Fréttablaðið - 29.08.2017, Síða 17
Ein af grunnstoðum góðrar heilsu er svefninn. „Rann-sóknir sýna að röskun á
svefni eykur álag á líkamann
á svipaðan máta og kvíði eða
streita og má því segja að hann
sé undirstaðan fyrir heilbrigði og
vellíðan. Það er því jafn mikilvægt
að sofa vel eins og að hreyfa sig
og borða hollan og næringarríkan
mat,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir,
heilsumarkþjálfi hjá Artasan.
30% Íslendinga sofa of lítið
Fullorðið fólk þarf að meðaltali
að sofa í um átta klukkustundir,
sumir lengur og aðrir skemur
eða á bilinu 6-10 klukkustundir.
„Algengt er að svefntruflanir komi
með aldrinum og er talið að um
30 prósent Íslendinga sofi of lítið
og fái óendurnærandi svefn,“ segir
Hrönn. Hún segir ástæðurnar geta
verið margvíslegar og er algengt
að streita, áhyggjur, kvíði, óvissa
og þunglyndi valdi því að við
sofum illa. „Ýmsir sjúkdómar,
bæði líkamlegir og andlegir,
geta líka haft sín áhrif. Sömu-
leiðis ferðalög á milli tímabelta
og vaktavinna sem hvort tveggja
ruglar svefninn hjá mörgum.
Síðast en ekki síst skiptir máli
hvað við borðum, hvernig og
hvenær þegar kemur að því að fá
góðan nætursvefn.“
Svefnhormónið melatónín
Líkaminn framleiðir svefnhorm-
ónið melatónín þegar fer að
nálgast háttatíma. „Þetta
á að gerast á nátt-
úrulegan hátt en
hjá mörgum er eitt-
hvað sem truflar
þetta ferli, eins
og til dæmis það
sem talið er upp
hér að framan.
Þá eyðir fólk oft
löngum tíma í að
bylta sér í rúminu
og jafnvel pirrast
yfir að festa ekki
svefn. Amínó-
sýran L-tryptófan
sem fyrirfinnst í
mörgum matvæl-
um er byggingar-
efni melatóníns.
Það er einnig eitt
af innihaldsefnum
Lunamino svefnbætiefnisins,“
upplýsir Hrönn.
Róandi jurtir og
bætiefni
Auk L-trypt-
ófans
inniheldur
Lunamino
vel þekktar
jurtir sem
eru þekktar
fyrir róandi
og slakandi
áhrif. „Þessar
jurtir eru
melissa
sem hjálpar
okkur að
sofna ásamt
lindarblómi
og höfrum
sem eru
sérstak-
lega róandi.
Lunamino inniheldur einnig
blöndu af B-vítamínum og magn-
esíum.“
Hugum vel að
svefnaðstæðum
Um það bil þriðjungi manns-
ævinnar er varið í svefn. „Gott er að
koma sér upp rútínu fyrir svefninn
sem miðar að því að við slökum á
og gleymum aðeins amstri dagsins.
Mikilvægt er að það sé ávallt ferskt
og gott loft í svefnherberginu
okkar. Þá er gott að draga eins og
hægt er úr rafmagnstækjanotkun
ásamt því að sleppa alveg notkun
á tölvum, iPad og símum rétt áður
en farið er að sofa. Fáum okkur
frekar góða bók að lesa, hlustum
á róandi tónlist eða stundum ein-
hvers konar slökun eða íhugun.
Gætum þess einnig að hafa hljótt
í kringum okkur og dimmum her-
bergið vel þegar við ætlum að fara
að sofa.“
Svefn og yfirþyngd
Svefn og mataræði tengjast sterkum
böndum. Hrönn segir best að borða
létta máltíð á kvöldin. Það er líka
góð regla að borða ekki eftir kl. 19 á
kvöldin. Þá ætti að sleppa örvandi
drykkjum sem innihalda koffín og/
eða sykur og sömuleiðis sætindum
og ruslfæði, því þó svo að við sofnum
eru miklar líkur á því að við vöknum
aftur þegar blóðsykurinn nær lág-
marki. Einnig hefur svefnleysi áhrif á
seddu og svengdarhormónin leptín
og ghrelin sem ásamt brenglun á
streituhormóninu kortisóli auka
löngun okkar í orkuríkan mat.“
Hrönn segir svefnvandamál og
svefnleysi geta átt sér dýpri rætur en
svo að framangreind ráð hjálpi og þá
sé um að gera að leita til sérhæfðra
fagaðila.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús
og heilsuhillur verslana.
Góður svefn er gulli betri
Amínósýran L-tryptófan er byggingarefni svefnhormónsins melatóníns. Það ásamt
völdum jurtum og bætiefnum, sem öll eru þekkt fyrir róandi og slakandi áhrif, hjálpar
okkur að sofna auk þess sem nætursvefninn verður betri og samfelldari.
Algengt er að svefntruflanir komi með aldrinum og er talið að um 30 prósent Íslendinga sofi of lítið og fái óendurnærandi svefn
Lunamino inni-
heldur L-tryptófan
sem er m.a. byggingarefni
svefnhormónsins mela-
tóníns. Það innheldur
einnig róandi jurtir og
bætiefni sem getur reynst
afar hjálplegt við að
komast út úr þeim víta-
hring sem svefnleysi
getur valdið og hjálpað til
við að bæta svefninn og
svefnmynstrið.
Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsu- og
næringarmarkþjálfi
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Krill Oil
- öflugustu Omega 3 fitusýrurnar
Kristófer Fannar Stefánsson
„Eftir að ég fór að taka Krill olíuna finn ég
mjög mikinn mun á mér og þá sérstaklega
húðinni“
Krill olía er omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið
sem er hreinasta hafsvæði veraldar. Líkaminn á mjög auðvelt með að nýta sér
fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku.
Krill_Oil_5x10_20170825 copy.pdf 1 28/08/2017 09:58
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 . ág ú S t 2 0 1 7
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
9
-0
D
4
4
1
D
9
9
-0
C
0
8
1
D
9
9
-0
A
C
C
1
D
9
9
-0
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K