarka Þorsteinsson » Samkvæmt samn- ingnum munu árleg- ar greiðslur úr ríkissjóði nema tæplega 30 milljörðum króna á ári. Pétur Magnússon Höfundar eru formaður og varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Björn Bjarki Þorsteinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.