Fréttablaðið - 29.08.2017, Síða 2
Veður
Norðlæg átt, hægari í dag og dálítil
rigning eða súld á N- og A-landi, en
annars úrkomulítið og bjart með
köflum sunnanlands. Styttir upp
víða fyrir norðan í kvöld. sjá síðu 20
Þreytti inntökuprófið
Vilhjálmur Hauksson var meðal þeirra drengja sem þreyttu inntökupróf í Drengjakór Reykjavíkur í Neskirkju í gær. Móðir hans, saksóknarinn
Kolbrún Benediktsdóttir, sést í bakgrunni fylgjast með. Kórinn skipa um sextán drengir á aldrinum átta til þrettán ára. Þeirra sem í kórinn komast
bíður það verkefni að syngja verkið Gloria eftir Vivaldi á erlendri grund. Kórstjórinn er Jóhanna Halldórsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
UP!LÝSTUR
Við látum framtíðina rætast.
vo
lk
sw
ag
en
.is
Nýr alrafmagnaður e-up! á aðeins
2.990.000 kr.
NOREGuR Dómsmálaráðherra Nor-
egs, Per-Willy Amundsen, segir
að íhuga eigi hvort vana eigi með
lyfjum alla þá sem dæmdir eru fyrir
kynferðisbrot gegn börnum.
Barnaníð sé meðal verstu glæpa
sem framdir eru. Skoða eigi alla
möguleika því að dæmi séu um
að þeir sem dæmdir eru fyrir
barnaníð brjóti aftur af sér
þegar þeir koma út í samfélagið.
Í Danmörku og Noregi eru
þeir barnaníðingar sem
vilja vanaðir með lyfjum.
Norski ráðherrann
vill ganga lengra
o g þ v i n g a
níðingana til
slíkrar með-
ferðar.
Í viðtali við sjónvarpsstöðina TV2
segir ráðherrann að menn eigi að
geta varið börnin sín fyrir skrímsl-
unum, eins og hann orðar
það.
Amundsen hefur áður
sagt að hann vilji taka
vegabréfið af Norð-
mönnum sem beita
börn kynferðisofbeldi.
– ibs
Barnaníðingar verði vanaðir
FERðaþjóNusta Dæmi eru um að
erlendir ferðamenn tjaldi aftan við
Keflavíkurflugstöðina við komu til
landsins. Síðast er vitað til að þetta
hafi gerst aðfaranótt sunnudags.
Gunnar Kr. Sigurðsson hjá Isavia
staðfestir að þetta hafi gerst nokkr-
um sinnum á sumrin. „Þetta er mjög
sjaldgæft, við verðum vör við þetta
annað slagið. Kannski örfá skipti
á sumri. Það er bannað að tjalda á
lóð flugstöðvarinnar. Við höfum
því vísað fólki frá og beðið það um
að finna aðra gistingu, en það hefur
ekki verið sektað,“ segir Gunnar.
Talsvert hefur verið um að
erlendir ferðamenn tjaldi á óhefð-
bundnum stöðum þar sem ekki má
tjalda. Í byrjun mánaðarins vakti
athygli þegar einn tjaldaði við hlið
Hörpu tónlistarhúss. – sg
Ferðamenn
tjalda bak við
flugstöðina
Upplýsingafulltrúi umhverfis- og auðlindaráðuneytisins heitir Bergþóra
Njála Guðmundsdóttir en ekki Bergljót Njála eins og sagði í blaðinu í gær.
Beðist er velvirðingar á þessari misritun.
LEiðRéttiNG
Per-Willy Amundsen,
dómsmálaráðherra
Noregs.
samFéLaG Lora og Eric Newman,
bandarísk hjón með fimm börn,
eiga vefsíðuna icelandwithkids.com
þar sem þau deila reynslu sinni af
fjölskylduferðum til Íslands.
Vefsíðan nýtur töluverðra vin-
sælda segir Eric, sem er með ferða-
handbók í smíðum um fjölskyldu-
ferðir til Íslands.
„Þetta er sjálfstætt verkefni hjá
okkur og ekki unnið í samstarfi við
neina ferðaþjónustuaðila á Íslandi,“
segir Eric en bætir við að Promote
Iceland hafi aðstoðað þau aðeins í
aðdraganda ferðarinnar sem þau
fóru hingað árið 2016. „En að öðru
leyti erum við alfarið á eigin vegum
með þetta verkefni.“
Newman-fjölskyldan kom fyrst
til Íslands árið 2009, þá með þrjú
börn og það fjórða á leiðinni. Eric,
sem starfar fyrir lítið fjármálafyrir-
tæki í nágrenni Philadelphiu, átti
langt sumarfrí sumarið 2016 og fjöl-
skyldan ákvað að fara í frí til Íslands
og vinna í leiðinni að hugmyndinni
um vefsíðuna sem kviknað hafði hjá
þeim. Fjölskyldan dvaldi á Íslandi í
12 vikur, ferðaðist í tvo mánuði og
vann að vefsíðunni síðasta mánuð
dvalarinnar.
Á síðunni má finna upplýsingar
um allt frá undirbúningi fjölskyldu-
ferðar til Íslands, hverju á að pakka,
hvenær best sé að heimsækja það,
áhugaverða áfangastaði, hvað eigi
að gera og hvað alls ekki að gera.
Þar er einnig orðabanki með hag-
nýtum orðum og orðasamböndum
á íslensku, meðal annars orðin
Ófært og Lokað með útskýringunni
„Ef þið sjáið skilti með þessum
orðum, snúið við, Íslendingar nota
ekki þessi orð nema þeim sé alvara.“
Aðspurður segir Eric leiðbeining-
ar Loru eiginkonu hans, um sturtu-
klefa íslenskra sundlauga, meðal
þess sem er hvað vinsælast. Leið-
beiningarnar varpa ljósi á upplifun
erlendra ferðamanna af hreinlætis-
reglum í íslenskum sundlaugum.
„Það sem þið hafið heyrt er satt,
þið þurfið að þvo ykkur nakin áður
en haldið er til laugar,“ segir þar
meðal annars. „Það er bannað að
sleppa þessum þætti. Nei, börnin
geta ekki sleppt þessu, alveg sama
þótt þau vilji ekki vera allsnakin
innan um annað fólk.“
Meðal þess sem Lora mælir sér-
staklega með er að sundlaugargestir
byrji á því þegar komið er í sund-
klefann að taka svæðið út og átta sig
á staðháttum, í stað þess að berhátta
sig strax, standa svo ráðvilltur fyrir
framan alla og allsnakinn í þokka-
bót.
Fjölskyldan stefnir á enn eina ferð
til Íslands næsta sumar, enda þurfi
að halda vefnum vel við og ljúka við
gerð bókarinnar.
adalheidur@frettabladid.is
Fræða ferðamenn um
berrassaða Íslendinga
Newman-fjölskyldan frá Philadelphiu í Bandaríkjunum heldur úti vefsíðu um
fjölskylduferðir til Íslands. Sundvenjur Íslendinga eru gríðarlega vinsælar á
vefnum, sérstaklega hvernig eigi að bera sig að. Ferðahandbók er í smíðum.
Hjónin Lora og Eric Newman með börnunum fimm. Fjölskyldan dvaldi á Ís-
landi í tólf vikur sumarið 2016 og safnaði efni á vefsíðuna.
Það sem þið hafið
heyrt er satt, þið
þurfið að þvo ykkur nakin
áður en haldið er til laugar.
Á vefsíðunni icelandwithkids.com
2 9 . á G ú s t 2 0 1 7 þ R i ð j u D a G u R2 F R é t t i R ∙ F R é t t a B L a ð i ð
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
8
-E
0
D
4
1
D
9
8
-D
F
9
8
1
D
9
8
-D
E
5
C
1
D
9
8
-D
D
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K