Fréttablaðið - 29.08.2017, Qupperneq 31
Það er mikill styrkur fyrir hótel að hafa góða fundaraðstöðu og þjónustan er afar vinsæl
meðal innlendra og erlendra
fundahópa,“ segir Ingibjörg Ólafs-
dóttir, hótelstjóri Radisson Blu
Hótel Sögu. Hún segir sérstöðu
Hótel Sögu liggja í persónulegri
þjónustu en fundarsölum er stillt
upp eftir óskum hvers og eins og
lausnir fundnar í samvinnu við
viðskiptavini. „Það er til dæmis
orðið æ algengara að fólk vilji
halda fundi, ráðstefnur og boð sem
þarfnast dálítið annarrar nálgunar
en hefðbundið er,“ lýsir Ingibjörg.
Hún segir styrk hótelsins einn-
ig liggja í frábærri staðsetningu.
„Við erum nálægt miðbænum og
háskólahverfinu og svo eru hér
næg bílastæði sem er mikill plús
nú á dögum.“
Hótelið býður upp á átta fundar-
sali sem allir eru nýuppgerðir. „Við
höfum uppfært allan tæknibúnað
og erum með allt það nýjasta sem
til þarf,“ segir Ingibjörg en salirnir
henta fyrir ráðstefnur, fundi sem
og hvers konar móttökur og veislur
af öllum stærðum og gerðum.
Súlnasalur fær
andlitslyftingu
Endurbætur standa nú yfir á Súlna-
salnum en þar verður aðstaða til
að taka á móti um 300 manns. „Við
erum að endurnýja allt glugga-
kerfið í hótelinu og í kjölfarið
verður mun bjartara í salnum en
áður. Salurinn allur verður upp-
færður og tæknivæddur eins og
best verður á kosið. Hann verður
notaður sem morgunverðarsalur
en er laus fyrir aðra notkun frá
hádegi,“ segir Ingibjörg sem er
mjög spennt yfir því endurnýj-
unarferli sem hótelið hefur verið
að ganga í gegnum. „Um leið og við
færum hótelið til nútímans upp-
hefjum við og nýtum skreytingar
og húsgögn sem hönnuð voru inn
í hótelið árið 1962. Við höfum til
dæmis látið smíða aftur húsgögn
sem notuð voru í fundar- og veislu-
sölum á þeim tíma.“
„Við hlökkum mikið til að frum-
sýna Súlnasalinn í nóvember þegar
jólahlaðborðin okkar sögufrægu
fara af stað.“
Nýr yfirkokkur
Nýr yfirkokkur, Sigurður Laufdal,
hefur tekið til starfa á Grillinu
og mun einnig koma að þróun
matar í húsinu. „Sigurður kemur
til okkar frá Geranium sem er
þriggja stjörnu Michelin-staður í
Danmörku. Hann er okkur raunar
ekki ókunnur því hann lærði að
hluta til hjá okkur og var aðeins
hjá okkur í sumar. Sigurður er
einstakur fagmaður og við erum
spennt að sjá nýjungarnar sem
hann mun koma með, hann er flott
viðbót við okkar góða teymi,“ segir
Ingibjörg. Hún bætir við að Grillið
sé einnig nýr og spennandi flötur
á fundamarkaðnum. „Þar er hægt
að vera með einkafundi yfir daginn
með flottasta útsýnið í bænum.“
Matur úr ranni eigendanna
Eins og flestir vita eru Bænda-
samtök Íslands eigendur hótelsins.
Ingibjörg segir tenginguna sterka
enda sé mikið af því hráefni sem
notað sé til matargerðar komið frá
íslenskum bændum. „Við leggjum
áherslu á íslenskan mat, ferskleika
og ekki síst rekjanleika matar.
Við viljum geta sagt fólki hvaðan
kjötið og hráefnið kemur sem við
bjóðum upp á.“
Góð tengsl við nær
umhverfið
Ingibjörg segir mikilvægt að halda
tengslum við fólkið í nágrenninu.
„Við viljum að fólki finnist nota-
legt að koma hingað inn og hafi
eitthvað hingað að sækja. Hér er
banki sem er mikið sóttur af fólki í
hverfinu, hárgreiðslustofa og rak-
ari sem hafa starfað hér í áratugi
og Hið íslenska bókmenntafélag
er nýflutt í húsið,“ segir Ingibjörg
en helsta nýjungin í þjónustu við
nágrannana er bakaríið sem var
opnað í vor. „Valdimar bakari
bakar allt brauð í húsinu en við
ákváðum að leyfa nágrönnum
okkar að njóta krafta hans líka
og erum með nýtt súrdeigsbrauð
í sölu,“ segir Ingibjörg sem telur
mikinn akk í því að fá nágrannana
inn á hótelið. „Erlendu gestirnir
okkar hafa afar gaman af því að
hitta Íslendinga.“
Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstjóri
Radisson Blu Hótel Sögu. MyNd/StefáN fundasalirnir eru af ýmsum stærðum og gerðum. MyNd/StefáN
Hægt er að bjóða upp á girnilegar veitingar í fundarsölum Radisson Blu Hotel Sögu. MyNd/StefáN
Allt brauð á hótelinu er bakað innanhúss.
Styrkur í góðri fundaraðstöðu
Radisson Blu Hótel Saga býður upp á hátæknifundarherbergi fyrir stóra sem smáa viðburði.
Fundar salirnir eru allir nýuppgerðir en unnið er að endurbótum á hinum sögufræga Súlnasal.
Veitingar fyrir smærri
og stærri veislur
&
hádegismatur fyrir
fyrirtæki
s. 626-6400
www.matarkompani.is
fÓLK KyNNINGARBLAÐ 9 Þ R I ÐJ U dAG U R 2 9 . ág ú S t 2 0 1 7
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
9
-1
2
3
4
1
D
9
9
-1
0
F
8
1
D
9
9
-0
F
B
C
1
D
9
9
-0
E
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K