Morgunblaðið - 05.01.2017, Síða 60
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
A
ð sögn Erlings Adolfs
Ágústssonar er skvass-
íþróttin í mikilli sókn um
þessar mundir. „Frá því í
byrjun júní höfum við séð
töluverða nýliðun eiga sér stað, og
áberandi að ungt fólk á mennta-
skólaaldri er duglegt að koma til
okkar og spila skvass með félögun-
um.“
Erling er formaður
Skvassfélags Reykja-
víkur en félagið rekur
skvass- og heilsurækt-
arstöð á Stórhöfða, þar
sem Veggsport var áð-
ur. Rösklega þrjátíu ár
eru síðan skvassið barst
til Íslands. „Vinsæld-
irnar hafa gengið í
bylgjum og ekki mikið
sagt frá skvassi í fjöl-
miðlum. Allstór hópur
fólks er samt með
ólæknandi skvass-
áhuga og íslenska skvass-samfélagið
því mjög stöðugt.“
Þessa nýju bylgju í vinsældum
skvassins segir Erling að megi
hugsanlega rekja til áhrifa sam-
félagsmiðla sem hjálpað hafa til að
vekja áhuga unga fólksins á sport-
inu. „Svo er netið líka að hjálpa okk-
ur með því að breiða út þá stað-
reynd að í úttektum viðskiptaritsins
Forbes er skvass ítrekað valið
heilsusamlegasta íþróttin.“
Hitaeiningarnar rjúka
Skvass ber nefnilega af öðrum
íþróttum þegar mælt er hversu
mörgum hitaeiningum má brenna í
einum leik. Er hægt að reikna með
að ein klukkustund af átökum á
skvassvellinum brenni yfir 1.000
hitaeiningum á meðan skokk í jafn-
langan tíma ætti að brenna 300 til
400 hitaeiningum. Skvassið getur
því hjálpað þeim sem vilja verða
spengilegri og eykur um leið úthald
og styrk. Aðspurður hvort skvass
þyki hafa einhver sérstaklega fegr-
andi áhrif á kroppinn þá segir Er-
ling að þjóhnapparnir geti batnað
töluvert. „Þeir sem vilja fá kúlurass
ættu að prufa skvassið enda mikið
unnið með rass- og fótavöðvana.“
Skvass þykir tiltölulega aðgengi-
leg íþrótt. Spilað er inni í litlum sal
og segir Erling að reglurnar séu
einfaldar. „Byrjendur fá að nota
bolta sem skoppar meira, en að öðru
leyti er engin forgjöf í skvassinu.
Tveir jafnvígir byrjendur geta haft
mjög gaman af sínum fyrsta leik, og
þurfa ekki nauðsynlega að láta þjálf-
ara kenna sér fyrst undirstöðuatrið-
in, þó vitaskuld sé það betra.“
Þó mikið gangi á og boltinn sé á
Fyrir þá sem vilja brenna hita
Átök Erling á vellinum með spilafélaga sínum Gunnari Þórðarsyni.
Skvass þykir aðgengileg íþrótt og auðvelt að byrja
Skvassið á meðal annars að gera sitjandann
fallegri í laginu enda mikið reynt á rass og læri
Rætur Skvassið varð fyrst til í bresku fangelsi.
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
HUGSAÐUMHEILSUNA
Margverðlaunað hnetusmjör
Ljúffengt, próteinríkt hnetusmjör - Náttúruleg orka í krukku
Segðu halló
Fæst í Krónunni, Nettó, Fjarðarkaup og Heilsuvöruverslunum