Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 38
Wadada er frábær listamað-ur. Ég nýt þess að starfameð einstöku fólki og hann er einn merkasti listamaður samtímans, og þá er ég að tala um öll listformin,“ segir bandaríski djass- píanóleikarinn Vijay Iyer um sam- starfsmann sinn, trompettleikarann Wadada Leo Smith, en þeir koma fram á dúetttónleikum í Hörpu á mánudagskvöldið næsta. „Það eru forréttindi að fá að eyða tíma og vinna með svo merkum og skapandi listamanni,“ bætir Iyer við. „Þar fyrir utan er hann mjög gjöfull og góður maður og hefur skapað rými í sínu lífi til að starfa með mér og fyrir það er ég þakklátur.“ Á síðasta áratug léku þeir saman í þekktum kvartett Leo Smith en koma þessi misserin fram sem dúett og fylgja nú eftir plötunni A Cosmic Rhythm With Each Stroke. Báðir eru þeir í hópi þekktustu djassleik- ara samtímans. Leo Smith, sem er hálfáttræður, er margverðlaunaður og virtur frumkvöðull í bandarískri djass- og nútímatónlist og einn af helstu trompetleikurum samtímans. Samtök djassblaðamanna völdu hann til að mynda tónskáld ársins 2015. Leo Smith hefur nokkrum sinnum sótt Ísland heim. Þetta verður hins vegar í fyrsta skipti sem hinn hálffimmtugi Vijay Iyer leikur á Íslandi. Kastljósið hef- ur skinið skært á hann á undan- förnum árum, til að mynda var hann valinn listamaður ársins 2015 hjá DownBeat-tímaritinu sem gaf nýj- ustu plötu hans undir eigin nafni, Break Stuff, fullt hús stiga. Iyer hef- ur starfrækt eigin hljómsveitir og leikið með öðrum, auk þess að vinna að sólóverkefnum. Hann er um þess- ar mundir staðartónlistarmaður við Metropolitan-listasafnið og prófess- or í tónlist við Harvard-háskóla. Tónlistarlegt traust Iyer bendir á að Leo Smith hafi und- anfarna áratugi verið hluti af AACM-samtökunum, Association for the Advancement of Creative Musicians, sem sé samstarfsvett- vangur frábærra listamanna og frumkvöðla í tónlist. „Margir þeirra hafa haft mikil og ómæld áhrif á tón- list samtíma okkar“ – og hann nefnir nokkra, Henry Threadgill, Roscoe Mitchell, Muhal Richard Abrams, Anthony Braxton, Amina Claudine Myers, George Lewis, og segir listann lengri. „Gegnum tíðina hef ég átt í allskonar samstarfi við mörg þeirra og það var í gegnum þetta samfélag sem við Wadada Leo Smith fundum hvor annan. Fyrst hafði ég tækifæri til að leika með honum í tvígang á 10. áratugnum, en svo náðum við aftur saman 2002 þeg- ar ég var fluttur til New York. Það var svo árið 2005 sem ég fór að ferðast um heiminn með Wadada. Hann hringdi þá í mig og bauð mér að leika með Golden Quartet; á fimm ára tímabili kom ég því fram með kvartettinum auk þess sem við gerð- um tvær plötur og komum fram í tónleikakvikmynd. Á þeim tíma styrktist sambandið milli okkar tveggja og visst tónlistarlegt traust þróaðist – bara með því að vinna saman þróðuðum við vissa aðferða- fræði og nálgun við tónlist sem við nutum að skapa. Og ákveðna næmni við að hlusta hvor á annan; að skapa saman í sameiginlegum tónheimi.“ Besti djasspíanistinn Undanfarin misseri hafa Iyer og Leo Smith starfað saman og komið fram sem dúett og hafa tónleika- gestir sem gagnrýnendur hrifist og ausið verk þeirra lofi. Gagnrýnandi The New Yorker segir til að mynda þá félaga skapa „blekkingu um víð- áttumikið rými þar sem tveir eingr- aðir stígar mætast“ og útkoman geti verið undursamleg. Rýnir All About Jazz segir tónlistina „hjúpaða ljúf- sárri gleði með broddi af depurð. Fallegri depurð,“ og þá hafa þýskir rýnar ekki sparað lofið um Iyer: „Besti djasspíanisti heims í dag,“ skrifaði gagnrýnandi Tagesspiegel, og í Die Zeit mátti fyrir þremur ár- um sjá svipaða staðhæfingu: „Djass- tónlistarmaður augnabliksins.“ „Í nokkur ár höfum við nú unnið áfram úr þeim tengingum og sam- eiginlegu upplifunum sem við finn- um í samspilinu,“ segir Iyer um samstarfið. „Og ég hef líka unnið með Wadada í skólum, bæði í Banff Centre í Kanada þar sem ég stýri tónlistarprógrammi og við Harvard í vor sem leið. Hann er sannur meist- ari! Ekki bara á trompetinn heldur líka hvað varðar allan skilning hans og túlkun á tónlist; í tónlistarsköpun og við hlustun á tónlist. Ég er alltaf að læra af honum.“ Breytist í hvert sinn þegar Iyer er spurður að því hvort aldursmunrinn á þeim Leo Smith, ein þrjátíu ár, skipti einhverju máli í samstarfinu þá hugsar hann sig um um stund. Segir síðan að það skipti máli hvað það varðar að hann treysti alltaf dómgreind Leo Smith fullkomlega. „En ég nálgast sam- starfið alls ekki eins og hann sé meistarinn og ég lærlingur. Við byrjum í raun öll okkar tónverk frá grunni og byggjum saman ofan á hann. Og Wadada hefur ætíð tekið tillögum og framlagi mínu fagnandi, enda vinnum við sem jafningjar.“ Tónlistin sem þeir félagar spinna er ekki skrifuð niður, segir Iyer, heldur mæti þeir til samstarfsins með allskyns efni og hugmyndir sem þeir vinni úr í sameiningu. „Þar byggjum við á reynslu okkar saman og ég veit að hann heyrir allt! Sumir þeirra tónlistarmanna sem ég hef haft þau forréttindi að leika með eru þannig að ég veit að hvað sem ég leik, þá muni þeir skilja það og bregðast við því. Og ná mögulega að gera það ennþá betra – og það er hæfileiki sem hefur ekkert með ald- ur að gera, heldur hvort þú hafir þroskað hæfileika þinn til að hlusta og það ná ekki allir að gera. Alls ekki allir tónlistarmenn. Ætli ég verði ekki að segja að það geri bara þeir bestu, elítan,“ segir hann og hlær. „Það eru þeir sem taka þær upplýs- ingar sem þeim berast í samspilinu alvarlega og geta bætt við þær. Sumir eru aðallega í því að monta „Sumir eru aðallega í því að monta sig af hæfi- leikum; ég hef ekki áhuga á slíku og samstarf okkar Wadada snýst alls ekki um slíkt. Við leggjum áherslu á að geta brugðist við því sem við heyrum meðleikarann vera að hugsa og gera, á einlægan og sannan hátt,“ segir Vijay Iyer sem er hér í heimaborginni, New York. Ljósmynd/Jimmy Katz Djassmenn augnabliksins Tveir af kunnustu djöss- urum samtímans, trompetleikarinn Wadada Leo Smith og píanistinn Vijay Iyer, leika í Hörpu á mánu- daginn kemur. Iyer segir félagann einn merkasta listamann samtímans. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is LESBÓK Alþjóðlegum degi fíflagangs er fagnað í Vonarstræti í dag kl. 14 með vís-un í fíflaganginn sem John Cleese gerði ódauðlegan með Monty Python. Dagurinn er tileinkaður öllum sem berjast fyrir bættri geðheilsu. Fíflagangur í Vonarstræti 38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.1. 2017

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.