Fréttablaðið - 29.08.2017, Qupperneq 4
KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SKÓLAGLERAUGU
Umgjörð og gler með
glampa,- rispu og mó
ðuvörn á aðeins:
14.900 kr.
Samfélag Niðurstöður rannsókna
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur gefa
til kynna að neysla óþvegins salats
sé orsök matarsýkingar sem varð
þess valdandi að fjöldi kennara við
Hvassaleitishluta Háaleitisskóla
fékk magapest.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Landlækni. Þar segir að salat úr sömu
framleiðslulotu hafi líka verið borið
fram um svipað leyti í Hörðuvalla
skóla. Rannsóknir á óþvegnu salati
frá sama framleiðanda og það sem
boðið var upp á í báðum skólunum
hafa leitt í ljós hugsanlegan sýk
ingarvald, bakteríuna Aeromonas
hydrophila sem vitað er að getur
valdið veikindum eins og um ræðir.
Fresta þurfti skólasetningu í
Hvassaleitishluta Háaleitisskóla í
síðustu viku vegna þess að meiri
hluti starfsfólks skólans veiktist af
magapest, en alls veiktust 26 af 36
starfsmönnum skólans. Einkenni
magapestarinnar voru magaóþæg
indi og niðurgangur sem varir í
nokkra daga.
Í tilkynningunni segir að veikum
starfsmönnum sé ráðlagt að halda
sig heima meðan niðurgangurinn
gengur yfir og að auki í einn dag til
viðbótar. Ef einkenni vara lengur en
viku eða alvarleg veikindi koma upp
getur verið ástæða til að jafnvel ann
ars hraustir einstaklingar fái með
ferð. – tpt
Óþvegið salat olli niðurgangi kennara
Samfélag Ungir íslenskir frum
kvöðlar stefna að því að framleiða
Anitar örmerkjalesara til að einfalda
alla vinnu við skráningu og utanum
hald dýra. Stofnendur Anitar telja
núverandi ferli óskilvirk og tímafrek.
Þurfa þeir að selja 250 eintök af
örmerkjalesaranum í forsölu til þess
að geta sett framleiðsluna í gang. For
salan fer fram í gegnum Kickstarter
og vonast teymið á bak við lesarann
til að safna 40 þúsund dollurum,
eða 4,2 milljónum svo hægt verði að
hefja framleiðslu.
„Ég var úti í haga að sækja hest sem
ég á og varð þá vitni að mönnum í
erfiðleikum með að finna réttan
hest. Það tók þá nokkurn tíma að
finna þann rétta. Mér þótti fyndið
að fylgjast með þessu en karma bítur
mann yfirleitt í bakið og ég rölti í
burtu með vitlausan hest þennan
sama dag,“ segir Karl Már Lárusson,
stofnandi Anitar.
„Í ljósi þessarar reynslu ákvað ég
að setja saman hóp fólks og reyna að
Vilja nútímavæða skráningu hesta
Nokkur heilræði frá MAST við salatgerð
n Þvoið hendur ávallt
vandlega áður en
farið er að vinna
með matvæli. Illa
þvegnar hendur
geta borið með
sér alls konar
örverur, Ef sár eru
á höndum ætti að
nota hanska.
n Veljið ferskt hráefni
sem ekki er farið að
skemmast.
n Hreinsið allt græn-
meti vandlega.
n Skolið allt græn-
meti vandlega.
Mælt er með
skolun á þvegnu,
pökkuðu blaðsalati
fyrir neyslu.
n Notið sérstakt
skurðarbretti
fyrir grænmeti og
tryggið að öll áhöld
sem notuð eru séu
hrein. Krossmeng-
un getur haft alvar-
legar afleiðingar.
n Skorið grænmeti á
að geyma í lokuðu
íláti við 0-4°C.
nAllan mat sem
neyta á án þess að
hita hann fyrst á
að geyma í efstu
hillum kæliskápa. Salat þarf að meðhöndla eftir hand-
þvott. NordicPhotoS/Getty
Þegar unnið er með íslenska hestinn þá tengir snjallsímaforritið notandann
beint við gagnagrunn íslenska hestsins, WorldFeng. MyNd/ANitAr
finna einfalda lausn á vandamálinu.
Við höfum þróað tæki sem getur nýst
dýralæknum og ræktunarmönnum í
starfi. Nú er bara að fá þá til liðs við
okkur,“ segir hann bjartsýnn.
Fyrsta útgáfan kallast The Bullet.
Það er lítill örmerkjalesari og fer vel
í vasa. Lesarinn er notaður samhliða
snjallsímaforritum sem fyrirtækið er
einnig að þróa.
Með þessari samsetningu verður
hægt að skanna og vinna með upp
lýsingar fjölda dýra, svo sem hesta,
hunda og svín. – bb
Stjórnmál Theodóra S. Þorsteins
dóttir, þingflokksformaður Bjartrar
framtíðar, á rétt á biðlaunum jafn
háum þingfararkaupi í þrjá mánuði
þegar hún hættir sem þingmaður
um áramótin. Hún segist ekki ætla
að þiggja biðlaunin.
Theodóra, sem greindi frá yfir
vofandi brotthvarfi sínu af þingi í
Kópavogsblaðinu um helgina, ætlar
að einbeita sér að sveitarstjórnar
málum í Kópavogi þar sem hún er
einnig kjörinn bæjarfulltrúi. Þrátt
fyrir að hún verði aðeins búin að
vera þingmaður í rúmt ár þegar hún
hættir mun hún engu að síður eiga
rétt á biðlaunum til þriggja mánaða
upp á 1.101.195 krónur á mánuði.
Helgi Bernódusson, skrifstofu
stjóri Alþingis, staðfestir í svari við
fyrirspurn Fréttablaðsins að kjörnir
þingmenn þurfi ekki að uppfylla
nein sérstök skilyrði til að eiga rétt
á biðlaunum. Því skiptir engu máli
hversu lengi eða stutt þeir hafa setið
en þeir sem hafa setið tvö kjörtíma
bil eða lengur eiga rétt á biðlaunum
í sex mánuði.
„Sérhver þingmaður, sem hættir
þingmennsku, á rétt samkvæmt lög
unum, af hvaða ástæðum sem hann
hættir; sjálfviljugur, tilknúinn eða
hefur ekki lengur kjörfylgi,“ segir í
svari Helga.
Í samtali við Fréttablaðið kveðst
Theodóra ekki hafa vitað af þessum
rétti sínum á rúmlega 3,3 milljónum
Ætlar ekki að þiggja milljónir í
biðlaun eftir stutta þingsetu
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar, ætlar að hætta á þingi um áramótin
eftir rúmt ár á þingi. Hún segir að þingmennskan hafi ekki átt við hana. Þingmenn eiga rétt á þriggja mán-
aða biðlaunum sama hversu stutt þeir sitja. Hún hefur talað alls í tvær og hálfa klukkustund í ræðustól.
Störf Theodóru á Alþingi
n Meðflutningsmaður um stjórn
fiskveiða, brottfall og fram-
lengingu bráðabirgðaákvæða.
n Lagði fram eina fyrirspurn.
Innleiðing barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna.
n Flutti 35 ræður, veitti
24 andsvör og talaði alls í
rúmar 2,5 klst.
n Lagði ekki fram neina
þingsályktunartillögu.
n Var fjarverandi 18 sinnum við
atkvæðagreiðslu.
n Sagði já í 84 prósentum tilvika.
n Sem formaður þingflokks BF
fékk hún 15 prósenta álag
og var því með 1,26 milljónir
krónur í laun á mánuði.
Þetta bara hentar
mér ekki. Ég er góð í
stefnumótun og framkvæmd
verkefna og langar að vera
þar. Ég er ekki góð í að vera í
málstofu, hafa hátt og
niðurlægja fólk.
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
1.101.195
krónur á mánuði á Theodóra
rétt á í biðlaun í þrjá mánuði.
króna og kveðst hún ekki ætla að
nýta sér biðlaunin. „Ég hætti um leið
og þingi lýkur í desember og mun
ekki þiggja nein biðlaun. Ef ég væri
að þessu fyrir launin myndi ég hætta
í sveitarstjórn og vera á þinginu.
Ég er orðin þreytt á þessari launa
umræðu, þetta snýst ekkert um það.“
Ákvörðun Theodóru hefur vakið
mikla athygli en hún telur að fólk
hafi misskilið ummæli hennar um
áhrifaleysi þingmanna á óskilvirku
Alþingi. Hún hafi verið að tala fyrir
hönd þingmanna almennt. Hún
og þingmenn ríkisstjórnarinnar
hafi mótað sína stefnu í sínum
flokkum og komið þeim fyrir í ríkis
stjórnarsáttmálanum.
„Þar hef ég áhrif og er búin að
koma mínu á framfæri þar, en
hvernig eigum við að auka áhrif
almennra þingmanna til að það
verði raunverulegur árangur?“
Viðurkennir Theodóra að hún hafi
haldið sig til hlés á síðasta þingi
til að læra og fylgjast með hvernig
öllum þeim ótalmörgu þingmálum
sem þingmenn leggja fram vegnar.
Henni hafi ekki litist á það sem hún
sá.
„En ég hef ekki rætt þetta við ráð
herrana því þetta átti ekki að vera
aðalatriðið. Það er að ég brenn fyrir
Kópavogi og langar til að vera þar í
stefnumótun og framkvæmd verk
efna. Í þinginu er eitthvað allt annað.“
Á mannamáli hafi hún prófað
að vera þingmaður í ár og það hafi
hreinlega ekki átt við hana.
„Þetta bara hentar mér ekki. Ég er
góð í stefnumótun og framkvæmd
verkefna og langar að vera þar. Ég
er ekki góð í að vera í málstofu, hafa
hátt og niðurlægja fólk.“
mikael@frettabladid.is
ViðSkipti Samkeppniseftirlitið
hefur samþykkt kaup Kviku banka á
öllu hlutafé Virðingar. Þetta kemur
fram á vef Samkeppniseftirlitsins.
Fram kemur í niðurstöðunni að
að undangenginni rannsókn og með
hliðsjón af gögnum málsins sé það
mat Samkeppniseftirlitsins að sam
runinn hindri ekki virka samkeppni
og leiði ekki til myndunar markaðs
ráðandi stöðu. Þá leiði hann ekki til
þess að samkeppni á markaði rask
ist að öðru leyti með umtalsverðum
hætti. Því séu ekki forsendur til að
aðhafast vegna samrunans á grund
velli samkeppnislaga.
Greint var frá því í lok júní að
Kvika banki hefði keypt allt hlutafé
í verðbréfafyrirtækinu Virðingu.
Kaupverðið væri 2.560 milljónir
króna og yrði greitt með reiðufé.
Félögin verða sameinuð undir nafni
Kviku. – sg
Kvika má kaupa
Virðingu
nOrEgUr Hagfræðingur norska stór
bankans DNB, Kjersti Haugland,
spáir því að húsnæðis verð muni
halda áfram að lækka í Ósló til sum
arsins 2018.
Til skamms tíma verði því kostnað
urinn við að leigja minni en kostn
aðurinn við að taka lán til að kaupa
sitt eigið. Á það sérstaklega við þá
sem eru að kaupa í fyrsta sinn.
Hún spáir því að húsnæðisverðið
fari að hækka á ný árið 2019 og
2020. Það verði svo ekki fyrr en í lok
árs 2020 sem verð á húsnæði verði
svipað og nú í vor.
Fyrir nokkrum árum spáði bank
inn verðlækkun en þá hækkaði hins
vegar húsnæðisverðið. – ibs
Leiga ódýrari
en lántaka
2 9 . á g ú S t 2 0 1 7 Þ r i ð j U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
8
-F
4
9
4
1
D
9
8
-F
3
5
8
1
D
9
8
-F
2
1
C
1
D
9
8
-F
0
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K