Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.08.2017, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 29.08.2017, Qupperneq 11
Þann 15. maí 2008 var lögmað-urinn Róbert Árni Hreiðarsson dæmdur til þriggja ára óskil- orðsbundinnar fangelsisvistar fyrir alvarleg kynferðisbrot gagnvart fjór- um stúlkum. Þótti Hæstarétti brot hans stórfelld og taldi ótvírætt að hann væri ekki verður til að rækja þann starfa að vera héraðslögmaður né njóta þeirra réttinda. Í febrúar árið 2009 hóf hann afplánun í fang- elsinu á Akureyri en ári síðar var hann dæmdur fyrir sams konar brot gegn fimmtu stúlkunni, varð sá dómur ekki til refsilengdar. Eftir að hafa setið af sér tvo þriðju hluta dómsins var Róbert látinn laus árið 2011. Brotaþolar Róberts Árna og fjölskyldur þeirra gerðu engar athugasemdir við þessa framvindu þótt þeim þætti dómurinn vægur, refsivistin stutt og endurhæfing ekki sjáanleg. Líkt og flest venjulegt og hrekklaust fólk trúðu þau því að þjónar réttvísinnar hefðu rétt fyrir sér í einu og öllu. Fáránleiki valdsins Þessa trú misstu þau eftir að fréttir birtust um það í fjölmiðlum þann 15. júní 2017 að Hæstiréttur hafi dæmt Róberti Árna Hreiðarssyni lögmannsréttindi sín á ný undir nafninu Robert Downey. Þegar farið var að grennslast fyrir kom í ljós að hann hafði hlotið uppreist æru hjá forseta Íslands í þeim tilgangi að endurheimta þessi réttindi. Nú tók við atburðarás sem engan gat órað fyrir. Fáránleiki valdsins varð flestum ljós. Brotaþolum og fjöl- skyldum þeirra var tjáð að enginn bæri í raun ábyrgð á því nema lögin og hefðirnar að barnaníðingi sem á löngu tímabili hafði tælt til sín ungar stúlkur í krafti stöðu sinnar væri opinberlega afhent sú yfir- burðastaða á ný án þess að hafa viðurkennt brot sín. Ekki fyrir almenning Embættismenn, þrír dómsmála- ráðherrar, ríkisstjórn, forseti og ríkisráð afgreiddu málið. Síðar tók svo við hin súrrealíska meðferð stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem rannsaka átti allt ferlið í þeim tilgangi að skoða hvort breyta ætti lögum um uppreist æru. Formaður þeirrar nefndar hefur oftar en einu sinni séð sig knúinn til að nefna það opinberlega að verri glæpir hafi verið framdir en það sem Robert Downey gerði þessum stúlkum. Að sama skapi hefur hann marglýst því yfir að hvorki almenningi né þingmönnum komi þetta mál við og lætur í það skína að það tengist á engan hátt umræðunni um upp- reist æru. Afbrigði Það er þó deginum ljósara að málið er á komið á dagskrá tveggja þing- nefnda vegna þess að brotaþolar, fjölskyldur þeirra, vinir, ýmsir borg- arar og fjölmiðlar hafa ekki látið þagga niður í sér með þær kröfur að fá allar upplýsingar um málið. Það eitt ætti að gefa ærna ástæðu til að skoða nákvæmlega þetta mál ofan í kjölinn. Þar að auki er afgreiðsla á óflekkuðu mannorði Roberts Downey afbrigði í slíkum málum því það velktist um í tvö ár í ráðu- neytinu á meðan öll önnur mál voru afgreidd á innan við ári. Almenn- ingur á rétt á því að vita hvernig þeir þrír dómsmálaráðherrar sem sátu á stóli á þeim tíma afgreiddu það – auk allra annarra upplýsinga um framkvæmd þess. Týnd sönnunargögn? Síðan Robert Downey hlaut upp- reist æru hefur enn ein stúlkan stigið fram og lagt fram kæru fyrir sömu sakir og hann hefur áður verið dæmdur fyrir. Ekki er það til þess að auka traust á því fólki sem með valdið fer og á að gæta rétt- vísinnar að henni hefur verið tjáð að sönnunargögn úr málunum gætu verið týnd eða skemmd. Eitt þessara sönnunargagna er minnis- bók með nöfnum 335 kvenna sem gætu veitt enn meiri upplýsingar um umfang glæpa Roberts. Þessi bók þarf að koma fram í dagsljósið ásamt tölvu- og símagögnum sem gætu fært sönnur á mál hennar. Annar uppreistur níðingur Þann 25. ágúst 2017 birti Stundin í blaði sínu umfjöllun um annan barnaníðing með fyrirsögninni: „Nauðgaði stjúpdóttur nær dag- lega í 12 ár og fær uppreist æru.“ Sá maður hefur heldur aldrei viður- kennt brot sín þótt þau hafi verið sönnuð. Haft var eftir formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á vef Morgunblaðsins að brotið skipti ekki máli þegar dómur væri út tekinn. Hann hefur ekki komist að þeirri niðurstöðu eftir samtöl við brotaþola, svo mikið er víst. Misnotað vald Öll þau embætti sem æðst ætti að kalla í þjóðfélaginu hafa nú tekið þátt í því að þvo burt fortíð tveggja barnaníðinga á einum og sama deg- inum, reisa við æru þeirra og veita óflekkað mannorð gagnvart lögum. Nokkrir einstaklinga í þessum hópi hafa lýst því yfir að það sé þvert á sannfæringu þeirra. Þeim þyki jafnvel ógeðfellt að lögin og hefð- irnar hafi tekið af þeim brjóstvit og skynsemi. Hvorugur mannanna hefur viðurkennt brot sín. Þeir telja sig saklausa. Er rétt að þeir fái að misnota forsetann, ríkisráð og ríkisstjórn til að ná fram sínu eigin réttlæti? Réttlæti sem er í hróplegri mótsögn við samfélagslega hags- muni? Réttlæti manna sem iðrunar- laust misnotuðu vald sitt gagnvart börnum og níddust á þeim? Vantraust Það sem hér er í húfi er traust á því sem kallað hefur verið æðstu stofn- anir samfélagsins. Hefðir og lög hafa reynst úr takti við samtímann og ekki til þess fallin að þjóna hags- munum almennings og þá sérstak- lega barna. Þess vegna þarf að velta við hverjum steini. Það þarf að veita Enn um uppreist æru Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri Það sem hér er í húfi er traust á því sem kallað hefur verið æðstu stofnanir samfélags- ins. Hefðir og lög hafa reynst úr takti við samtímann og ekki til þess fallin að þjóna hagsmunum almennings og þá sérstaklega barna. Þess vegna þarf að velta við hverjum steini. Og svo er það krónan okkar enn og aftur, íslenzka krón-an, arðránskrónan, skisófren- íska krónan (stundum „hátt uppi“, stundum „langt niðri“). Ég minnist þeirra daga þegar ein íslenzk króna var svo þung á metum að henni var skipt niður í smærri einingar: einseyringa, tveggjeyringa og svo framvegis. Á kreppuárunum þóttumst við krakkarnir vel stæðir, lægi tíeyringur í vasanum. Fyrir tveggjeyring gat maður jafnvel keypt sér bolsíu. Sá okkar sem átti krónkall var grósseri. Ekki man ég til þess að sú króna sem hófst á einseyringi væri forðum höfð í hávegum sem eitt helzta kennitákn fullveldisins, en kannski stafar það af rangminni. Ég held þó sannast að fullveldiskrónan (sem slík!) hafi ekki orðið til fyrr en tals- vert leið á fullveldistímann og sér- sniðnir þjóðvinir fóru að láta að sér kveða. Hvað um það, eftir því sem fullveldisárunum fjölgaði fækkaði fullveldisaurunum, einseyringar hurfu, tveggjeyringar hurfu og síðan hinir smáaurarnir koll af kolli. Loks stóð eftir ein ný króna, því gamla krónan var leidd til slátrunar þegar tvö fullveldisnúll voru skorin af hundraðkallinum. Og nú dettur engum manni sú firra í hug að hafa fullveldisaura innan nýju fullveldis- krónunnar, enda bíður hennar hvort sem er fátt annað en líksöngur og amen. Sumarið 1930 var haldin geysi- mikil alþingishátíð á Þingvöllum við Öxará svo sem flestir vita. Af því tilefni voru gefin út vegleg frímerki til heiðurs löggjafarsamkomunni, landi og þjóð. Verðgildi eins merk- isins hljóðaði upp á þrjá aura. Það þótti henta eins og þá hagaði til um burðargjöld. Póstburðargjöld, skráð á frí- merki, fóru vitanlega sömu leið og smáaurarnir gömlu: eftir því sem fullveldisárunum fjölgaði fækkaði auramerkjunum. Og gott betur, því yfirvöld hafa meira að segja sleppt þeim tittlingaskít að tilgreina verð- gildi frímerkja í krónum, á merkj- unum er um þessar mundir einungis vísað til þyngdar póstsendingar í grömmum. Nú geta menn sagt hvort heldur sem þeir kjósa: að á þessu tiltekna sviði, í póstburðargjöldunum, hafi íslenzka krónan fallið úr hor ell- egar hitt að þarna hafi hún loks náð fyllsta og æðsta jafnvægi, risið til þeirra hæða sem kallast í dulvísi nirvana, en á því stigi leysast upp- allar útlínur, öll jarðarbönd og við tekur algleymi. Næsta ár verður þess minnzt að öld er liðin frá stofnun fullveldis hér á landi. Þá munu sjálfstæðismenn, framsóknarmenn, vinstri grænir og fleiri varðhaldsenglar okkar Íslend- inga vegsama krónuna sem aldrei fyrr. Og trúlega verður gefin út henni til lofs frímerkjasería með svo og svo mörgum fullveldisgrömmum, allt eftir þörfum. Auratal Hannes Pétursson rithöfundur Næsta ár verður þess minnzt að öld er liðin frá stofnun fullveldis hér á landi. Þá munu sjálfstæðismenn, fram- sóknarmenn, vinstri grænir og fleiri varðhaldsenglar okkar Íslendinga vegsama krónuna sem aldrei fyrr. Og trúlega verður gefin út henni til lofs frímerkjasería með svo og svo mörgum full- veldisgrömmum, allt eftir þörfum. almenningi allar upplýsingar um það hvernig Robert Downey hlaut uppreist æru til að komast að því hvernig lögin ættu í raun að vera. Á meðan formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar dregur flokkssystk- ini sín út í það forað að gera málið flokkspólitískt mun almenningur halda áfram að hafa hátt. Strax á morgun Eftir allt sem á undan er gengið er því ekki treystandi að lögunum um uppreist æru verði breytt fyrr en undir þau hefur verið ritað. Ekki er heldur víst hverjum er treystandi til að skrifa undir þau. Þó ætti að kalla saman Alþingi strax á morgun til að setja lög um að hver sá sem dæmdur hefur verið fyrir kynferðis- brot gagnvart ólögráða börnum sé ekki verður til að rækja þann starfa að vera lögmaður eða njóta þeirra réttinda – og lyfta á sama tíma leyndarhjúpnum af þessum skelfi- legu málum sem varða alla þjóðina. Ef við vitum ekki hvað fór úrskeiðis, hvernig getum við þá lagað það? 365.ISSÍMI 1817Framundan í beinni - stod2.is/sport *miðað við 12 mánaða bindingu 19:15Í KVÖLDMEISTARAKEPPNI HSÍ Tryggðu þér áskrift á aðeins 399 kr. á dag 11.990 kr. á mánuð i * S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 2 9 . á G ú S T 2 0 1 7 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 8 -E 0 D 4 1 D 9 8 -D F 9 8 1 D 9 8 -D E 5 C 1 D 9 8 -D D 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.