Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 73

Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 73
MINNINGAR 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 ✝ GuðmundurJónsson fædd- ist í Reykjavík 11. mars 1929. Hann lést 28. desember 2016 á Landspít- alanum í Fossvogi. Foreldrar hans voru Jón Sigurðs- son bæjarritari, f. 8. janúar 1879, d. 6. janúar 1964, og Ingibjörg Eyjólfs- dóttir húsmóðir, f. 14. nóv- ember 1895, d. 4. febrúar 1966. Hann var næstyngstur fimm systkina. Þau eru: Guðný Guð- rún, f. 1921, d. 2014, Sigrún f. 1923, d. 2015, Málfríður, f. 1927, d. 2012, og Anna Kristín, f. 1931. Guðmundur giftist árið 1951 eftirlifandi maka sínum, Sigfríði Hákonardóttur, f. 30. desember 1930 á Seyðisfirði. Börn þeirra eru Sigurbjörg, f. 1952, Sigurður Helgi, f. 1953, og Hákon Þröstur, f. 1961. Barna- börnin eru níu talsins og langafa- börnin fjögur. Guð- mundur var Reyk- víkingur í húð og hár, fæddur vest- ast á Vestur- götunni og ólst þar upp. Hann lærði úrsmíðar í Iðnskól- anum í Reykjavík og vann við þær framan af. Um nokkurra ára bil starfaði hann hjá Bögglapóststofunni og í framhaldi af því á pósthúsinu á Seltjarnarnesi þar sem hann var ráðinn útibússtjóri. Síðast gegndi hann stöðu útibússtjóra hjá Pósti og síma á Neshaga allt til starfsloka. Útför Guðmundar verður gerð frá Laugarneskirkju í dag, 5. janúar 2017, klukkan 13. Kær vinur okkar og velunnari, Guðmundur Jónsson, er skyndi- lega allur og við syrgjum hann sárt. Sagðist stundum á nýliðnu ári saddur lífdaga þegar veikindi af ýmsum toga ásóttu hann og gerðu honum erfitt fyrir. Hann hélt þó andlegum burðum sínum allt til síðasta dags og var sjálfum sér líkur þrátt fyrir minnkandi þrótt, fylgdist vel með þjóðmál- um og sagði skoðanir sínar á öllu sem fram fór í íslensku samfélagi sem og í heimsmálum. Alltaf spaugsamur og skemmtilegur í spjalli um daginn og veginn á góðum stundum, enda vel lesinn, fróður og minnugur; og því var ekki annað hægt en vona að við fengjum lengi enn að njóta sam- vista við þennan heiðursmann sem Sigfríð (Didda) frænka Há- konardóttir giftist um miðja síð- ustu öld. Með okkur, fjölskyldunni á Skipalæk, og þeim og börnum þeirra tókst órofa vinátta og má segja að þessar tvær fjölskyldur hafi jafnan staðið saman sem ein. Guðmundur var Reykvíkingur; fæddist og ólst upp í Vesturbæn- um, og þau hjónin bjuggu og störfuðu alla sína tíð á höfuðborg- arsvæðinu. Didda sleit barns- skónum á Seyðisfirði og í sum- arfríum dvöldu þau jafnan eystra, einkum eftir að þau reistu sér sumarhús skammt frá Lag- arfljótinu, í landi Ekkjufells við túnjaðarinn á Skipalæk. Í minningunni fylgdi því alltaf áköf tilhlökkun þegar þessi fjöl- skylda kom austur. Það er erfitt að lýsa því með orðum hversu kær nærvera þeirra var okkur ávallt. Guðmundur og Didda lögðu jafnan hönd á plóg í önnum dagsins og í huga barnanna á bænum lifði vissan um að eitt- hvað óvænt fylgdi í kjölfarið, skroppið yrði í veiði eða dags- ferðir um nágrannabyggðir; ein- hver dagamunur gerður milli tarna. Frá upphafi reyndist Guð- mundur okkur og öllu okkar fólki sem skyldur væri og greiddi jafn- an götu okkar í hvívetna. Lengi væri hægt að rekja sögur af óendanlegri greiðasemi og stuðn- ingi hans við okkur en sem dæmi má nefna að ekki var ónýtt fyrir Skipalækjarbændur að eiga hauk í horni á borð við hann þegar út- rétta þurfti hvað eina í Reykja- vík, svo sem þegar heyvinnutæki biluðu í miðjum heyönnum og varahluti þurfti að fá að sunnan. Öll slík viðvik innti hann af hendi án tafar og af glöðu geði og oftast var pakkinn kominn á Egilsstaðaflugvöll fyrir sólsetur sama dag, þ.e.a.s. ef Guðmundur var þá ekki sjálfur staddur eystra að hjálpa okkur við heyskapinn í sumarleyfi sínu. Alltaf hefur ver- ið hægt að treysta á þau hjónin og gestrisni þeirra í blíðu jafnt sem stríðu, ekki síst ef einhver úr fjölskyldunni veiktist og þurfti að sækja læknishjálp suður, en öll sú saga rúmast ekki hér. Langur yrði líka listinn ef telja ætti alla mannkosti Guðmundar. Enginn sem kynntist honum gekk þeirra dulinn, hvort heldur var í starfi eða leik. Slíkt valmenni var Guð- mundur Jónsson og um langa framtíð verður skarð hans ófyllt í huga okkar og hjarta. Full sakn- aðar og þakklætis vottum við Diddu, börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra hugheila samúð. Þórunn Sigurðardóttir, Skipalæk, Solveig Brynja Grét- arsdóttir, Hafnarfirði, Baldur Grétarsson, Kirkjubæ. Með Guðmundi Jónssyni, fv. póstútibústjóra, er genginn góð- ur og traustur vinur til margra ára; segja má að fráfall hans hafi komið okkur á óvart þrátt fyrir nokkur áföll heilsufarslega sem hann varð fyrir á þessu og síðasta ári. Nú söknum við vinar í stað. Guðmundur var mikið ljúfmenni, hógvær að eðlisfari og glaðvær í háttum, með afbrigðum hjálpsamur ef til hans var leitað. Hann var vinmargur og vinfastur enda leið manni vel í návist hans; var jafnan gestkvæmt á heimili þeirra hjóna, Sigfridar og Guð- mundar, ættingjum og vinum fjölmörgum alltaf tekið opnum örmum. Dugnaður og ósérhlífni voru alla tíð áberandi í fari Guð- mundar, erfiðleikar ýmsir sem jafnan verða á vegi manns á lífs- leiðinni voru í hans augum nánast sem ögrandi viðfangsefni, tilkom- in til að leysa úr, ráða farsællega fram úr. Guðmundur var af þeirri kyn- slóð Íslendinga sem ekki fengu allt fyrirhafnarlítið upp í hend- urnar, heldur urðu – auk fullrar vinnu á vinnustað – sjálfir að taka til hendinni á flestum sviðum í frí- stundum sínum. Það þurfti á þeim tímum yfirleitt eigið vinnu- framlag til að koma sér upp þaki yfir höfuðið og síðar að sjá um allt viðhald utanhúss sem innan. Guðmundur tók slíkum aðstæðum sem hverri annarri áskorun til dáða; fjórum sinnum réðst hann, ásamt öðrum þó, í að byggja hús yfir fjölskyldu sína – þrisvar sinnum hér í borg, einu sinni á Seltjarnarnesi og svo nokkru síðar reisti hann rúmgott sumarhús á bökkum Lagarfljóts í landi Ekkjufells á Fljótsdalshér- aði. Sjálfur vann hann þá eftir föngum byggingarvinnu í sínum frístundum meðan þessi hús voru í smíðum og þótti víst eiginlega sjálfsagt á þeim tímum. Vinnu- dagur hans var því oft langur og ærið strangur. Sem póstmeistari til margra ára í Vesturbæjarútibúinu á Nes- haga reyndist hann vinsæll yfir- boðari, stjórnaði daglegum rekstri af lipurð og þó festu, hafði enda til að bera bæði staðgóða verkþekkingu og starfsreynslu og var mannþekkjari. Þótt stund- um vilji gefa á bátinn í lífsins ólgusjó er óhætt að segja að Guð- mundur hafi verið hamingjumað- ur í sínu lífi og þau hjónin sam- hent í flestu í 65 ára löngum farsælum hjúskap. Með söknuði kveðjum við í okkar fjölskyldu góðan vin og vottum Sigfrid, börnum þeirra svo og öðru skylduliði einlæga samúð við fráfall Guðmundar og biðjum þeim guðsblessunar. Halldór og Alevtina. Guðmundur Jónsson Nýlega var kvaddur hinstu kveðju kær vinur og samstarfsmaður hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur sem svo hét áður. Halli Eyjólfs, eins og við sam- ferðamenn hans hjá RR nefndum hann jafnan, hóf störf hjá fyr- irtækinu 1947 í útivinnuflokki hjá Einari Guðnasyni verkstjóra. Vinnuflokkarnir höfðu þá aðset- ur sitt að Barónsstíg 4 þar sem framkvæmdadeild RR var til húsa. Halli starfaði lengst af við jarðlínutengingar og síðari ár við verkstjórn. Á 50 ára starfsaf- mæli féllst Halli á að segja und- irrituðum frá starfi sínu og þeim vinnubrögðum sem þá tíðkuðust. Hann ræddi m.a. tengingarvinnu og þróun í tækni sem létti mönn- um erfiðið á þessum árum og er sú grein varðveitt í starfsmanna- Haraldur G. Eyjólfsson ✝ Haraldur G.Eyjólfsson fæddist 4. apríl 1931. Hann lést 14. desember 2016. Útför Haraldar fór fram 30. desem- ber 2016. blaði RR; Línunni frá des.1997. Halli sagði svo frá: „Þegar ég byrj- aði í tengingunum voru nær allar teng- ingar í jarðlínu klemmdar og lóðað- ar saman. Kristján Oddsson tengingar- maður bjó til klemmur (tengi- hólka) sem voru ætlaðar fyrir langhólka og T-múffur sem reyndust vel. Kristján smíðaði tæki til að pressa tengihólka af ýmsum stærðum sem kom sér vel á seinni stríðsárunum þegar erfitt var að útvega efni til teng- inga. Á þessum árum þótti gott ef menn náðu að tengja þrjár heim- taugar á dag. Stærsta breytingin var þegar hætt var að nota T- múffurnar. Í staðinn komu götu- skápar þar sem menn geta tengt 10-20 heimtaugar og aðra strengi í skáp og lokið tengivinnu á ein- um degi. Þá varð bylting með til- komu gröfuvinnuvéla í jarðlínu- vinnu árið 1954. Gröfurnar gjörbreyttu allri vinnu, flýttu verkum og léttu þrældómi af mönnum. Þá má nefna streng- efnið en með tilkomu plast- strengja varð önnur bylting frá olíustrengjunum sem var nær eina strengefnið í tugi ára. Með útbreiðslu hitaveitunnar jókst hætta frá heitum rörum sem lágu oft samhliða rafstrengjum í gangstéttum. Þetta var oft til mikilla vandræða, raflakkið rann úr múffunni við hitann og raki komst í múffu og strengi. Þar sem bilun kom fram á hitaveitu- leiðslum máttum við síðar eiga von á 1-2 bilunum. En með til- komu plaststrengjanna er þetta nú eiginlega alveg horfið og heyrir sögunni til.“ Halli tók við verkstjórn í teng- ingum árið 1973-74 og hafði þá verið í tengingum stanslaust frá 1953 og fylgst með þróuninni. Það þótti ekki mikið að tengja T- múffu á straum og sennilega hefði enginn starfsmanna fengið að vera í þessu starfi ef þeim hefði dottið í hug að taka raf- magn af þó að verið væri að tengja heimtaug eða aðalstreng inn á annan streng. Þetta var allt gert með spennu. Menn lærðu að verja sig og það tókst yfirleitt vel en það gat orðið slys því allar tengingar varð að lóða saman á leiðarann. Starfsmenn höfðu ausur og helltu tini yfir tengingarnar. Tvisvar festi Halli sig í rafmagni. En allt fór vel og engin alvarleg vinnuslys hentu starfsmenn á þessum tíma sem voru líka í miklu samstarfi við jarðlínuverk- stjórana og dreifstöðvarnar. Ég kveð þennan aldna vin og starfsfélaga með þökk og virð- ingu. Við samstarfsmenn Halla hjá RR þökkum samfylgdina á liðnum áratugum og vottum að- standendum samúð okkar. Guðmundur K. Egilsson, fyrrverandi verkstjóri og forstöðumaður Minjasafns RR/OR. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa og langafa, GUÐBRANDS ÁRNASONAR, Fiskakvísl 13. . Áshildur E. Daníelsdóttir, Daníel Guðbrandsson, Birna Benediktsdóttir, Árni Guðbrandsson, Kristín E. Björnsdóttir, Guðbrandur Guðbrandsson, Sigrún Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát GUÐRÚNAR SVEINBJARNARDÓTTUR. . Arnþór Garðarsson, Soffía Arnþórsdóttir, Þrándur Arnþórsson, Álfheiður Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, SÓLVEIG KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR , Ína, Sundabúð, Vopnafirði, sem lést 28. desember, verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju föstudaginn 6. janúar klukkan 13. . Margrét Aradóttir, Ingólfur Arason, Stefanía Aradóttir, Guðmundur Arason og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma, langamma og systir, KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR kennari, lést á heimili sínu Sóltúni 2 mánudaginn 2. janúar. Útför fer fram í Guðríðarkirkju þriðjudaginn 10. janúar klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á SEM samtökin. . Sólveig Þórarinsdóttir, Þórður Þórðarson, Rannveig Þórarinsdóttir, Stefán Stefánsson, Katrín Mixa, Sigrún Þorsteinsdóttir, Örn Þorsteinsson, ömmubörn og langömmubarn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og systir okkar, SIGURBJÖRG PÁLÍNA PÁLSDÓTTIR, Borgarheiði 10 H, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni aðfangadags. Jarðsungið verður frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 6. janúar klukkan 14. . Eyjólfur Birgir Guðnason, Emína Sól Þórsdóttir, Axel Kristján Pálsson, Símon Arnar Pálsson, Guðmundur Birgir Pálsson, Herbert Oddur Pálsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR HAFSTEINN HJALTASON prentari, lést á heimili sínu 30. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 9. janúar klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. . Kristín Auðunsdóttir, Jóna Björg Hafsteinsdóttir, Fjölnir Björgvinsson, Helen Neely, Soffía Auður Sigurðardóttir, Viðar Árnason og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN SIGURRÓS SÖRLADÓTTIR, lést 23. desember. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju 10. janúar klukkan 13. . Einar Gunnarsson, Gunnar Einarsson, Hafdís Inga Gísladóttir, Rafn Einarsson, Una Eyrún Ragnarsdóttir, Þorlákur Ómar Einarsson, Sara María Karlsdóttir, Einar Sörli Einarsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðmundur Heimir Einarsson, barnabörn og langömmubörn. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.