Fréttablaðið - 29.08.2017, Page 29
Eftirtaldir Ambassadorar Meet in Reykjavík hafa á undanförnum mánuðum
tryggt komu meðfylgjandi ráðstefna til landsins. Um leið og við óskum þeim til
hamingju og þökkum fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf viljum við hvetja
þá sem hafa áhuga á því að kanna grundvöll fyrir komu hverskyns alþjóðlega
viðburða til landsins að hafa samband við okkur og stíga næsta skref.
Hanna Birna Kristjánsdóttir með Women Political Leaders - WPL Annual
Global Summit, Harpa, nóvember 2017 (300 gestir)
Þórir Harðarson með Alpha Reproductive Scientists Conference, Hilton, maí
2018 (500 gestir)
Inga Þórsdóttir með Orpheus Confernce on Creativity, Feedback and Diversity
in Doctoral Studies, Háskóli Íslands, maí 2018 (200 gestir)
Eyþór Ívar Jónsson með European Academy of Management – EURAM
Conference, Háskóli Íslands, júní 2018 (1200 gestir)
Svanhildur Óskarsdóttir með Saga Conference, Háskóli Íslands, ágúst 2018
(400 gestir)
Tómas Guðbjartsson með International Surgical Group Meeting, Harpa,
september 2018 (120 gestir)
Margrét Lísa Steingrímsdóttir með International Short Break Conference –
ISBA, Hilton, október 2018 (250 gestir)
Haraldur Sigursteinsson með European Conference on Soil Mechanics and
Geotechnical Engineering – ECSMGE Conference, Harpa, september 2019 (1000
gestir)
TIL HAMINGJU
ambassador@meetinreykjavik.is
Sími: +354 527 6666 / Sóltún 26, 105 Reykjavík
www.meetinreykjavik.is
www.meetinreykjavik.is/ourservices/ambassadorprogram
Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, fyrr-
verandi stjórnar-
formaður Meet
in Reykjavík, og
Þorsteinn Örn
Guðmundsson,
framkvæmda-
stjóri Meet in
Reykjavík, með
Ólafi Ragnari
Grímssyni, fyrr-
verandi forseta,
á kynningarvið-
burðinum í fyrra.
Þar var Ólafur
heiðraður fyrir
aðkomu sína að
Artic Circle ráð-
stefnunni.
MYND/SIGURÐUR
ANTON
Tilgangur Meet in Reykjavík Ambassador Club er að vera bakland Íslendinga, sem auka
hróður landsins í þeim tilgangi að
fá alþjóðlega ráðstefnur eða við-
burði til Íslands. Félagsskapurinn
var stofnaður árið 2014 og er
liður í því að styrkja Reykjavík og
nágrenni sem eftirsótta ráðstefnu-
og viðburðaborg að sögn Sigurðar
Vals Sigurðssonar, markaðsstjóra
Meet in Reykjavík. „Félagsmenn
eru titlaðir Meet in Reykjavík
ambassadorar og eru jafnan með-
limir í alþjóðlegum fagsamtökum
og sérfræðingar á sínu sviði innan
fræða-, viðskipta-, menningar- og
íþróttasamfélagsins. Persónuleg
tengsl og traustvekjandi kynn-
ingarefni skiptir afar miklu máli
þegar ákvörðun um að halda
alþjóðlega ráðstefnu eða annan
stærri viðburð er tekin. Með sam-
eiginlegu framlagi markaðsefnis
frá Meet in Reykjavík og faglegra
tengsla ambassadora er auðveldara
að sannfæra alþjóðlega skipuleggj-
endur um að á Íslandi séu góðir
innviðir og fagþekking til staðar til
að hýsa viðburðinn þeirra.“
Meet in Reykjavík heldur árleg-
an kynningarviðburð á starfsemi
félagsins fyrir þá sem vilja kynna
sér starfsemina og gerast með-
limir. Í ár er viðburðurinn haldinn
fimmtudaginn 14. september
kl. 15 í Silfurbergi Hörpu. Elísa
Read forsetafrú, Jón Atli Bene-
diktsson, rektor Háskóla Íslands,
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
og verndari Ambassadorklúbbsins,
og Þorsteinn Örn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Meet in
Reykjavík, ávarpa fundinn auk
þess sem Ari Eldjárn slær botninn í
viðburðinn.
Sterkt tengslanet
Ambassadorar leika jafnan mikil-
vægt hlutverk í að fá til landsins
fundi og ráðstefnur enda getur
persónulegt tengslanet, þekking,
reynsla og staða einstaklinga
innan alþjóðlegara samtaka vegið
þungt í umsóknarferlinu. „Þetta
eru allt einstaklingar sem eru
með sterk erlend tengslanet og
eru í þeirri aðstöðu að geta fengið
alþjóðlegar ráðstefnur eða við-
burði hingað til lands. Það geta
allir sótt um að gerast Meet in
Reykjavik ambassadorar en í dag
eru þeir 210.“
Hann segir framlag Meet in
Reykjavík ambassadora ekki vera
launað. „Umbun ambassadoranna
felst náttúrlega fyrst og fremst í því
að fá að taka þátt í að skipuleggja
alþjóðlega ráðstefnu hér heima og
þá um leið að styrkja tengsl innan
eigin fræðasviðs og vekja athygli
á starfi sínu hér heima. Fyrir
fræðimenn getur t.d. verið mjög
verðmætt að vekja athygli á rann-
sóknum sínum og að fá að kynna
þær fyrir erlendum kollegum
sínum. Einu sinni á ári eru valdir
heiðursambassadorar sem hljóta
þá nafnbót eftir að hafa landað
stærri ráðstefnum eða viðburðum
til landsins.“
Félagsskapur með svipuðu sniði
og Meet in Reykjavík Ambassador
Club er starfræktur víðsvegar í
heiminum segir Sigurður enda
þjóðhagslegur ávinningur af
Félag sem styrkir tengslin
Félagsskapurinn Meet in Reykja-
vík Ambassador Club hefur það
mark mið að styrkja Reykjavík og
nágrenni sem eftirsótta ráðstefnu-
og viðburðaborg. Árlegur kynningar-
viðburður á starfsemi félagsins verð-
ur haldinn 14. september í Hörpu.
starfinu ótvíræður. „Sem dæmi er
gert ráð fyrir því að 500 manna
ráðstefna skili um 200 milljónum
króna í gjaldeyristekjur. Það er því
ljóst að samstarf eins og Meet in
Reykjavík Ambassador Club býður
upp á er uppskrift að árangri og
ber framtíðin spennandi tíma í
skauti sér.“
Fundurinn 14. september er
opinn þeim sem hafa áhuga á
að taka þátt í starfsemi Meet in
Reykjavík Ambassador Club og
eru áhugasamir hvattir til að hafa
samband við skrifstofu Meet in
Reykjavík eða senda tölvupóst á
ambassador@meetinreykjavik.is.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 . Ág ú s t 2 0 1 7
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
9
-0
D
4
4
1
D
9
9
-0
C
0
8
1
D
9
9
-0
A
C
C
1
D
9
9
-0
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K