Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 82

Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017 )553 1620 Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Veisluþjónusta Lauga-ás Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ósk mín er sú að áhorfendur fari út af sýningunni og rífist um innihald hennar á leiðinni heim í bílnum. Markmið okkar er að hreyfa við áhorfendum og fá þá til að spyrja sig spurninga, að því leyti er þetta krefjandi sýn- ing,“ segir Una Þorleifsdóttir, leikstjóri sýning- arinnar Gott fólk sem Þjóðleik- húsið frumsýnir annað kvöld. Verkið byggir á samnefndri skáldsögu Vals Grettissonar, sem sjálfur vann handritið í samvinnu við Unu og Símon Birgisson, sýningar- og hand- ritsdramatúrg Þjóðleikhússins. Leikritið fjallar um Sölva, sem fær óvænt bréf frá Söru, fyrrverandi kærustu sinni, þar sem hún sakar hann um að hafa beitt hana ofbeldi í sambandinu. Í stað þess að leita til dómstóla vill Sara, ásamt gamla vinahópi Sölva, notast við ábyrgðar- ferli til að ná fram réttlæti í málinu. Sölvi þarf að játa á sig glæpinn og leita sér hjálpar. Með hlutverk Sölva og Söru fara Stefán Hallur Stefáns- son og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Blaðamaður Morgunblaðsins settist niður með þeim og leikstjóra sýn- ingarinnar að lokinni æfingu fyrr í vikunni. Tökum ekki afstöðu „Þetta er áhugavert og hættulegt efni,“ segir Una. „Við erum á ákveðnu hættusvæði varðandi það hvað má og má ekki segja; hvernig fjalla má um hlutina og hvernig ekki; hvað er prívat og hvað opinbert,“ segir Stefán Hallur. „Við höfum haft það að leiðarljósi að taka hvorki afstöðu með Sölva eða Söru í sýningunni og fylgjum þar bókinni. Einn helsti kostur bókar- innar er einmitt að lesandinn sveifl- ast sífellt á milli þess með hvoru þeirra hann heldur,“ segir Vigdís Hrefna. „Lykilspurning verksins er hver er sekur og hver saklaus. Í persónu- legum samskiptum getur það reynst mjög grátt svæði, enda gildir hið fornkveðna: Sjaldan veldur einn þá tveir deila,“ segir Stefán Hallur. „Í öllum nánum samböndum, líka heilbrigðum nánum samböndum, fer fólk yfir mörk hvert annars í orðum og gjörðum. Síðan er spurningin hvernig fólk tekst á við það, hvort samskiptin lenda í vítahring sem endar í einhverju sem er ófyrirgef- anlegt eða hvort fólk nær að vinna sig út úr hlutunum. Ég get ekki ímyndað mér samband sem varað hefur leng- ur en þrjú til fjögur ár þar sem ekki hefur eitthvað komið upp á sem ein- hver hefur upplifað sem einhvers konar niðurrif, óþægilegar aðstæður eða neikvæða hegðun. Því við leyfum okkur yfirleitt að ganga mun lengra gagnvart þeim sem við elskum en öðru fólki. Ást er ákvörðun; við tök- um ákvörðun um að vera í ástarsam- bandi. Í því ljósi hlýtur maður að þurfa að taka ábyrgð á því hvernig maður hagar sér ef maður ætlar að elska. Okkur hættir til að gleyma því að við tókum meðvitaða ákvörðun um að elska einhvern og förum bara að haga okkur eins og fífl,“ segir Una. „Þó að þessi saga fjalli um elsk- endur eiga spurningar verksins er snúa að ofbeldi, mörkum og sátt líka við í annars konar samskiptum milli t.d. vina og vinnufélaga,“ segir Vigdís Hrefna og bendir á að uppsetning- arvinnan hafi kallað á að leikhóp- urinn skoðaði hvenær og hvernig fólk setti mörk. „Við getum öll á einhvern hátt tengt við þetta efni. Við erum alltaf í einhvers konar samskiptum þó að við séum sjaldnast að skoða meðvitað hvernig samskiptin eru eða hvert valdataflið í þeim er. Í verkinu skoð- um við hvernig ást getur breyst í hat- ur og orðið stórhættuleg,“ segir Stef- án Hallur. „Líka hvernig samfélagið tekur völdin. Því þau missa þetta úr hönd- unum,“ segir Vigdís Hrefna og vísar þar til ábyrgðarferlisins sem persón- ur verksins fara í. „Í grunninn felst ábyrgðarferli í því að styðja geranda og þolanda í því að leita lausna á sínum vandamálum með aðstoð sérfræðinga þar sem hvor um sig fær aðstoð til þess að takast á við hlutina. Hugmyndin sem slík er mjög góð, en hún þarf að vera praktíseruð prívat. Feillinn í ferlinu sem farið er í í bókinni og leikritinu er að það eru engir sérfræðingar sem styðja þau. Þegar ferlið er tekið út úr prívatsamhengi missa þau tökin á umræðunni enda ekki hægt að hafa stjórn á heilu samfélagi,“ segir Vigdís Hrefna. Enginn fæðist ofbeldismaður „Við virðumst vera fullkomlega ófær um að eiga vitibornar samræð- ur um hluti eins og ábyrgð og upplif- anir, mörk og markaleysi, á hverju maður beri sjálfur ábyrgð í sam- skiptum og hverju ekki. Í öðru sam- hengi er sumt af því sem Sölvi gerir þess eðlis að það er ekki hægt að segja að það sé ofbeldi nema ætla að teygja hugmyndina um ofbeldi mjög langt. Á ensku er annars vegar talað um „violence“ sem nær yfir líkamlegt ofbeldi og nauðgun og hins vegar um „abuse“ sem felur í sér þvingun eða misbeitingu. Í orðræðunni hérlendis tölum við alltaf um ofbeldi – allt er of- beldi. Þegar farið er að tala um að skattar séu ofbeldi og léleg fram- koma nauðgun hafa þessi orð ekki lengur neina merkingu,“ segir Una og bendir á að ofbeldismál kveiki mikla heift og reiði í samfélaginu sem leiði til fordæminga í stað lausna. „Það er vandamálið. Þessi mál snú- ast ekki bara um einstaklinginn sem beitir ofbeldinu eða þolandann. Þetta hlýtur líka að snúast um samfélagið og samfélagslega ábyrgð; hvernig við ölum upp drengi og stúlkur; hvernig við kennum samskipti við hitt kynið. Það fæðist enginn ofbeldismaður. Við nærumst hins vegar á því umhverfi sem við lifum í og erum mótuð af fyrirmyndum og sjónvarpsefni. Sam- félagslegir þættir móta þannig sam- skipti kynjanna, en hins vegar er sjaldnast horft á stóra samhengið í umræðunni,“ segir Una. „Sýningin, eins og bókin, reynir að leita svara við því hvort Sölvi hafi beitt Söru ofbeldi og þá hvers konar ofbeldi. Er það sem hann gerði of- beldi? Er hann þá ofbeldismaður?“ segir Stefán Hallur og tekur fram að fyrirgefningin og sáttin hafi einnig mikið verið til skoðunar hjá leik- hópnum. „Þetta snýst ekki bara um að fyrir- gefa hvort öðru – heldur líka að fyrir- gefa sjálfum sér. Hvenær öðlast mað- ur raunverulega sátt við sjálfan sig? Getur þú fyrirgefið sjálfum þér ef þú horfist í augu við það að þú hafir brotið á annarri manneskju? Leiðin að slíkri sjálfsskoðun er þyrnum stráð og vandasamt getur verið að ná sáttum,“ segir Stefán Hallur. „Líkt og maður tekur ákvörðun um að elska tekur maður ákvörðun um að fyrirgefa. Þú getur aldrei kraf- ið aðra manneskju um fyrirgefningu, ekkert frekar en þú getur sett ann- arri manneskju skilyrði til þess að hún hljóti fyrirgefningu. Gerandinn þarf ekki að sýna iðrun til þess að þolandi geti fyrirgefið. Maður á fyrir- gefninguna bara fyrir sjálfa sig, því í raun er þetta sjálfsvinna til að öðlast sálarró,“ segir Una. Sölvi gæti verið hver sem er Athygli vekur að allir leikarar verksins klæðast eins búningum og leikmyndin samanstendur af örfáum munum ásamt myndbandi, sem eru mínimalísk, en á sama tíma hönnuð til að hjálpa áhorfendum að skilja hvar atburðir fara fram og styðja við atburðarás og hugarheim persón- anna. Spurð hver hugsunin hafi verið þar að baki segir Una að markmið þeirra Evu Signýjar Berger, sem hannar útlit sýningarinnar, hafi verið að búa til ákveðið hlutleysi. „Við erum ótrúlega fljót að dæma fólk út frá klæðnaði, útliti og fram- komu. Við Eva sáum að annaðhvort myndum við setja upp stofudrama, sem okkur fannst ekki spennandi, eða finna aðra leið til að segja þessa sögu. Sölvi gæti verið hver sem er. Það skiptir ekki máli hvaða þjóð- félagshópi hann tilheyrir. Það skiptir því ekki máli í hvaða fötum þau klæða sig eða hvaða dót þau eiga. Það sem þau segja og gera er það sem skiptir máli. Það er grunnhugsunin í því að sviðið er svona bert. Við gefum áhorf- endum ekki færi á að lesa í neitt nema leikinn og það sem þau segja,“ segir Una. Auk Stefáns Halls og Vigdísar Hrefnu leika í sýningunni Lára Jó- hanna Jónsdóttir, Snorri Engil- bertsson, Baltasar Breki Samper og Birgitta Birgisdóttir. Dramatúrg og aðstoðarleikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir. Tónlistin er eftir Gísla Galdur Þorgeirsson og myndbands- hönnun er í höndum Rolands Hamil- ton. Jóhann Friðrik Ágústsson og Magnús Arnar Sigurðarson hönnuðu lýsingu. „Þetta er hættulegt efni“ Ljósmynd/Hörður Sveinsson Prívat Stefán Hallur Stefánsson, Snorri Engilbertsson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir í hlutverkum sínum. Una Þorleifsdóttir  Þjóðleikhúsið frumsýnir Gott fólk annað kvöld  Ofbeldi, mörk og fyrirgefning eru lykilþemu  Markmið leikhópsins er að taka ekki afstöðu heldur hvetja leikhúsgesti til að spyrja sig spurninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.