Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 64
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
F
ólk er duglegt að hvá við og
spyrja hvað í veröldinni
samflot sé,“ segir Gyða
hlæjandi þegar einmitt sú
spurning er borin upp –
hvað er samflot? „Sumir reka upp
stór augu og spyrja hvort þeir eigi
að fara að fljóta með öðru fólki en í
rauninni er það einmitt það sem
málið snýst um. Að fljóta með öðru
fólki.“
Sífellt meiri aðsókn
Að sögn Gyðu Dísar er að
verða til ákveðin
menning í
kringum fyr-
irbærið sam-
flot og flest-
allar
sundlaugar,
bæði á höf-
uðborgarsvæð-
inu og sömuleið-
is víða um land
eru farnar að
bjóða upp á sam-
flot um þessar
mundir. „En það
þarf að hita laugina svolítið upp í
hvert sinn því það er ekki hægt að
fljóta í kaldri laug,“ útskýrir hún.
„Þess vegna er þetta yfirleitt haldið
einu sinni í mánuði, samanber í
Salalaug þar sem ég hef haldið ut-
an um samflot upp á síðkastið. En
vonandi gefst kostur á að halda
þetta oftar í mánuði því hver tími
er sneisafullur núorðið.“
Sundlaugin er hituð í 36 °C –
mikið minna má það ekki vera, að
sögn Gyðu. Salalaug á um 15 stykki
af flothettum og fást þær til afnota
í samflotinu án sérstaks gjalds.
Nóg er að borga sig ofan í laugina
og þá er hægt að fá hettuna lánaða.
Gildir þar að fyrstir koma, fyrstir
fá.
Gyða bætir því svo við að þar
sem hún sé jógakennari hafi hún
tekið flotið örlítið lengra með svo-
lítilli hugleiðslu fyrir viðstadda, ým-
ist fyrir eða eftir flotið.
„Ég tala líka alltaf dálítið um það
hvað flotið er að gera fyrir þátttak-
endur og síðast þegar ég var með
tíma í Salalaug var ég með nuddara
með mér í vatninu og í þau skipti
verður aðeins meiri viðburður úr
þessu og kost-
ar meira inn,
viljirðu fá
nuddið líka.
Annars er
samflotið ein-
faldlega hugs-
að sem vett-
vangur fyrir
fólk þar sem
það getur kom-
ið saman og
upplifað nær-
andi slökunar-
stund í þyngdarleysi, umvafin vatn-
inu.“
Hryggsúlan fær algera hvíld
Búnaðurinn sem þarf í flotið –
áðurnefnd flothetta og meðfylgj-
andi flotholt fyrir fætur – er hönn-
un Unnar Valdísar Kristjánsdóttur.
„Þessar vörur eru alger snilld og ef
þú átt svona flotsett sjálfur geturðu
auðvitað flotið í pottinum heima hjá
þér, ef því er að skipta. Þá eru
Nærandi slökunar-
stund í þyngdarleysi
Það færist í vöxt að fólk leggi stund á flot sér til slökunar og endur-
næringar Nú býðst áhugasömum að skella sér í sund og fljóta – í
samfloti ásamt öðrum – undir handleiðslu Gyðu Dísar jógakennara
Flothettan Hin
margrómaða hönnun
sem Unnur Valdís
Kristjánsdóttir á heiðurinn að. For-
senda þess að fara á flot.
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Við trúum því að fegurðin sé lifandi,
sköpuð úr tilfinningum og fulll af lífi.
Alveg eins og náttúran sjálf. Til að
viðhalda æskuljóma húðar þinnar
höfum við tínt saman immortelle,
blómið frá Korsíku sem aldrei fölnar.
Divine Cream fegrar svipbrigði þín og
hjálpar við að lagfæra helstu ummerki
öldrunar. Húðin virðist sléttari,
*Ánægja prófuð hjá
95 konum í 6 mánuði.
Húðin virðist unglegri
Mimi Thorisson er
franskur matarbloggari.
Divine Cream með Immortelle blómum
HÚÐUMHIRÐA SKÖPUÐ
FYRIR LIFANDI FEGURÐ
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
L’Occitane en Provence - Ísland
Innritun er hafin
Allur aldur frá 2ja ára
Nýtt
Jazzball
ett
Pilates
Silfur sv
anir
fyrir 65 á
ra+
Skipholt 50c
Erum einnig í Grafarvogi
HUGSAÐUMHEILSUNA
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?