Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.07.2006, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 13.07.2006, Blaðsíða 13
ítnsnesvegur 33 ilegt umhverfi Nesbyggðar 4 IfcVClisTóqlStétan'riieð'- ^inum^gyi|SlÍrigi^y [GanJmmrJalll |Heiðarbolif2lBÍ Eydís Eyjólfsdóttir og Stefán G. Einarsson búa á Heiðarbóli 21 og þar hafa þau búið síðan þau byggðu húsið fyrir tuttugu árum. Þá voru þau efst í byggð- inni og lítið skjól fyrir veðri og vindum. Það er aldeilis búið að breytast því þau hafa komið sér mjög vel fyrir og garðurinn þeirra er nán- ast alltaf í skjóli. Eydís vinnur hjá Sparisjóðnum í Keflavík og Stefán er smiður. Hann hefur á undanförnum tíu árum smíðað palia í kringum húsið með að- stoð fjölskyldunnar. Einhver- staðar var því fleygt að smiðir nenntu aldrei að smíða heima hjá sér og hvort sem það er satt eða ekki þá á það alls ekki við um Stefán. Pallarnir kringum húsið eru glæsilegir og þar er einnig heitur pottur og alit til alls fyrir krakkana, dúkkuhús, róiur og trampolín. Ekki veitir af því Eydís og Stefán eiga íimm börn. Þau heita Andri Freyr, Einar Þór, Guðrún Mjöll, Lovísa íris og Tómas Elí. Þrátt fyrir að vera í góðu skjóli með tré allt í kringum húsið getur fjölskyldan notið sóiarinnar á öllum tímum dags, morgunsólin fyrir framan húsið, á pallinum við hliðina yfir daginn og fyrir aftan hús hjá pottinum á kvöldin. Viðurkenningin sem Eydís og Stefán hlutu var fyrir vei haldið hús og fallegan garð. Þau hafa ekki fengið álíka viðurkenn- ingu áður en þeim þykir þetta skemmtilegur heiður. Vinkona Eydísar játaði að hafa látið vita af þeim undanfarin tvö ár en þau segjast ekki vita hvort ein- hver hafi bent á þau þetta árið. Eydís segir að galdurinn við að eignast svo fallegan garð sé að byrja nógu snemma að pianta gróðri, því hvert ár sem því er frestað fer í súginn. Stefán bætir við að mikilvægt sé að nola góðan jarðveg svo gróðurinn nái að dafna vel. Þau segja að vinnan við að klára garðinn og pallana hafi tekið um tíu ár, og grínast með að tíu ára planið sem margir tala um sé loks búið hjá þeim. Ióhanna Guðrún Egilsdóttir og Skúli H. Hermannsson búa i gömlu, fal- legu bárujárnshúsi að Túngötu 15. heimsóttum Jóhönnu í blíðskapar- veðri sl. föstudag en þá var Skúli nýfar- inn í veiðiferð. Þau hafa búið í húsinu í aldarfjórðung og hafa sinnt endur- bótum á því í allan þann tíma. Viðurkenningin sem þau hlutu var fyrir sériega vel heppnaða endurbyggingu á gömlu húsi og lóð. Þau hafa ekki fengið verðlaun áður fyrir fráganginn en Jó- hanna segir að tímaritið Hús og hýbýli hafi eitt sinn fengið að koma í heimsókn, enda er glæsilegt um að litast inni í hús- inu jafnt sem utan þess. Myndir: Oddgeir Karlsson og Magnús Jónsson Sjá fleiri myndir á vf.is Þegar þau keyptu húsið var ekki sting- andi strá í garðinum og þau hafa þurft að græða hann alveg frá grunni og það hefur verið rnikil vinna. Nýjustu viðbæturnar er steinhleðsian sem þau settu á grunninn í fyrra, og húsið er einnig nýmálað. Bíiskúrinn þeirra var smíðaður fyrir tveimur árum, en líkt og hjá Eydísi og Stefáni hafa Jóhanna og Skúli sjálf smíðað allt kringum húsið. Skúli vinnur hjá hurða- verkstæðinu Víkurás og Jóhanna vinnur i fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Næst á dagskrá hjá þeim í sambandi við húsið ei að hlaðað skorstein, og Jóhanna segir að sífellt sé hægt að bæta við og betrumbæta

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.