Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 92
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Síðasta kvöldmáltíð Tom Cruise …
2. Boðinn sími fyrir að hitta ekki
3. Svona fór Khloé að því að léttast
4. Edda geislaði á nýársballinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Rokksveitin Tappi tíkarrass, sem
reis úr löngum dvala 31. nóvember
sl., heldur tónleika í kvöld kl. 20 á
skemmtistaðnum Húrra, Tryggvagötu
22. Hljómsveitin var stofnuð árið
1981 af fjórum ungum mönnum og
gekk söngkonan Björk Guðmunds-
dóttir fljótlega til liðs við hana og
söng með Eyþóri Arnalds. Björk verð-
ur fjarri góðu gamni í kvöld en á svið-
inu verða, auk Eyþórs, þeir Guð-
mundur Þór Gunnarsson, Eyjólfur
Jóhannsson og Jakob Smári Magn-
ússon. Tappinn mun leika ný lög í
bland við gömul.
Morgunblaðið/Einar Falur
Tappi rokkar á Húrra
Serbneska
myndlistarkonan
Jelena Antic opn-
ar í dag kl. 17 sýn-
inguna Traces í
galleríi SÍM að
Hafnarstræti 16.
Verk hennar eru
óhlutbundin og
þema sýning-
arinnar að öll reynsla móti mann-
fólkið og að allir atburðir skilji eitt-
hvað eftir sig.
Traces í sal SÍM
Opinn samlestur fer fram á fars-
anum Úti að aka eftir Ray Cooney í
forsal Borgarleikhússins í dag kl.
12. Leikstjóri sýningarinnar er
Magnús Geir Þórðarson
en í lykilhlutverkum
eru Hilmir Snær
Guðnason, Ilmur
Kristjánsdóttir
og Halldóra Geir-
harðsdóttir.
Aðgangur er
ókeypis.
Opinn samlestur á
Úti að aka í hádeginu
Á föstudag Stíf vestanátt og él, en dregur úr vindi og éljum um
hádegi. Frost 0 til 7 stig. Vaxandi sunnanátt með slyddu eða rign-
ingu vestantil um kvöldið og hlýnar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan hvassviðri eða stormur með élj-
um og kólnandi veðri vestantil en austantil upp úr hádegi og styttir
upp austanlands. Hiti um og undir frostmarki í kvöld.
VEÐUR
Skemmtilegt
síðustu daga
Kristján Arason vill sjá íslenska
handboltalandsliðið enda á meðal
átta efstu á HM í Frakklandi. Guð-
laugur Arnarsson segir að HM sé
besta tækifærið til breytinga og
mörgum spurningum verði svarað í
Danmörku um helgina. Einar Andri
Einarsson segir að fróðlegt verði að
sjá hvernig stillt verði upp í varn-
arleiknum en staðan gæti svo
sannarlega verið betri stuttu
fyrir stórmót. »2-3
Vangaveltur um
landsliðið og HM
„Ég á fullt inni því mér tókst ekki að
leysa neitt út í fyrra. Ég náði bætingu
árið 2015 en í fyrra var ég oft alveg
við minn besta árangur, sem er
leiðinlegt. Bætingin kemur vonandi á
þessu ári. Ég meiddist aðeins í fyrra á
undirbúningstímabilinu,“ segir
kringlukastarinn ungi og Ólympíu-
farinn Guðni Valur Guðnason sem
ætlar sér stóra hluti á þessu ári. »4
Bætingin kemur
vonandi á þessu ári
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vilborg Arna Gissurardóttir býður í
samvinnu við Norðursiglingu á
Húsavík upp á tvær Grænlands-
ferðir í ágúst og september á næsta
ári. „Þetta verða könnunarleið-
angrar,“ segir göngugarpurinn, sem
er með mörg járn í eldinum eins og
til dæmis ferðir til Nepals og útivist-
ar- og markmiðanámskeið auk þess
sem hún hefur verið að vinna að bók
sem kemur út í vor.
Stöllurnar Vilborg Arna og Pálína
Ósk Hraundal hafa að undanförnu
eytt miklum tíma í að ganga frá úti-
vistarbók fyrir fjölskyldur. „Nú
sjáum við loksins fyrir endann á bók-
inni,“ segir Vilborg Arna.
Afskekktur æfingastaður
Í Grænlandsferðunum næsta
haust verður siglt á skonnortunni
Hildi um Scoresbysund, settar upp
tjaldbúðir í landi og gengið út frá
þeim um Stauning-Alpana. „Það er
svæði sem mjög fáir hafa komið á,“
segir Vilborg Arna. Hún minnir á að
áður en hún gekk á Suðurpólinn
fyrir um fjórum árum hafi hún æft
sig á þessu svæði eftir að hafa
kynnst því í ferðum með Norðursigl-
ingu.
„Ég fór þangað fyrst sumarið 2010
og þá ákvað ég að þetta yrði æfinga-
staður minn,“ rifjar Vilborg Arna
upp og bætir við að síðan hafi hún
farið þangað aftur nokkrum sinnum.
„Á þessu magnaða svæði vandist ég
því að vera ein þótt ég hafi verið
hrædd allan tímann,“ heldur hún
áfram og segir mikinn mun á því að
vera einn á ferð eða með félaga eða
hópi. „Þetta var minn skóli hvað það
varðar og ég hefði ekki viljað sleppa
þeirri reynslu en hún var skrýtin til
að byrja með. Ég held að það sé hollt
fyrir alla að prófa að vera einn með
sjálfum sér, þótt margir óttist það.
Réttur undirbúningur hefur mikið
að segja og ég miðla af reynslu minni
í þessum ferðum.“
Frá því að Vilborg Arna var 15 ára
hefur hún starfað meira og minna í
ferðaþjónustu. Hún er menntuð í
ferðamála- og viðskiptafræðum og
segist fá mikið út úr því að deila
reynslunni með öðrum. Til þessa
hefur hún verið með ferðir í sam-
vinnu við aðra en í mars býður hún í
fyrsta sinn upp á skipulagðar ferðir
á eigin vegum og er nánar greint frá
þeim á vefsíðu hennar (vilborg.is).
„Við förum til Nepals í mars,“ seg-
ir hún og bætir við að boðið verði upp
á tvær ferðir, göngu upp í grunn-
búðir Everest auk gönguferðar upp í
grunnbúðir og á fjallið Island Peak,
sem er um 6.200 m hátt.
Vilborg Arna segir að Nepal
standi sér mjög nærri. „Ég hef verið
á þessum slóðum í um sex mánuði
samtals frá því á árinu 2014 og þekki
það mjög vel. Ég tengist bæði svæð-
inu og fólkinu mjög sterkum
böndum. Draumur minn er að sýna
Nepal eins og ég upplifi svæðið, sýna
það sem heillar mig mest, og ég geri
það með Dendi, besta Sjerpavini
mínum, og fjölskyldu hans.“
Vilborg Arna á eigin vegum
Bók, námskeið
og ferðir til Nep-
als og Grænlands
Grænland Vilborg Arna Gissurardóttir þekkir vel til Scoresbysunds og Stauning-Alpanna.
Island Peak Dendi, Vilborg Arna og Tomasz Þór ljósmyndari.
Samsett ljósmynd
,,Það er ekkert nema gleði
hjá mér og þetta er búið að
vera virkilega skemmtilegt
þessa síðustu daga. Öll þessi
vinna sem ég hef lagt á mig
er greinilega að skila sér. Ég
gerði mér vonir um að kom-
ast í landsliðshópinn sem fer
til Kína og það var virkilega
ánægjulegt þegar ég fékk
símtalið um það að ég hefði
verið valinn,“ segir Viðar Ari
Jónsson, knattspyrnumaður
úr Fjölni. »4