Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 57
57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Gríptu með þér gríska jógúrt eða kotasælu
Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og bragðgóðu og hollu meðlæti.
Grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum eða kotasæla með berjum og möndlum.
Nærandi millimál
…er létt mál
döðlur
graskersfræ
NÝTT
ENGINN
HVÍTUR SYKUR
chiafræ
möndlur
trönuber
1
6
-0
2
5
0
-H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
þeim efnum, eins og t.d. að borða
létta og kolvetnaríka máltíð tveim-
ur tímum fyrir líkamleg átök. Af
svipuðum meiði eru kenningar um
að líkaminn brenni hitaeiningunum
í matnum hraðar eða hægar eftir
því á hvaða tíma dags fólk matast.
„En fræðin að baki þessum hug-
myndum um tímasetningu máltíða
eru ekki sterk, og hvað snertir út-
hald í íþróttum og í ræktinni þá er
helst að það kunni að hjálpa afreks-
íþróttafólkinu að fínpússa hjá sér
tímasetningu máltíða til að toppa á
hárréttum tíma. Fyrir allan þorra
almennings er nóg að borða ein-
faldlega venjulegan mat með reglu-
legum hætti.“
Fæðubótarefni koma ekki í
staðinn fyrir hollt mataræði
Fyrst líkamsræktin barst í tal er
ekki úr vegi að fjalla líka um fæðu-
bótarefnin. Á bak við afgreiðslu-
borð líkamsræktarstöðvanna má
oftast finna stóra dunka af dufti og
fjölbreytt úrval drykkja og stanga
sem eiga að gera alls kyns gagn.
Sumar vörurnar lofa minni þreytu
og meira úthaldi á meðan aðrar
segjast hjálpa til við að stækka
vöðvana. „Hinum almenna borgara
myndi ég frekar ráðleggja að byrja
á að borða einfaldlega náttúrulegan
og lítið unninn mat í samræmi við
ráðleggingar um fæðuval, sjá
hversu langt það nær og þá skoða
hvort tilefni er til að kaupa duft eða
stangir,“ segir Ingibjörg. „Mik-
ilvægt er að hafa í huga að fæðu-
bótarefni ættu aldrei að koma í
staðinn fyrir máltíðir, þar sem mat-
ur, t.d. grænmeti og ávextir, inni-
heldur ýmis holl og nauðsynleg efni
sem ekki er að finna í vítam-
íntöflum og próteindufti.“
Hvað með pillurnar sem lofa
meiri afköstum eða auknum fitu-
bruna? „Þar eru á ferðinni örvandi
efni sem hafa til dæmis þau áhrif að
örva hjartsláttinn og mætti líkja
áhrifunum við streituástand. Vissu-
lega eru til rannsóknir sem benda
til að sum þessara efna geti aukið
orkunotkun líkamans en persónu-
lega væri ég ekki tilbúin að fá þann
ávinning í skiptum fyrir áhættuna
sem fylgir því að örva hjartsláttinn,
stressa líkamann upp, og auka
álagið á lifrina.“
Morgunblaðið/Ómar
Nauðsyn Í holla matnum úr jurtaríkinu eru næringarefni sem ekki finnast í vítamínpillunum og duftinu.
Vísindamenn eru duglegir að
rannsaka áhrif fæðu á manns-
líkamann og fleygir þekking-
unni stöðugt fram. Stundum
koma jafnvel fram uppgötv-
anir sem kollvarpa því sem
áður þóttu viðtekin sannindi.
Þannig hefur verið að koma í
ljós að fitur eru ekki endilega
jafn óæskilegar og áður var
haldið, en kolvetnin geti verið
viðsjárverð.
Ingibjörg segir að umræðan
sem á sér stað í dag um fitu
sé þó að hluta á misskilningi
byggð. „Mjög mikil neysla á
mettaðri fitu, eins og ein-
kenndi mataræði Íslendinga
fyrir 30 árum eða svo, getur
vissulega valdið hækkuðu kól-
estróli sem síðan getur aukið
hættu á hjarta- og æða-
sjúkdómum. Í dag neytum við
ekki jafn ofboðslega mikils
smjörs, nýmjólkur og kjöts, og
þó neysla fitu í hóflegu magni
sé ekki varasöm þá þýðir það
ekki að skynsmlegt sé að fara
aftur í mataræðið eins og það
var 1990,“ útskýrir hún. „Ís-
lendingar mættu enn þann
dag í dag neyta meira af
fjölómettuðum fitusýrum og
þá á kostnað mettuðu fit-
unnar: borða meira af hnet-
um, fræjum og avókadó en
draga til dæmis aðeins úr
neyslu á osti. Þessa ráðlegg-
ingu mætti líka orða á annan
hátt, þ.e. að auka neyslu á
fæðu úr jurtaríkinu á kostnað
fæðu úr dýraríkinu“
Ekki er heldur endilega þörf
á að forðast kolvetnin, þó
sumir vinsælir kúrar lofi
minnkuðu mittismáli og betri
líðan ef reynt er að sneiða al-
farið hjá sykri, kartöflum,
hrísgrjónum, brauði og pasta.
„Fyrir orkumikinn ungling sem
er duglegur í íþróttum gæti
pastamáltíð verið góður orku-
skammtur, á meðan ein-
staklingur með skert sykurþol
gæti haft gagn af því að
minnka verulega neysluna á
kolvetnum. Það er því mjög
einstaklingsbundið hvaða
ávinningur felst í því að tak-
marka kolvetnamagn í fæðu.“
Sannleik-
urinn um fitu
og kolvetni
HVAÐ MÁ BORÐA?