Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Page 17
^þynUlritúr
Þar sem lítið hefur heyrst í okkur á þess-
um vettvangi á s.l. ári, er rétt að líta að-
eins um öxl og geta þess helsta í starfi
klúbbsins á liðnu starfsári.
Heimsóttir voru þrír klúbbar, Smyr-
ill, Korri og Katla. Það verður að segjast
eins og er að ekki tóku margir félagar
þátt í þessum heimsóknum og þyrftum
við að taka okkur á í þeim efnum.
Heimsóknir í aðra klúbba og aukin
kynni eru mjög nauðsynleg í öllu okkar
starfi.
Um áramótin fékk forsetinn okkar
Stefán L. Pálsson leyfi frá störfum, en
hann gerðist veiðieftirlitsmaður á haf-
svæði því sem kallað er „Flæmski hatt-
urinn“ og sá þar um að landinn færi eftir
settum reglum. Stefán hélt sambandi
við félaga sína með léttum bréfaskrift-
um og tók stundum félaga með sér í
huganum á flæmska hattinn. Kjörfor-
seti, Halldór Fr. Jónsson, tók við sem
forseti og hefur hann nú gegnt forseta-
embætti í Þyrli allra manna lengst.
Skógrækt
Hið árlega skógræktarátak Þyrils og
Sinawik var hinn 18. júní og þegar
gróðursetningu lauk var heilmikil grill-
veisla. Eins og áður hefur komið fram í
þessu blaði fékk Þyrill úthlutað landi frá
Akraneskaupstað í Miðvogslandi og
hefur gróðursetningin farið fram á
hverju ári um nokkurt skeið. Búið er að
skipuleggja þetta svæði sem framtíðar
útivistarsvæði.
íþróttamót
I tilefni af 50 ára afmæli IA fóru mörg
íþróttamót fram hér á Akranesi í ýmsum
greinum. Þar á meðal var Islandsmót
fatlaðra og sá íþróttafélagið Þjótur um
það af hálfu ÍA. Þyrilsfélagar aðstoðuðu
við framkvæmd mótsins. M.a. unnu þeir
við að koma fyrir borðum, stólum og
palli í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum,
vegna lokahófs og verðlaunaafhend-
inga. Og síðan komu þeir salnum í samt
lag aftur að lokahófinu loknu. Mótið
tókst vel í alla staði. Kötlufélagar gáfu
öll verðlaun á mótinu.
Fjáröflun og styrkir
Aðal fjáröflun klúbbsins sem er flug-
eldasala, gekk mjög vel og varð hagn-
aður af henni kr. i .094.706. Á aðalfundi
klúbbsins var úthlutað styrkjum að
upphæð 410.000 til sjö aðila.
Félagafækkun
Fækkun félaga er áhyggjuefni. Við upp-
haf starfsárs vorum við 41 en í dag erum
við 38. Tuttugu og sjö félagar hafa
gengt starfi forseta frá upphafi, þar af
eru sex hættir í klúbbnum. Hreyfingin
er sífellt að berjast við mál af þessu tagi.
Gegnumstreymi og erfiðleika við að fá
ungt fólk til starfa. Sömu spurningarnar
koma upp aftur og aftur. Er Kiwanis
ekki nógu aðlaðandi? Er starf í þjón-
ustuklúbbum orðið úrelt? Kostar þetta
ekki of mikið? En ef menn vilja láta gott
af sér leiða fyrir þá
sem minna mega sín,
þá er þetta vettvang-
urinn. Þjóðfélagið
hefur breyst og
klúbbarnir þurfa að
endurskoða starfíð í
ljósi þess. Það má
aldrei verða stöðnun í
starfi Kiwanis. Það
þarf að efla almanna-
tengsl og samstarf
við ljölmiðla.
Fræðsla um
vímuefnavarnir
Kiwanisklúbburinn Þyrill stóð ásamt,
Sinawik á Akranesi, Lions- og Lion-
essuklúbbum Akraness, Rotaryklúbbn-
um og Soroptimistaklúbbi Akraness,
fyrir fræðslufundi um vímuefna vamir í
Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akra-
nesi, þann 8. október s.l.
Fyrirlesarar voru Pétur Tyrfingsson
ráðgjafi hjá SÁÁ, Ólafur Guðmundsson
hjá forvarnadeild lögreglunnar í
Reykjavík og fulltrúi frá „jafningja-
fræðslunni.“ Á þennan fund var sérstak-
lega boðið unglingum á aldrinum 16-20
ára og forráðamönnum þeirra, en með
þessum fundi vildu þau félagasamtök
sem að honum stóðu leggja sitt lóð á
vogarskálarnar til að sporna gegn
neyslu vímuefna og álykta að „fræðsla
sé forvörn.“ Vonandi taka foreldar og
hin glæsilega æska þessarar þjóðar
höndum saman og reyna að uppræta
þesa vá. Fundurinn var vel sóttur.
Þyrilsfélagar og Jjölskyldur planla trjám.
Halldór Fr. Jónsson forseti Þyrils afltendir
Olafi Jónssyni fyrsta forseta Þyrils gjöf í tilefni
sextugs afmœlis lians.
Sameiginlegt verkefni
Hinn 30. október s.l. heimsótti okkur
svæðisstjóri Eddusvæðis, Gísli H.
Árnason, ásamt átta félögum sínum úr
Höfða. Gísli sagði frá starfi sínu og
ferðalögum í klúbba sem sumar hverjar
voru hálfgerðar hrakafallasögur og er
greinilegt að ýmislegt getur komið upp
á hjá mönnum sem þurfa að ferðast um
landið okkar og eru kannske ekki alveg
með staðhætti á hreinu. Gísli kynnti þá
hugmynd sína að efna til sameiginlegs
styrktarverkefnis svæðisins en með því
vill hann efla tengsl á milli klúbbanna í
svæðinu. Verkefnið er fatasöfnun handa
bágstöddum í Lítháen. Ákveðið var á
svæðisráðsfundi í Ólafsvík 10. nóvem-
ber að fara út í þetta verkefni, en þar
skírði Gísli nánar frá útfærslu þess.
Þyrilsfélagar samþykktu að taka þátt í
þessu verkefni.
Atlamót
Atlamótið í fjaðrabolta (badminton ) fór
fram í íþróttahúsinu á Akranesi 2. nóv.
s.l. Mót þetta hefur verið haldið árlega
um árabil, en það er til minningar um
Þyrilsfélagann Atla Þór Helgason er lést
af slysförum fyrir nokkrum árum.
Kiwanisklúbburinn Þyrill hefur séð um
og gefið öll verðlaun á þessu móti.
Maður mótsins að þessu sinni var
Skagamaðurinn Ámi Þór Hallgrímsson
úr TBR sem er landsliðsmaður í bad-
minton. Hann vann þrefaldan sigur í
mfl. (Þeir geta fleira en sparkað í bolta á
Skaganum). Mót þetta er mjög sterkt og
gefur stig til landsliðssætis. Forseti
Þyrils, Halldór Fr. Jónsson, afhenti
verðlaunin ásamt Ólafi Erni, syni Atla
Þórs heitins.
Þyrilsfélagar senda sínar bestu jóla-
og nýársóskir til allra Kiwanisfélaga og
fjölskyldna þeirra, með ósk um gott og
árangursríkt starfsár.
Akranesi í nóvember 1996
Þröstur Stefánsson, blaðafulltrúi.
KIWANISFRÉTTIR
17