Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Blaðsíða 20
Ósgarður hús Kiwanisklúbbsins titytd Ólafsfirðí
Árið 1989 keypti klúbburinn
Strandgötu 21, en það hús heitir
Ósgarður og var byggt árið 1925.
Efri hæð hússins er 68, 9 fermetrar
og neðri hæðin 66 fermetrar. Ekki
voru þá lil miklir sjóðir til húsakau-
pa. Félagar ákváðu þá að hætta að
hafa mat á fundum í tvö ár og greiða
matarverðið í hússsjóð. Nokkrar
endurbætur hafa verið gerðar á hús-
inu síðan klúbburinn eignaðist það.
Skipt var um alla glugga á efri hæð
og þak lagfært að hluta. íbúð er á
neðri hæð hússins, og er hún leigð
út. Félagsmálafundir, stjórnarfundir
og nefndafundir klúbbsins, eru
haldnir í húsinu. Þar er einnig fram-
kvæmd öll vinna er lýtur að fjár-
öflun og þar hefur Sinawik haldið
sína fundi. Einnig hefur húsið verið
leigt ýmsum félögum svo sem
Kiwanislnísið Ósgarður, Ólafsfirði.
Reiki, Ljósinu, Heilun, Línunni,
Skotfélaginu og Hestamannafélagi
Ólafsfjarðar, fyrir fundi og ýmsar
uppákomur. Af framangreindu má
sjá að húsið er mikil lyftistöng fyrir
starfsemi klúbbsins okkar.
Þorgeir Gunnarsson
Kiwanísklúbburinn Keilir
vnritií
/
Sýnið varúð!, böm á leið í skólann
REYKJANESBÆR FORELDRAR KIWANIS bornln tyrst o£ tromst.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ, forel-
drafélag skólanna í bænum ásamt
Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík,
ákváðu að setja upp borða yfir tvær
umferðarþungar götur í Keflavík.
Þetta var gert um svipað leyti og
nemendur hófu skólagöngu í haust.
Á borðunum stóð: Sýnið varúð!, böm
á leið í skólann, Reykjanesbær, for-
eldrar, Kiwanis, bömin fyrst og fremst.
Tilgangurinn var að vekja athygli
ökumanna sem þarna áttu leið um, á
því að sýna varúð og taka tillit til
ungra nemenda á leið í skólann.
Kiwanisklúbburinn Keilir tók með
ánægju þátt í þessu verkefni þar sem
einkunnarorð okkar eru Bömin fyrst
og fremst.
20
KIWANISFRÉTTIR