Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 49
49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Svifið yfir Dyrhólaey Fuglar breiða út vængina á flugi yfir brimi við Dyrhólaey í Mýrdal. Í Dyrhóley og dröngunum úti fyrir henni er mikið varp og sjófuglar halda sig þar einnig á veturna.
RAX
Nýlega var gefinn út
fyrsti heildstæði
rammasamningurinn
sem kveður á um þá
þjónustu sem hjúkr-
unar- og dvalarheimili
landsins eiga að veita,
samkvæmt sam-
komulagi Sjúkratrygg-
inga Íslands, Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja
í velferðarþjónustu (SFV) þar um.
Hingað til hafa flest hjúkrunarheim-
ili verið rekin fyrir daggjöld sem rík-
ið hefur lagt til án samninga, í mörg-
um tilfellum áratugum saman og í
engu samræmi við þá verðlagsþróun
sem verið hefur á hverjum tíma.
Samningurinn markar því ákveðin
tímamót fyrir bæði þá sem veita
þjónustuna og ekki síður notendur
þjónustunnar. Með samningnum er
ætlunin að styrkja grunnstoðir þjón-
ustu hjúkrunarheimila með það að
markmiði að tryggja íbúum ein-
staklingsmiðaða, heildræna og
örugga þjónustu. Einnig er samn-
ingnum ætlað að auka gegnsæi og
samræmi í greiðslum fyrir veitta
þjónustu.
Samtök fyrirtækja í velferðar-
þjónustu eru hagsmunasamtök sjálf-
stætt starfandi aðila sem ekki eru í
eigu ríkisins og starfa á heilbrigðis-
sviði samkvæmt þjónustusamn-
ingum eða öðrum tengdum opinber-
um greiðslum, til dæmis dag-
gjöldum. Innan SFV eru nærri
fimmtíu aðilar; fyrirtæki, félagasam-
tök og sjálfseignarstofnanir, þar á
meðal langflest hjúkrunarheimili
landsins. Opinberar greiðslur til að-
ila í SFV nema um 20% af heildar-
útgjöldum ríkisins til heilbrigðis-
mála á ári. Umfangið varpar því ekki
síst ljósi á mikilvægi þeirrar vel-
ferðarþjónustu sem hinir sjálfstætt
starfandi aðilar í SFV veita innan ís-
lenska heilbrigðiskerfisins, enda er
nýi samningurinn sem undirritaður
hefur verið sá stærsti sem Sjúkra-
tryggingar Íslands hafa gert. Aðild
að samningnum eiga hjúkrunar-
heimili um land allt sem hafa yfir að
ráða um 2.500 hjúkrunar- og dvalar-
rýmum.
Samkvæmt samningnum munu
árlegar greiðslur úr ríkissjóði nema
tæplega 30 milljörðum króna á ári.
Að mati SFV hefur ríkisvaldinu alla
tíð borið rík skylda til að gera skýr-
an samning um þá þjónustu sem
aðilum í SVF hefur verið gert að
veita fyrir hönd hins opinbera, enda
verið að ráðstafa fé úr vösum al-
mennings. Það er því fagnaðarefni
að hinn nýi samningur skuli nú loks
hafa tekið gildi.
Enda þótt mörg áherslumála
hjúkrunarheimilanna hafi ekki náð
fram að ganga telja SVF að áfanga-
sigur hafi náðst á ýmsum sviðum
sem réttlætt hafi gerð samningsins
að þessu sinni. Í viðræðunum var
mikið rætt um mönnun á hjúkrunar-
heimilum og hvaða viðmið skyldi
leggja til grundvallar í þeim efnum.
Skjal sem ber heitið „Viðmið um
mönnun á hjúkrunarheimilum skil-
greind“ og gefið er út af Landlækn-
isembættinu var fyrirferðarmikið í
samræðum aðila, hvaða þýðingu við-
miðin þar hefðu í raun og hvaða
skyldur þau legðu á hjúkrunarheim-
ilin. Ástæða umræðunnar var auð-
vitað sú staðreynd að fjármagnið
sem ríkið greiðir í dag og hefur
greitt í gegnum tíðina dugir engan
veginn til að uppfylla þær skyldur
sem viðmið landlæknis gera til þjón-
ustu hjúkrunarheimilanna. Í stuttu
máli má segja að fulltrúar ríkis-
valdsins hafi ekki verið tilbúnir að
greiða hjúkrunarheimilunum þá
upphæð sem dugir til að uppfylla
kröfurnar og er það mjög miður. Það
er þó einlæg ósk SFV að úr þessu
verði bætt sem allra fyrst.
Sé litið til jákvæðustu hliða samn-
ingsins má nefna að svokölluð kröfu-
lýsing er lykilatriði samningsins.
Hún er í raun skjal með upptalningu
á lágmarkskröfum sem hið opinbera
gerir til þess aðila sem tekur að sér
rekstur þjónustunnar og um þá
þjónustu sem veita skal. Kröfulýs-
ingunum sem slíkum ber mjög að
fagna enda mikilvægt að öll þjónusta
sé vel skilgreind. Kröfulýsingarnar
auka gegnsæi og tryggja sem kostur
er að helstu hagsmunaðilar, ekki síst
notendur þjónustunnar og aðstand-
endur þeirra, starfsfólk og rekstrar-
aðilar, átti sig betur á hvaða þjón-
ustu nákvæmlega er verið að gera
kröfu um, en ekki síður hvaða þjón-
ustu ekki er farið fram á.
Kröfulýsingar er oftast hægt að
kostnaðargreina og með þeim má
meðal annars gera greinarmun á
draumsýnum (til dæmis stjórnmála-
manna) og raunhæfum væntingum
með hliðsjón af því fjármagni sem
ríkisvaldið er tilbúið að setja í mála-
flokkinn. Rekstraraðilar heilbrigð-
isþjónustu sitja stundum undir því
ámæli að þykja lítt hæfir til verka
þegar þeir eru einmitt að fara að lög-
um, reglugerðum og kjarasamn-
ingum sem gera að verkum að
ómögulegt er að standast ætlaðar
fjárheimildir. Auðvitað á að gera rík-
ar kröfur til rekstraraðila í heil-
brigðisþjónustu um hagkvæmni,
skýra áætlunargerð og markvissa
eftirfylgni eins og í öllum öðrum
ábyrgum rekstri. Það verður því að
liggja fyrir í upphafi að úthlutað
fjármagn dugi fyrir þeirri þjónustu
sem ríkið vill kaupa með þeim rétt-
indum og skyldum sem því kunna að
fylgja. Það er í allra þágu. Von okkar
hjá Samtökum fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu er því að hinn nýi
rammasamningur um starfsemi
dvalar- og hjúkrunarheimila og
kröfulýsingin sem honum fylgir
verði öldruðum og öldrunarþjónustu
til hagsbóta í samfélagi okkar til
framtíðar.
Nýr rammasamningur skýrir
hlutverk og skyldur öldrunarstofnana
Eftir Pétur
Magnússon og
Björn Bjarka
Þorsteinsson
» Samkvæmt samn-
ingnum munu árleg-
ar greiðslur úr ríkissjóði
nema tæplega 30
milljörðum króna á ári.
Pétur
Magnússon
Höfundar eru formaður og
varaformaður Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu.
Björn Bjarki
Þorsteinsson