Fréttablaðið - 29.08.2017, Page 18

Fréttablaðið - 29.08.2017, Page 18
 Ég fer út að sigla þegar tími gefst til og það er alltaf jafn gaman. Ég hef líka keppt í skútusiglingum. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Katrín segir að stundum sé of gott veður til að sigla því betra sé að hafa nægan vind í seglin. MYND/ERNIR Yfir sumartímann má gjarnan sjá seglskútur á siglingu úti fyrir Reykjavík en þetta skemmtilega sport nýtur sívaxandi vinsælda. Hægt er að sigla yfir veturinn þegar veður gefst en siglingar eru fyrst og fremst sumar- sport. Katrín Guðmundsdóttir kynntist skútusiglinum fyrir um tuttugu og fimm árum og hefur stundað þær nokkuð reglulega síðan þá. „Ég fer út að sigla þegar tími gefst til og það er alltaf jafn gaman. Ég hef líka keppt í skútusiglingum í gegnum árin og þá er líf og fjör um borð. Upphaflega kynntist ég þessu sporti í gegnum manninn minn, Halldór Jörgensson. Hann var búinn að vera í siglingum frá því hann var krakki og hafði einnig leiðbeint á siglinga- námskeiðum. Eitt sumarið réð hann sig í áhöfn á skútu, ásamt vini sínum, og upp frá því fór ég að sigla reglulega með þeim. Hann kenndi mér réttu handtökin en þetta snýst fyrst og fremst um að kippa í réttu spottana og haga seglum eftir vindi,“ segir Katrín kankvís og bætir við að sér hafi strax þótt gaman að mæta niður á bryggju og fá að vera með. „Það er líka mikilvægt að vera tilbúinn til að taka við skipunum frá skipstjóranum og fara eftir þeim. Ein grunnregla er að ef maður kann ekki neitt þarf að passa að sitja hvorki né standa á neinum spotta því oft vill verða mikill hasar um borð og þá þarf allt að ganga alveg smurt fyrir sig,“ segir Katrín. Í vinnunni kemur hún einnig að siglingum en þó á annan hátt því hún starfar hjá Atlantik sem sér um að skipuleggja dagsferðir farþega skemmtiferðaskipa sem koma hingað til lands. Keppnir á þriðjudögum Katrín og Halldór keppa fyrir hönd siglingaklúbbsins Brokeyjar þegar þau taka þátt í mótum. Klúbburinn var stofnaður fyrir 46 árum og stendur fyrir vikulegum siglinga- mótum yfir sumartímann. Um er að ræða óformlega keppni sem hefst kl. 18 á þriðjudögum og tekur um tvo til þrjá tíma. Siglt er í kringum eyjarnar á sundunum og eftir bauj- unum í Víkinni. Yfir vetrartímann fækkar mótunum verulega en þó er hefð fyrir því að halda síðustu siglingakeppni ársins á gamlársdag. „Það kemur varla fyrir að keppni falli niður vegna veðurs. Þeir sem hafa áhuga á skútusiglingum geta einfaldlega mætt niður á bryggju hjá Brokey bak við Hörpu, og fengið að taka þátt,“ segir Katrín en hjá Brokey eru reglulega námskeið í undirstöðuatriðum siglinga, svo sem að seglbúa og sigla. Stundum of gott veður Katrín segist oft vera spurð hvort það sé virkilega hægt að stunda sigl- ingar hér við land og fólk trúi varla að svo sé, miðað við veðurfarið. „En það er hægt að sigla nær alla daga yfir sumarið. Stundum er meira að segja of gott veður fyrir siglingar því það er betra að hafa smá vind í seglin,“ upplýsir hún. Um tíma var Katrín í kvenna- áhöfn sem tók þátt í keppnum með ágætum árangri. „Við vorum nokkrar vinkonur sem ákváðum að setja saman í eina áhöfn og sigla og keppa saman. Ég held að þetta Togað í spotta Katrín Guðmundsdóttir lærði fljótt réttu handtökin þegar hún hóf að stunda skútusiglingar. Hún segir mikilvægt að kippa í réttu spottana og haga seglum eftir vindi. Viltu kaupa fasteign á Spáni? M a s a I n t e r n a t i o n a l - m a s a i c e l a n d @ g m a i l . c o m - w w w. m a s a i n t e r n a t i o n a l . c o m Flogið er með WOW-air til Alicante þann 14. september, nk. og heim aftur 18. september. Verð aðeins kr. 39.999 Innifalið er flug, hótel og uppihald, ásamt skoðunarferðum með reynslumiklum fasteignaráðgjöfum MASA. MASA International hefur starfað á fasteignamarkaði á Spáni frá árinu 1981 og hjálpað mörgum fjölskyldum að finna sína fasteign. Hafðu samband við kynningarfulltrúa MASA á Íslandi og bókaðu ferðina, Jón Bjarni 896 1067 - Jónas 842 1520 MASA International býður þér í skoðunarferð til Costa Blanca á Spáni, þar sem draumaeignina þína gæti verið að finna. hafi verið eina kvennaáhöfnin sem hefur keppt hérlendis og við bíðum eftir góðu tækifæti til að hittast á ný að keppa,“ segir Katrín. Innt eftir því hvað henni finnist skemmtilegast við siglingar segir Katrín það vera útiveruna og hreyf- inguna. „ Svo er gaman að keppa því þá myndast góð stemning um borð. Við hjónin eigum hlut í tveimur skútum. Önnur er keppnisskúta en Halldór er gallharður keppnis- maður og tók þátt í Íslandsmóti kjölbáta á dögunum. Hin er meira eins og fljótandi sumarbústaður og við höfum stundum gist í henni. Sú skúta er meira kósí. Við höfum leigt skútu á Spáni en draumurinn er að leigja skútu í Króatíu og sigla um á þeim slóðum.“ 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . áG ú S T 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 9 -1 2 3 4 1 D 9 9 -1 0 F 8 1 D 9 9 -0 F B C 1 D 9 9 -0 E 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.