Kiwanisfréttir - 01.12.1984, Page 4

Kiwanisfréttir - 01.12.1984, Page 4
Jólahugvekja „Ljósið skín í myrkrinu“ (Jóh. 1.5). En eru jól í vændum, hálíðin, sem engri annarri er lík að fegurð og helgi, hátíðin, sem kemur eins og vermandi bjartur geisli og rýfur skammdeigsmyrkur huga og heims. Hún er sem vin í eyðimörku vetrar- myrkurs skjól hins minnsta smœlingja jafnt sem hins voldugasta höfðingja. Hún lœtur drauminn um guðsríki á jörð rœtast ár hvert í nokkur dœgur. Hvílíkum töfrum eru jólin gædd, að þau fái valdið slíkri hugljómun, slíkum friði og birtu, slíkri ást ogyndi? Ljósið var að koma í heiminn og Ijósið skín í myrkrinu. í upphafi Jóhannesar guðspjalls er sleginn grunntónn þessarar miklu hátíðar lífs og Ijóss. Séu þeir sem miðaldra eru eða eldri spurðir, hvað þeim sé minnisstæðast úr jólahaldi bernskuára sinna munu margir nefna Ijósadýrðina. Á jólahátíðinni voru öll þau Ijós tendruð, sem tiltœk voru á heimi/um landsmanna. Bjart varð að vera í hverju herbergi og horni, og mikil voru viðbrigðin. Enginn gat hugsað sér jól, án þess að þeim fylgdi birta og Ijós hið ytra. Og öll litlu Ijósin voru tendruð honum til heiðurs, er fæddist í Betlehem austur og sem Jóhannes á við, er hann talar um Ijósið, sem skín í myrkrinu. Himnesku Ijósi sky/di fagnað með öllum tiltœkjum jarðneskum Ijósum. Já, jólin eru umfram allt hátíð /jóssins. Ljósi er fangað á tvennan hátt í ríki náttúrunnar og íheimi andans. Aðeðlisfari og upplagi er maðurinn Ijóssækinn, en á hinn bóginn myrkfæ/inn. Ein dýpsta þrá mannshugans beinist að Ijósinu. í endur- minningabók er greint fráþví, hversu mjög heimskautafarar, er þraukað höfðu af ein- semd og myrkur langra vetrarnótta, þráðu sólina og Ijósið. Því meirisem bjarmi aftur- eldingarinnar hækkaði á húmni, þeim mun meiri varð eftirvænting þeirra og Ijósþrá. Og þegar rauðgulur só/argeisli skaust síðan dag einn upp yfir hjarnbreiðurnar, þá upphófust mikil gleðilæti og sterkur fögnuður læsti sig um heimskautafarana. Hér er lýst hugrenningum þeirra, er myrkurgöngu ganga og þrá Ijósið heitara en allt annað. Og þessa þrá skiljum við Islendingar vel. Vegna hnattstöðu landsins höfum við orðið að búa við langan vetur og mikið skammdegismyrkur. Lengst af var þjóðin of fátæk, of umkomulaus til þes að geta lýst upp vistarverur sínar um vetrar- 4 K-FRÉTTIR

x

Kiwanisfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.