Morgunblaðið - 05.01.2017, Side 54
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið
Það er ekki að ástæðulausu að fagmaðurinn velur
Spiegelau og nú getur þú notið þeirra.
Platinumlínan okkar er mjög sterk
og þolir uppþvottavél.
Við bjóðum Spiegelau í fallegum
gjafaöskjum sem er tilvalin
tækifærisgjöf eða í matarboðið.
• Rauðvínsglös
• Hvítvínsglös
• Kampavínsglös
• Bjórglös
• Karöflur
• Fylgihlutir
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Spiegelau
er ekki bara
glas heldur
upplifun
HUGSAÐUM
heilsuna
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
ú tíð virðist liðin að kraðak
myndist á líkamsrækt-
arstöðvunum í janúar.
Þröstur Jón Sigurðsson
segir að aðsóknin dreifist
núna mun jafnar yfir árið og er reglu-
leg hreyfing orðin hluti af daglegu lífi
stórs hóps fólks frekar en að tak-
markast við stutt átakstímabil.
Þröstur er eigandi Sporthússins í
Kópavogi og Reykjanesbæ og rekur
að auki Bootcamp- og Crossfit--
stöðvar. Hann segir að vissulega sjá-
ist fleiri ný andlit í æfingatímum og í
tækjasölunum á ákveðnum tímum árs
og fækki lítillega yfir hásumarið og
prófatörn skólanna. „En í stað þess
að gefast upp á átakinu eftir nokkrar
vikur eða mánuði tekst fólki að halda
þessari lífsstílsbreytingu gangandi.“
Gott að æfa með öðrum
Spurður hvaða breytingar megi
greina í líkamsræktaráherslum Ís-
lendinga segir Þröstur að meiri ásókn
sé í skipulagða hópatíma, hvort sem
um sé að ræða Bootcamp og Crossfit
eða æfinga- og íþróttatíma hjá Sport-
húsinu. „Fólk vill greinilega þjálfun í
góðum félagsskap þar sem hver og
einn getur sett sér skýr og skilgreind
markmið. Að vera hluti af hópi skapar
líka ákveðið aðhald og minnkar lík-
urnar á að fólk freistist til að skrópa,“
segir Þröstur og notar tækifærið til
að leiðrétta útbreiddan misskilning
um að æfingakerfi Crossfit og Boot-
camp séu ekki nema fyrir allra
hraustasta fólk. „Sumir halda að þeir
geti ekki byrjað á þannig nám-
skeiðum án þess að vera í góðu formi
fyrir, en það er kolrangt. Þaulvanir
þjálfararnir taka vel á móti fólki og
hjálpa hverjum og einum að haga æf-
ingunum í samræmi við getu.“
Breytingar virðast líka vera að eiga
sér stað í tækjasalnum. Segir Þröstur
að fræðin bendi núna til þess að bestu
þjálfunina sé að fá með því að lyfta
lóðum og ketilbjöllum frekar en að
nota æfingatæki sem halda lík-
amanum í föstum hreyfiferlum.
„Ólympískar lyftingar og þess háttar
æfingar þýða að verið er að reyna á
fleiri vöðva líkamans og með hreyf-
ingu sem er náttúrulegri.“
Raunhæf markmið
Marga dreymir um að koma lík-
amanum í betra form, stæla vöðvana,
minnka mittismálið og styrkja hjarta
og lungu um leið. En það getur verið
auðvelt að gefast upp, sérstaklega á
fyrstu metrunum. „Fyrstu fjórar til
átta vikurnar eru yfirleitt erfiðastar
en þegar búið er að komast yfir þann
þröskuld fara æfingarnar að verða
léttari,“ segir Þröstur, en hann lumar
á nokkrum góðum ráðum sem ættu
að gagnast þeim sem vilja komast á
hreyfingu eftir langt rólegheita-
tímabil:
„Gott er að byrja ekki af of miklu
kappi, heldur fara af stað á þeim
hraða sem líkaminn ræður raunveru-
lega við. Er lítið á því að græða að
gefa sig allan í krefjandi æfingar í
eina viku ef útkoman er að vera hér
um bil rúmfastur af verkjum og
þreytu næstu vikuna á eftir. Óraun-
hæf markmið eru ein öruggasta leiðin
til að gefast upp og hætta.“
Einnig er mikilvægt, að sögn
Þrastar, að hafa gaman af hreyfing-
unni. Fólk eigi að leita að líkamsrækt
sem því þykir skemmtileg og t.d. vera
ófeimið við líflega hópatíma líkams-
ræktarstöðvanna. „Vönduð leiðsögn
þjálfara getur líka hjálpað þegar ver-
ið er að byrja og þá er ýmist hægt að
kaupa þjónustu einkaþjálfara eða
velja líkamsræktarstöð með hærra
þjónustustig, eins og Sporthúsið Gull
þar sem þjálfarar eru alltaf til taks
fyrir viðskiptavini. Einkaþjálfararnir
geta m.a. aðstoðað við að skipuleggja
æfingakerfi og kennt fólki að fram-
kvæma æfingarnar rétt.“
Umfram allt segir Þröstur að mæla
eigi árangurinn af hreyfingunni út frá
líðan líkama og sálar, frekar en hvaða
tölur birtast á baðherbergisvoginni
eða hvort buxurnar virðast víðari um
mittið. „Regluleg hreyfing snýst fyrst
og fremst um vellíðan og heilbrigði.“
Ekki fara of hratt af stað
Ef stefnan er sett á líkamsræktina á nýju ári þarf að passa að
hreyfingin sé viðráðanleg og skemmtileg Fyrstu fjórar til átta
vikurnar eru erfiðastar en svo venst líkaminn hreyfingunni
Morgunblaðið/Eggert
Grunnur Vönduð leiðsögn getur komið fólki á rétta sporið í heilsuátaki.Breyting Þröstur segir best að mæla áhrif hreyfingar í aukinni vellíðan frekar en í kílóum og sentimetrum.