Kiwanisfréttir - 01.08.1985, Blaðsíða 27

Kiwanisfréttir - 01.08.1985, Blaðsíða 27
Gæði og þjónusta sem þú getur treyst Við hjá B.M. Vallá hf. leggjum áherslu á vandaða vöru og skjóta og örugga þjónustu; strangt gæðaeftirlit, fullkominn tækja- kostur og þaulvanir starfsmenn leggjast þar á eitt. Fullkomið framleiðslueftirlit Við starfrækjum eigin rann- sóknarstofu sem hefur með höndum reglubundið eftirlit og rannsóknir á öllum þáttum fram- Ieiðslunnar, allt frá hráefni til fullhrærðrar steypu. Enn fremur hefur byggingarverkfræðingur okkar náið samstarf við aðra sérfræðinga í framleiðslu og meðhöndlun steinsteypu og stöðugt er fylgst með nýjungum á því sviði. Þjónusta í fyrirrúmi Fullkomin og afkastamikil blöndunarstöð og traustur bíla- floti gera okkur kleift að afhenda steypuna á réttum tíma á bygg- ingarstað; skjót og örugg afhending sparar þér tíma og peninga. Breytingar í steypu- framleiðslu I kjölfar alkalískemmda sem fyrst komu í ljós árið 1976 voru settar strangar reglur í bygginga- reglugerð til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir í framtíðinni, öll steypuframleiðsla okkar er í samræmi við þessar reglur. Rannsóknir á vegum Stein- steypunefndar sýna, að hættan á alkalískemmdum er ekki lengur fyrir hendi eftir að íblöndun kísilryks í sement hófst og notkun fylliefna var breytt. Steinsteypa er því í dag sá val- kostur húsbyggjenda sem best hæfir íslenskri veðráttu og aðstæðum. Steinsteypa er fjárfesting - til frambúðar. Við hjá B.M. Vallá hf. bjóðum þér þjónustu okkar. B.M. VAUÁ'

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.