Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Blaðsíða 3
KIWANIS [ríttlr
25. árgangur 4. tbl. desember 1996
Útgefandi: Kiwanisumdaemið Ísland-Faereyjar
Ábyrgðarmaður: Örnólfur Þorleifsson, umdaemisstjóri
Ritnefnd:
Hermann Þórðarson, ritstjóri, Eldborg
Ásgeir B. Guðlaugsson, Heklu
Bjarni Guðmundsson, Eldey
Prentvinnsla:
Steindósprent Gutenberg ehf.
Kiwanisstarfinu lýkur aldrei
nnum
Nú um vetumætur, þegar þetta er skrifað, eru allir klúbbar farnir að
takast á við nýtt ár og er ekki úr vegi fyrir mig sem umdæmisstjóra
að bjóða nýjar stjórnir og embættismenn velkomna til starfa með þá
von í brjósti að þetta verði gott Kiwanisár. Þó svo að fyrri stjórnir hafi
skilað skýrslum um starfið á síðasta ári eru ekki til nein „áramót“ í
Kiwanishreyfingunni. Starfið heldur áfram og við Kiwanisfélagar
höldum áfram að vinna að verkefnum sem fyrri stjórnir byrjuðu á. Eins
er það að þeir sem á eftir okkur koma munu halda áfram verkinu sem
við höfum hafið. Við erum öll Kiwanisfélagar og vinir og viljum öll
Kiwanishreyfingunni það besta, okkur sjálfum til uppbyggingar að
betri einstaklingum og þeim sem eru í kringum okkur til farsældar. Við
munum áfram starfa fyrir og styrkja, þá sem minna mega sín. Ekki bara
hér innanlands heldur einnig erlendis og þá í samstarfi með Kiwanis-
félögum annarra landa. Nafli umheimsins er ekki í Reykjavík, Akra-
nesi, Akureyri eða Þorlákshöfn, svo einhverjir staðir séu nefndir. Við
störfum í alþjóðahreyfingu og tökum öll þátt í sameiginlegum verkefn-
um hennar, hvar sem við erum stödd í heiminum. Það sem brennur
mest á, er að ljúka því verkefni sem hafið var fyrir þremur árum og á
að ljúka 1998. Þar á ég við Joðverkefnið sem gengur út á það að út-
rýma joðskorti í heiminum. Leggjumst öll á eitt og klárum dæmið með
sæmd fyrir okkar umdæmi, Ísland-Færeyjar, og sýnum félögum okkar
í öðrum umdæmum að við erum best (miðað við höfðatölu). Að lokum
viljum við, ég og kona mín Brynja, senda öllum Kiwanisfélögum og
fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu jóla- og nýársóskir með von um
frið og farsæld á komandi ári.
Verum jákvœð og verum vinir
Ömólfur Þorleifsson umdæmisstjóri
Hækkun gjalda 4
Úr heimahögununi 5
Lagakrókurinn 6
Af heimskringlunni 7
Jólahugvekja 8
Fræðsluhornið 10
Heimsþingið í Nashville ... 11
Umdæmisþing 12
Konur innan Kiwanis 14
Reikningar K-dags 15
Kiwanisdúkkan 16
Þyrilsfréttir ...17
Vísnahornið 18
Keilir Keflavík 19
Kiwanishúsið á Olafsfirði .. 20
Afmælishátíð Súlna 21
Kirkjufell Grundarfirði .. .. ...22
Forsíðumynd:
Akraneskirkja
^kn^sto^d
HmÁÆtHis'inS
er opin mánudaga
og miðvikudaga frá
kl. 13-17 og fimmtu
daga frá kl. 16 -20,
september til maí.
Sími 588 3636
Fax 588 0036
KIWANISFRÉTTIR
3