Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 8
RÆÐAN Madonna hlaut heiðursverðlaun Billboard verðlaunanna sem kona ársins hinn 9. desember síðastliðinn. Hún tók við verðlaun- unum, spurði hvort hún mætti ekki leggja þau frá sér því þau væru svo þung og sneri við til að leggja þau ofan á flygil sem var fyrir aftan hana. Þá steig hún nokkur skref í hvora átt og glennti þar með fæturna til að vera nær hljóðnemanum og sagði: „Mér líður alltaf betur með eitthvað hart á milli lappanna á mér.“ Salurinn hló og við tók sterk ræða. Hún þakkaði þeim sem studdu hana í gegnum tónlist- arferil hennar sem spannar nú 34 ár. Hún kvaðst hafa spurt sjálfa sig hvað hún gæti sagt um það að vera kona í tónlistarbransanum. Hennar sýn væri að horfa ekki á listamenn út frá kyni enda hafi David Bowie ver- ið hennar aðalfyrirmynd. Hana hefði ekki órað ekki fyrir því að það væru einhverjar reglur í bransanum, enda listamenn á borð við David Bowie og Prins farð- aðir og á háum hælum með afturendann lafandi út. Hún sagðist hafa komist að því að það væru engar reglur fyrir stráka en sannarlega reglur fyrir stelpur. „Ef þú ert stelpa þarftu að leika leikinn. Hver er leik- urinn? Þú mátt vera falleg, sæt og kynþokkafull. Ekki sýna að þú sért gáfuð. Ekki hafa skoðun, að minnsta kosti ekki skoðun sem stangast á við óbreytt ástand. Þú átt að vera hlutgerð af karlmönnum og mátt klæða þig eins og dræsa en ekki eiga þinn dræsuskap sjálf. Og alls ekki, ég endurtek, alls ekki deila kynlífsfantasíum þínum með heiminum. Vertu það sem karlmenn vilja að þú sért. En það sem skiptir meira máli: vertu það sem öðr- um konum þykir viðeigandi að þú sért í kringum aðra karlmenn. Að lokum, ekki eldast, því að eldast er synd. Þú verður gagnrýnd, þú verður rægð og lögin þín verða ekki spiluð í útvarpinu.“ Madonna talaði um það þegar hún áttaði sig á því að konur hefðu ekki sama frelsi og karlmenn, hún hefði lesið neikvæða og ljóta gagnrýni um sig víða í blöðum. Ein fyrirsögn líkti henni við djöfulinn sjálfan. Í ræðunni minntist Madonna einnig á frægan femínískan rithöf- und vestanhafs, sem skrifaði að Madonna væri að rífa niður kvennabaráttuna með því að hlutgera sjálfa sig. „Ó,“ hugsaði ég með mér. „Svo ef þú ert femínisti þá hefurðu ekki kynhneigð, þú afneitar henni.“ Til fjand- ans með það, sagði ég. Ég er þá öðruvísi femínisti, ég er óþekkur femínisti.“ Eftir ræðuna stóðu áhorfendur upp og klöppuðu með tárin í augunum og myndband af ræðunni fór eins og eld- ur í sinu um veraldarvefinn. Madonna glæsileg á sviði í einni af sínum skemmtilegu mún- deringum. „Óþekkur femínisti“ MADONNA var á dögunum valin kona ársins af Billbo- ard og vakti ræða hennar, er hún tók við verðlaununum, mikla athygli. Madonna hefur alla tíð ögrað stöðluðum gildum samfélagsins og sætt mikilli gagnrýni úr öllum átt- um fyrir verk sín sem listamaður. Madonna Louise Ciccone er fædd 16. ágúst árið 1958 í Michigan í Bandaríkjunum. Foreldrar hennar eru Silvio Anthony Ciccone og Madonna Louise Fortin, en móðir hennar lést þegar Madonna var aðeins fimm ára. Madonna á sex systkini og tvö hálfsystkini. Hún var sjálfstæð og fór eigin leiðir og áttaði sig snemma á því að hún vildi ná langt í lífinu sem átti sannarlega eftir að rætast. Hún var ávallt með háar einkunnir í skóla og fékk námsstyrk til að fara í dansskóla í Michigan. Árið 1977 flutti hún til New York til þess að reyna fyrir sér í módernískum dansi. Eftir stutt ævintýri með hljómsveitunum The Breakfast Club og Emmy sem hún stofnaði með fyrrverandi kærustum komst hún á samning með Sire Records, sem er hluti af Warner Bros. stórveldinu. Fyrsta lagið sem hún gaf út var „Everybody“, árið 1982, og ári seinna „Burning Up“. Í júlí 1983 sendi hún frá sér fyrstu breiðskífuna sem bar titilinn Madonna. Upp frá því varð ekki aftur snúið og átti Ma- donna eftir að marka skil í tónlistarsögunni. Eftir að Madonna gaf út aðra breiðskífu sína, Like A Virgin, varð hún heimfræg. Stíllinn hennar, hárgreiðsla og klæðaburður var aðal-tískufyrirbæri níunda áratug- arins. Blúndutoppar, tjullpils yfir léttar buxur, netsokka- buxur, perlufestar og krossar um hálsinn, túberað hár með hárbandi og aflitað hár var það eina sem gilti. Hún var hins vegar mjög gagnrýnd fyrir ögrandi sviðs- framkomu, dónalega texta í lögum sínum og vildu margir banna spilun á titillagi plötunnar „Like A Virgin“ í útvarpi og einnig banna sýningu á myndbandi við lagið í sjónvarpi, þar sem texti lagsins var talinn „ýta undir kynlíf fyrir hjónaband og grafa undan fjölskyldugildum“. Á fyrstu verðlaunahátíð MTV tónlistarverðlaunanna, VMA, sem haldin var kom Madonna fram á sviði og söng tíðrætt lag. Hún var klædd í hvítan brúðarkjól með hvíta hanska og stóð ofan á risastórri brúðartertu. MTV hefur útnefnt at- riðið eitt af mikilvægustu augnablikum VMA. Madonna er klárlega ein af goðsögnunum. Hún hefur selt yfir 300 milljón plötur um víða veröld og hefur selt mest allra kvenkyns tónlistarmanna allra tíma samkvæmt Heimsmetabók Guinness og er í fjórða sæti yfir alla tón- listarmenn á eftir Bítlunum, Elvis Presley og Michael Jackson. Samtök plötuiðnaðarins, RIAA, skráðu hana þann kvenkyns rokklistamann 21. aldarinnar sem hefði selt mest allra og í öðru sæti yfir mesta kvenkyns tónlist- armann allra tíma í Bandaríkjunum. Enginn tónlistarmaður í heim- inum hefur haft meiri tekjur af tónleikahaldi en Madonna. Frá því hún hóf tónleikaferðir um heiminn árið 1990 hefur hún halað inn 1,31 milljarð dala eða um 149 milljarða króna. Madonna trónir á toppi lista tónlistarstöðvarinnar VH1 yfir 100 áhrifamestu konur í tónlist í heim- inum og er í öðru sæti á eftir Bítl- unum á lista Billboard yfir 100 áhrifamestu tónlistarmenn í heim- inum. gunnthorunn@mbl.is Í PRÓFÍL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.1. 2017 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum Á hinu árlega Metropolitan galakvöldi í New York, mætti Madonna með afturendann lítt hul- inn klæðum, eins og Prince forðum daga. Töffari. Madonna hélt áhrifamikla ræðu og sagði m.a. frá nauðgun og kynjamisrétti í tónlistarbrans- anum er hún tók við heiðurs- verðlaunum Bill- board. AFP Madonna við upphaf ferilsins. Frá umtöluðum tónleikum þeg- ar hún kom fram í brúðarkjól. Hin magnaða Madonna ’Hún var sjálfstæð og fóreigin leiðir og áttaði sigsnemma á því að hún vildiná langt í lífinu og það átti sannarlega eftir að rætast. FYRIRMYND Áður en Madonna sló í gegn voru flestar stórstjörnur karlkyns rokkarar, en frægð Madonnu ruddi veginn fyrir kvenkyns stór- stjörnur. Þetta sagði Tony Sclafani hjá MSNBC. Bítlarnir breyttu hugmyndafræði sólósöngvar- ans yfir í hljómsveit nokkurra tónlistarmanna en Madonna mætti síðan á svæðið og breytti því til baka, með áherslu á konur. Hún breytti sannarlega stöðlum sem til staðar voru yfir það hvað var að vera kona í tónlist. Að mati Fouz-Hernández, sem skrifaði bókina Ma- donna’s Drowned Worlds voru söngkonur á borð við Britney Spears, Christina Aguilera, Jennifer Lopez, Pink, Kylie Minogue, Spice Girls, Dest- iny’s Child og fleiri nánast eins og dætur Madonnu, þar sem allar þessar ungu konur höfðu alist upp við tónlist hennar og ákváðu að þær skyldu verða eins og hún. Boðskapur Madonnu til þeirra væri að konur gætu gert allt sem þær vildu. Madonna er án efa konan sem ruddi veginn fyrir konur í tónlist og er hún fyrirmynd margra poppsöngkvenna. Ruddi veginn fyrir konur í tónlist

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.