Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 68
68 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 ✝ Þóra SteinunnGísladóttir fæddist á Siglufirði 1. desember 1941. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 27. desember 2016. Foreldrar henn- ar voru Gísli Þor- steinsson bygg- ingameistari, f. 26. ágúst 1911, d. 30. apríl 1995, og Sigurjóna Hall- dórsdóttir, f. 26. desember 1909, d. 13. apríl 1966. Systkini: Þorsteinn, f. 28. desember 1935, d. 3. nóvember 1936, Gísli Þór trésmiður, f. 23. júní 1944, og Elín þroskaþjálfi, f. 5. febrúar 1969. 26. september 1963 giftist Þóra Steinunn Þórhalli Hösk- uldssyni, f. 16. nóvember 1942, d. 7. október 1995, sóknarpresti í Möðruvallaklausturspresta- kalli í Hörgárdal og í Akureyr- arprestakalli – og kennara. Börn: 1) Gísli Sigurjón Jónsson 2008. 4) Anna Kristín læknir, f. 26. júní 1983, gift Runólfi Við- ari Guðmundssyni, verkfræð- ingi og fjármálastjóra, f. 15. febrúar 1979. Dætur þeirra eru Elísabet Jóna, f. 2010, og Berg- lind Björg, f. 2013. Hún lauk landsprófi á Siglu- firði 1957 og varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1962. Hún stundaði nám við heimspekideild Háskóla Íslands veturinn 1962 til 1963, lauk kennaraprófi frá Kennarahá- skóla Íslands 1964 og prófi í sérkennarafræðum frá sama skóla árið 1980. Hún stundaði nám í talkennarafræðum í Ósló með hléum á árunum 1990 til 1995. Þóra Steinunn starfaði sem kennari við Melaskóla í Reykjavík á árunum 1965 til 1968. Hún var skólastjóri Grunnskóla Arnarneshrepps, Hjalteyrarskóla, frá 1969-1979. Hún starfaði sem sérkennari við Barnaskóla Akureyrar, Gagn- fræðaskóla Akureyrar, við Giljaskóla á Akureyri frá 1980 og þar til hún fór á eftirlaun fyrir utan einn vetur 2001-2002 við Grunnskólann á Hvolsvelli og A-Landeyjum. Útför Þóru Steinunnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 5. janúar 2017, klukkan 13.30. vélstjóri, f. 9. júlí 1958. Sonur hans er Bjarni Þór verk- fræðingur, f. 18. apríl 1980, kvænt- ur Guðrúnu Ólafs- dóttur, kennara og bókasafnsfræðingi, f. 6. apríl 1982. Börn þeirra eru Ingunn Erla, f. 2005, Ólafur Kári, f. 2009, Davíð Þór, f. 2015. 2) Björg, f. 27. nóv- ember 1964, hjúkrunarfræð- ingur og söngkona. Sambýlis- maður hennar er Hilmar Örn Agnarsson, organisti og kór- stjóri, f. 9. maí 1960, og synir hans eru Georg Kári, f. 1982, Andri Freyr, f. 1987, og Gabríel Daði, f. 1997. 3) Höskuldur Þór, lögmaður og fv. alþingismaður, f. 8. maí 1973, kvæntur Þóreyju Árnadóttur, viðskiptafræðingi og útibússtjóra, f. 29. maí 1975. Börn þeirra eru Steinunn Gló- ey, f. 2003, Fanney Björg, f. 2006, og Þórhallur Árni, f. Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir yður. (1. Pét. 5:7) Elsku hjartans móðir okkar hefur nú kvatt þennan heim og eftir standa ótal minningar sem ylja okkur um hjartarætur. Móðir okkar ólst upp á Siglu- firði við ástríki foreldra sinna. Þau voru metnaðarfull fyrir hennar hönd og lögðu áherslu á að hún fetaði menntaveginn, veg sem hún fetaði af gríðarlegum dugnaði. Mamma var alla tíð afar lærdóms- fús, vildi fræðast um alla skapaða hluti og þau voru ófá skiptin sem við leituðum svara hjá henni. Foreldrar okkar kynntust í Menntaskólanum á Akureyri. Þau voru alla tíð afar samstillt og hjónaband þeirra einkenndist af ást, virðingu hvors fyrir öðru og umhyggju fyrir okkur. Þau bjuggu okkur yndisleg heimili, bæði á Möðruvöllum í Hörgárdal og í Hamarstígnum á Akureyri. Fjölskyldan var þeim afar mikil- væg og þó næstum áratugur sé á milli okkar systkinanna gættu þau þess ávallt að við værum samstiga og samheldin. Mamma beitti ekki alltaf hefð- bundnum uppeldisaðferðum og vildi að við yrðum snemma sjálf- stæð og ábyrg. Hún setti okkur samt skýran ramma og gætti vel að því að við legðum okkur fram og næðum árangri í því sem við gerðum. Hún bjóst líka aldrei við öðru og gaf aldrei annað í skyn en að við gætum allt og ekkert væri okkur ómögulegt. Alla tíð byggði hún okkur upp og hvatti til dáða. Hún vildi að við vönduðum okk- ur og gerðum hlutina vel. Hún var einstakur fagurkeri, unnandi klassískrar tónlistar og hafði unun af því að fegra umhverfi sitt og heimili bæði á Möðruvöllum og á Akureyri. Það var engin tilviljun að hún fékk verðlaun á báðum stöðum fyrir fallega garða. Hann- yrðir voru henni einnig hugleikn- ar. Eftir hana liggja m.a. mörg fal- leg útsaumsverk og prýðir m.a. eitt þeirra kapellu Akureyrar- kirkju. Við systkinin verðum ætíð þakklát fyrir þær stundir sem við áttum með henni eftir að hún veiktist sumarið 2015. Hvernig hún tókst á við erfiðleikana var aðdáunarvert og þar sýndi hún hversu gríðarlegan innri styrk og úthald hún hafði. Hún var mjög trúuð og leitaði iðulega styrks í bæninni. Hún var einnig þolinmóð og auðmjúk og sýndi mikið æðru- leysi. Hún tamdi okkur að vera bjartsýn og jákvæð, hlutirnir færu alltaf einhvern veginn en yfirleitt á betri veg ef góð gildi væru höfð að leiðarljósi. Við áttum afar dýr- mætar stundir með henni síðustu dagana, stundir sem verða okkur enn mikilvægari þegar fram líða stundir. Þó hún horfði alltaf fram á veginn og vildi heldur tala um eitthvað skemmtilegt, þá sagði hún okkur að hún væri sátt. Nú þegar við kveðjum hana mömmu erum við full þakklætis. Við minnumst móður sem var sterk, einbeitt og staðföst. Móður sem bar höfuðið ætíð hátt, þrátt fyrir áföll. Móður sem var menn- ingarlega sinnuð, víðlesin og hafði gott innsæi. Móður sem umvafði okkur með kærleika. Móður sem við erum endalaust stolt af og munum sárt sakna. Við biðjum Guð að taka elsku mömmu í sinn umvefjandi faðm og blessa minningu hennar. Guðs orð er ljós er lýsir í lífsins dimmu hér, og ljúfur leiðarvísir það lífs á vegum er. (Valdimar Briem) Björg, Höskuldur Þór og Anna Kristín. Í dag er elskuleg tengdamóðir mín og amma okkar, Þóra Stein- unn eða amma Steina eins og hún var oft kölluð innan okkar fjöl- skyldu, jarðsungin frá Akureyrar- kirkju. Mig og ömmubörnin lang- ar að minnast hennar með nokkrum orðum. Fyrstu kynni okkar Steinu hófust fyrir um 25 árum þegar ég kom inn í fjölskyld- una sem ung stelpa heilluð af syni presthjónanna. Mér leið strax eins og einni af fjölskyldunni enda tek- ið opnum örmum. Síðan þá hafa tengslin bara orðið betri og sterk- ari og margar góðar minningar að ylja sér við. Við fjölskyldan höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að eyða mörgum stundum á Akur- eyri. Það gaf okkur tækifæri til góðra stunda með ömmu Steinu. Fyrstu árin dvöldum við í góðu yf- irlæti í Hamarstígnum en síðar í bústaðnum okkar í Vaðlaheiðinni. Þá var alltaf gott að koma til ömmu Steinu, sem var dugleg að grípa í spil með okkur, leyfa okkur að vökva og gróðursetja í fallega garðinum sínum, sjóða handa okk- ur hafragraut, bjóða upp á bakk- elsi eftir skíðaferðir og gefa sér tíma í spjall sem oft hófst á orðum hennar: „Jæja, hvað er að frétta, segið mér nú eitthvað skemmti- legt.“ Amma Steina var mjög stolt af ömmubörnunum og var hún óspör á að láta þau vita af því, hrósa þeim og leiðbeina á uppbyggileg- an hátt. Það er gott til þess að hugsa að hafa fengið að skíra börnin í afakirkju, Akur- eyrarkirkju, og halda skírnar- veislurnar í ömmuhúsi, Hamars- tígnum, heimili sem var fullt af hlýju og glæsileika. Við kveðjum nú með miklum söknuði hana ömmu Steinu sem alltaf var svo hlý og góð, sterk og ákveðin og þökkum fyrir samveruna, alla ást- ina og hlýjuna. Góða ferð elsku amma Steina og takk fyrir allt. Biðjum að heilsa afa Þórhalli sem við erum fullviss um að hafi tekið á móti þér með opinn faðm og bros á vör. Guð blessi þig og ykkur bæði. Þín tengdadóttir Þórey. Kossar og knús frá ömmu- börnunum, Steinunni Glóeyju, Fanneyju Björgu og Þórhalli Árna. Elsku amma mín er fallin frá. Ég er svo lánsamur að hafa átt hana að og fyrir það er ég þakk- látur. Til hennar var alltaf gott að koma og hún tók alltaf vel á móti mér sem og fjölskyldu minni. Amma var afar glæsileg kona í framkomu, fasi og útliti. Hún hugsaði vel um fjölskyldu sína og vini og ræktaði tengslin við fólkið sitt af sömu alúð og garðinn sinn heima í Hamarstíg, sem var mikil prýði. Hún tók mig inn í fjölskylduna og tengdi við ættmenni okkar og fjölskylduvini þegar faðir minn gat það ekki vegna veikinda sinna. Hún var góður námsmaður og svo kennari sem sinnti starfi sínu af elju og alúð. Hún talaði alltaf hlýlega um nemendur sína og starf og maður fann hversu mik- inn áhuga hún hafði á sínu fagi við að hjálpa nemendum að læra og eflast. Að lokum barðist hún af hörku við erfiðan sjúkdóm og vann marga stóra sigra. Sá tími sem gafst með henni var mjög dýr- mætur og hún sýndi okkur sinn innri styrk. Síðasta árið með ömmu var ómetanlegt kraftaverk og amma var börnum sínum og barnabörnum bæði sterk og ljúf. Hún miðlaði af reynslu sinni til okkar og undirbjó okkur fyrir hið óumflýjanlega. Skilaboð hennar um mikilvægi fjölskyldunnar og að standa sam- an og styðja hvert annað munu ekki gleymast. Hennar verður sárt saknað en nú er erfiðri baráttu lokið. Hvíl í friði, elsku amma mín. Bjarni Þór Gíslason. Elskuleg æskuvinkona mín, Steina, er látin. Eftir standa yndislegar minn- ingar um trygga, góða og hlýja vináttu liðinna ára sem aldrei bar skugga á. Við vorum litlar stelpur þegar við kynntumst og áttum heima hlið við hlið á Laugarveg- inum á Sigló. Vorum öllum stund- um saman í leik og brölluðum margt og minningarnar eru dýr- mætar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Með söknuði og hjartans þökk kveð ég Steinu mína og þakka henni fyrir allt sem hún var mér og gaf. Elsku Björg, Höskuldur, Anna Kristín, Gísli Sigurjón, Gísli Þór og fjölskyldur, innilegar sam- úðarkveðjur frá okkur Jóhannesi og fjölskyldu. Guð styrki ykkur. Hvíl í friði og Guð þig geymi. Þín vinkona, Kristín. Að vera trú lífsskoðun og hug- sjónum sínum alla ævi, allt frá bernsku til ævikvölds, er sá vitn- isburður sem ég á og geymi um frú Þóru Steinunni Gísladóttur. Ég gleymi ekki geislandi gleði Þóru Steinunnar og Þórhalls á út- skriftardegi okkar 17. júní, sem stúdentar frá MA 1962, þegar þau opinberuðu trúlofun sína. Strax um haustið giftu þau sig, hófu búskap á litlu heimili með námi þeirra beggja, hennar í kennaraskólanum og hans í guð- fræðideild Háskóla Íslands. Hún var honum svo náin, að mér fannst hún einnig vera við nám í guð- fræðideildinni. Þegar Þórhallur vígðist til Möðruvallaklaustursprestakalls 1968 og tókst á við að vera prestur og bóndi að Möðruvöllum, varð Þóra Steinunn prestsfrú og bóndi við hlið hans í orðsins fyllstu merkingu, eins og maddömur voru, að búa þeim glæsilegt heim- ili með endalausri móttöku og þjónustu, kirkjukaffi að lokinni messu og fórnfýsi í þágu kirkjunn- ar, prestssetursins og starfs manns hennar. Og til þess að þetta væri fjárhagslega hægt, varð hún að taka að sér kennslustörf til við- bótar við heimilisstörfin og upp- eldi barnanna. Sr. Þórhallur var einn af af- burðamönnum kirkjunnar í prestsþjónustu og þekkingu á sögu og kenningu hennar. Hann tók að sér æ fleiri trúnaðarstörf í þágu þjóðkirkjunnar og í sveitinni. 1982 var hann kjörinn sóknar- prestur Akureyrarprestakalls og saman fluttu þau á prestssetrið að Hamarstíg 24, sem þau keyptu síðar, þar sem Þóra Steinunn varð sál og hjarta hússins og garðsins, allt í þágu sr. Þórhalls og barna þeirra. Allt skyldi vera honum til styrktar í mjög annasömu starfi, því sr. Þórhallur frestaði aldrei beiðni nokkurs manns um hjálp, hvort sem það var að nóttu eða degi. Hann andaðist án nokkurs fyrirvara 7. október 1995. Við tóku árin hennar Þóru Steinunnar, að styðja börnin sín áfram til náms og þroska og að halda utan um minningu sr. Þór- halls. Hún hélt heimilinu nákvæm- lega eins og heimilinu þeirra, áfram sem prestssetri á Akureyri og að hafa garðinn í kring krýnd- an fallegasta skrúði lífs gróanda, með bænarhugsun og höndum til hjálpar vexti frá vori til hausts. Fallegi garðurinn hennar bar vitni um lífið sjálft, sem hún tengdi við grundvöll kristninnar og sálm sr. Hallgríms Péturssonar um blóm- ið, sem „upp vex á sléttri grund“. Hún tókst á við veikindi, sem hún vildi bera ein og viðfangsefni, sem voru stundum erfið, en hún sigraðist á með staðfestu sinni og kristinni trú. Ég kveð hana með þökk fyrir störf hennar í þágu kirkjunnar við hlið sr. Þórhalls, ásamt því sem hún lagði af mörkum í þágu bekkj- arsystkina sinna og annarra með vináttu, umhyggju og tryggð. Við Margrét vottum börnum hennar, barnabörnum og tengdafólki sam- úð okkar. Mér finnst ég heyra við þessa kveðjustund, þegar „himins opnast hlið“, – það óáþreifanlega, en samt örugga í okkar kristnu trú: Orð heilagrar ritningar, sem ná til okkar gegnum tíma og rúm. „Gott, þú góði og trúi þjónn; yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn til fagnaðar herra þíns.“ Halldór Gunnarsson. Við Þóra Steinunn hittumst fyrst haustið 1963, þegar við hóf- um nám í stúdentadeild Kennara- skóla Íslands. Það var góður vetur sem við áttum saman og útskrif- uðumst með haldgott veganesti til að kenna börnum og unglingum. Þóra Steinunn vann upp frá því ávallt við kennslu og bætti við sig námi í þeim fræðum, meðan ég söðlaði um eftir 12 ár og gerðist æskulýðsfulltrúi í Þjóðkirkjunni og síðar prestur. Þá fyrst urðum við nánir vinir. Þóra Steinunn bjó þá ásamt manni sínum, sr. Þórhalli Hösk- uldssyni, og börnum þeirra á Möðruvöllum í Hörgárdal og ég varð tíður gestur á heimili þeirra og náinn vinur upp frá því. Þau bjuggu sér fallegt heimili þar sem var gott að koma, fyrst á Möðru- völlum og síðar á Akureyri. Þór- hallur féll reyndar frá aðeins 52 ára gamall, en vinátta okkar var sterk og hefur enst vel – og einnig vinátta við börnin. Þóra Steinunn var hæf og stað- föst kona, áhugasöm um að gefa börnum sínum, nemendum og samferðafólki gott og fjölbreytt veganesti til lífsins. Hún var mikil ræktunarkona og natin við rósirn- ar sínar, sem hún hélt mikið upp á. Þá var hún áhugasöm við hann- yrðir, einkum útsaum, og best leið henni þegar hún saumaði helgi- myndir. Þetta tvennt, ilmandi rós- ir og helgimyndir hennar með ótal sporum, eru mér sem myndir af henni og tákn um vilja hennar í líf- inu: Að rækta rósir í margföldum skilningi og vera öðrum til bless- unar. Þau hjónin voru samtaka í lífinu og studdu hvort annað í blíðu og stríðu og báru virðingu hvort fyrir öðru. Þóra Steinunn fylgdi manni sínum í kirkjustarfinu og naut þess að vera með. Heilagleikinn var henni mikilvægur. Þórhallur gekk í störfin heima eftir þörfum og átti oft annríkt, en hann hafði þá mikilvægu hæfileika að hafa alltaf tíma og bera umhyggju fyrir þeim sem voru í kringum hann. Það varð því eiginkonunni mikið áfall að missa hann svo fljótt. Eftir að Þóra Steinunn hætti að kenna var hún talsvert á ferðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur til að hitta börn og barnabörn, fjöl- skyldu og vini. Kom hún þá iðu- lega við hjá okkur Óla á Blönduósi og gisti og treysti vináttuböndin. Það voru dýrmætar stundir, sem við erum þakklát fyrir. Sumarið 2015 greindist hún með slæmt krabbamein og tókst á við veikindin og meðferðina af ein- stöku æðruleysi og trúarstyrk. Var hún okkur hinum enn hin besta fyrirmynd. Síðastliðið vor, þegar hún var veikburða að jafna sig eftir meðferð, fórum við saman á setningu prestastefnunnar í Kópavogi og naut hún þess vel að vera í þeim félagsskap, sem hafði verið henni svo dýrmætur í ára- tugi. Minningin um góðan vin, sterka og hæfileikaríka konu mun ylja og gleðja um ókomna tíma. Guð blessi minningu Þóru Steinunnar Gísladóttur og fjöl- skyldu hennar alla. Stína Gísladóttir. Látin er kær vinkona okkar, Þóra Steinunn Gísladóttir. Vinátta okkar á sér langa sögu en við kynntumst á fyrstu námsárum okkar í Menntaskólanum á Akur- eyri, þar sem saman komu ung- menni alls staðar að af landinu og námu og þroskuðust saman í fjóra vetur. Þar bundust sterk vináttu- bönd sem hafa styrkst í áranna rás. Steina, eins og hún var kölluð, dökkhærð og myndarleg, kom í hópinn með ró og festu sem ein- kenndi hana alla tíð. Hún var metnaðarfull og góð námsmann- eskja og reyndist einnig strax vin- ur vina sinna. Fljótlega kom inn í líf hennar glæsilegur piltur úr Hörgárdaln- um, Þórhallur Höskuldsson, sem vann hjarta hennar og saman áttu þau farsæla sambúð þangað til hann féll frá langt um aldur fram, öllum harmdauði. Eftir námsárin á Akureyri lá leið flestra til Reykjavíkur til náms og starfa. Margar stelpurn- ar fóru í Kennaraskólann og valdi Steina þá leið og varð kennsla hennar ævistarf. Heimkynnin fyrir norðan heill- uðu og þegar Þórhallur hafði lokið guðfræðináminu vígðist hann að Möðruvöllum í Hörgárdal og þau fluttu norður. Þegar hugsað er til baka birtast ljúfar minningar um samvistir við Steinu og Þórhall. Þau voru góð heim að sækja, hvar sem þau bjuggu, gestrisin og skemmtileg. Tekið var á móti öllum af hlýju og rausn og nutum við og fjölskyldur okkar þess í ríkum mæli. Gaman er líka að minnast samvista frá námsárunum í Reykjavík þar sem boðið var til veislu í kjallara- íbúðina við Ásvallagötu og á borð- um var saltkjötið að norðan sem húsbóndinn hafði saltað í tunnu. Steina var fagurkeri og heimilið prýtt hannyrðum hennar og fögr- um munum. Lóðinni á Hamars- tígnum breytti hún í unaðsreit, lystigarð, þar sem hún undi sér öllum stundum á sumrin. Eftir- minnilegar eru heimsóknir stúd- enta ’62 á afmælishátíðum þar sem myndir af hópnum eru teknar í lystigarði hennar, en hún lét sig ekki muna um að taka oftar en einu sinni á móti öllum hópnum í mat og drykk, söng, spjall og gleði. Steina rækti okkur vinkonur sínar vel, kom gjarnan í sólar- hringsheimsókn og gisti þá til skiptis hjá okkur öllum eina og eina nótt. Þannig náðist gott spjall bæði í kvöldkaffi og morgunsopa. Þetta voru skemmtilegar heim- sóknir, fjörugar samræður og komið víða við. Hún var húmoristi og glögg á skoplegar hliðar mann- lífsins en jafnframt næm á líðan þeirra sem fundu til. Sjálf fór hún ekki varhluta af sorg og erfiðleik- um en sótti sér huggun í trú sína og innri styrk. Það sáum við oft, ekki síst nú í veikindum hennar þar sem æðruleysi og ró voru hennar aðalsmerki. Að leiðarlokum þökkum við áralanga, dýrmæta vináttu og tryggð. Elsku Gísli, Björg, Höskuldur, Anna Kristín og fjölskyldur, við sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þóru Stein- unnar. Jósefína Friðriksdóttir, Margrét Erlendsdóttir, Stefanía Valdís Stefánsdóttir. Þóra Steinunn Gísladóttir HINSTA KVEÐJA Við leggjum blómsveig á beðinn þinn og blessum þær liðnu stundir er lífið fagurt lék um sinn og ljúfir vinanna fundir en sorgin með tregatár á kinn hún tekur í hjartans undir. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Edda Snorradóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.