Morgunblaðið - 05.01.2017, Side 61
fleygiferð segir Erling að skvass sé
ekki hættuleg íþrótt. „Forbes tekur
slysatíðnina með í reikninginn í sín-
um töflum. Mælst er til þess að
hlífðargleraugu séu notuð meðan
spilað er, enda gúmmíboltinn smár
og harður, en slysatíðnin er mjög
lág og hreyfingin mjög holl fyrir
heilsuna.“
Skvassað í steininum
Heimildir benda til þess að fyrstu
iðkendur skvass hafi verið vistmenn
í skuldafangelsi í London snemma á
19. öld sem fundu upp á því að slá
bolta í vegg til að þjálfa líkamann.
Þaðan barst boltaleikurinn yfir á
breskar skólalóðir og var fyrsti
skvassvöllurinn byggður árið 1864
við Harrow School, rétt norður af
Wembley.
Gárungarnir myndu segja að það
væri viðeigandi, í ljósi þess hvar
rætur skvassins liggja, að íþróttin er
þekkt fyrir að vera vinsæl meðal
fólks sem starfar í fjármálageir-
anum. Segir Erling að gjarnan séu
alþjóðlegir bankar helstu styrkt-
araðilar stærstu skvassmóta og
ýmsar kenningar gætu skýrt hvers
vegna fjármálageirinn hefur tekið
ástfóstri við skvassið. „Ein möguleg
skýring er að skvassvöllur tekur
ekki mikið pláss og oft hægt að
koma fyrir skvass-aðstöðu í skrif-
stofuturnum bankanna. Skvass er
líka tilvalin íþrótt fyrir önnum kafið
fagfólk sem vill brenna sem flestum
hitaeiningum á sem skemmstum
tíma. Síðan gefst oft gott tækifæri á
milli leikja til að spjalla saman og
styrkja tengslanetið.“
Frítt fyrir byrjendur
Skvassfélag Reykjavíkur leggur
mikla áherslu á að gera íþróttina
sem aðgengilegasta og segir Erling
bæði einfalt og ódýrt að byrja. Í
skvasstöðinni á Stórhöfða má leigja
spaða, bolta og augnhlífar og kostar
lítið að fá afnot af skvass-sal í
klukkustund. „Í hádeginu á mánu-
dögum og miðvikudögum bjóðum
við síðan upp á fría æfingatíma fyrir
byrjendur svo að áhugasamir geta
notað hádegismatarhléið til að prófa
skvassið sér að kostnaðarlausu.“
einingum í hvelli
Morgunblaðið/Golli
Aðgengilegt Að sögn Erlings er skvassið örugg íþrótt, þó mikið gangi á.
Morgunblaðið/Ómar
Sviti Unga fólkið virðist vera að uppgötva skvassið á ný. Mynd úr safni.
61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Kolaportið er opið
laugardaga og sunnudaga
frá kl. 11-17
www.kolaportid.is
Pantaðu
BÁS
núna
Besti sölutíminn
framundan
Ritmennska – helgarnámskeið 27.-29. janúar
Getur það hjálpað einstaklingum að skrifa sig frá erfiðum tilfinningum?
Helgarnámskeið frá föstudegi til sunnudags, Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur leiðir þátttakendur í
að nálgast skapandi skriflega lýsingu á andlegri líðan.
Verð: 59.000 kr
Núvitund – mindfulness, 1. febrúar
Átta vikna námskeið hefst 1. febrúar og er til 22. mars
Námskeið í núvitund við verkjum, kvíða, þunglyndi og streitu. Námskeiðið tengir saman núvitund og
hugræna atferlismeðferð. Unnið er í lokuðum hópum 12-16 einstaklinga. Kennt er í átta skipti, einu
sinni í viku í tvo tíma í senn. Þátttakendur þurfa að gera ráð fyrir daglegum heimaæfingum á milli
tímanna.
Verð: 60.000 kr.
Sorgin og lífið – 5.-12. febrúar
Vikudvöl fyrir þá sem hafa orðið fyrir ástvinamissi og eru að vinna úr sorg sinni 5.-12. febrúar 2017
Sorg er eðlileg í kjölfar ástvinamissis en oft gerist það að sá sem syrgir á erfitt með að vinna sig til
sáttar í sorgarferlinu. Sorgin hefur ólíkar birtingarmyndir en einkenni geta verið líkamleg,
tilfinningaleg, hugræn og félagsleg.
Verð: 145.000 kr.
Námskeið á nýju ári
Grænumörk 10 - Hveragerði - heilsustofnun.is
Nánari upplýsingar í síma 483 0300 eða heilsa@heilsustofnun.is
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands