Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.08.2017, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 29.08.2017, Qupperneq 32
Guðlaug P. Sigurbjörnsdóttir, þjónustu- og upplýsinga-stjóri, segir að nýlega hafi allir salirnir fengið nöfn sem sótt voru í götur í Breiðholtinu. Á vor- mánuðum tók Evelyn Rodriquez við rekstri kaffihússins en hún á rætur að rekja til Dóminíska lýð- veldisins. Kaffihúsið heitir Kaffi 111 og hefur strax eignast fjöl- marga aðdáendur enda maturinn einstaklega góður, blanda frá heimalandi Evelyn og Íslandi. Í hádeginu er hægt að fá ljúffengan mat og á laugardögum er boðið upp á dögurð. „Evelyn eldar alveg guðdómlegan mat og gestir okkar eru himinlifandi,“ segir Guðlaug og bendir á að þegar salur er leigður út í húsinu sjái Evelyn um allar veitingar. „Það er mun meira að gerast hjá okkur yfir vetrartímann en það er þó mjög notalegt að vera í Gerðu- bergi yfir sumartímann, hægt að fá sér kaffibolla á svölunum og njóta blíðunnar. Okkar helstu viðskiptavinir eru stofnanir borgarinnar og ríkisins auk smærri einkafyrirtækja sem standa fyrir námskeiðahaldi af ýmsum toga. Við erum með tvo góða sali á efri hæð fyrir fundi og ráðstefnur. Sá stærri nefnist Berg en hann hentar vel fyrir tónleika, ráð- stefnur og stóra vinnufundi. Salur- inn getur tekið allt að 120 manns. Minni salurinn, Bakki, tekur um 50 manns og er vinsæll fyrir almenna fundi og námskeið. Við getum alltaf aðlagað uppröðun í sölum og gerum okkar besta til að koma til móts við óskir viðskiptavina. Í boði er allur nútíma fundarbúnaður. Á neðri hæðinni er að finna sal- inn Fell, sem ekki allir vita af, en þar er gjarnan boðið upp á líkamsrækt, jóga og dans. Í þeim sal eru ekki húsgögn en speglar frá lofti niður á gólf á einum vegg. Síðan erum við með lítinn sal sem nefnist Skógar og tekur hann tíu manns í sæti við hringborð. Loks eru það Hólar sem taka 16-20 manns við stórt og veglegt fundarborð en gaman er að segja frá því að það kom á sínum tíma úr borgarstjórnarherbergi ráð- hússins. Þessi salur er ekki í útleigu um þessar mundir en verður þó tekinn í notkun aftur á næstu mánuðum. Gerðuberg er einstakt menn- ingarhús þar sem vel er tekið á móti gestum. Við erum með frábært bókasafn, bjóðum upp á fjölbreytt sýningarhald og áhugaverða viðburðadagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Stundum er boðið upp á hádegistónleika en tónlistar- menn láta mjög vel af flyglinum okkar. Í vetur ætlum við að gefa fólki kost á að leigja sal undir fermingu, skírn eða aðrar veislur. Salirnir eru þó eingöngu leigðir til veisluhalda með veitingum frá Kaffi 111. Kaffi 111 í Gerðubergi er opið alla virka daga frá 10-17 og á laugardögum frá 13-16. Hægt er að panta veitingar í sal í síma 771 1479. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Borgarbókasafnsins www.borgarbokasafn.is. Menningarhús sem iðar af lífi Gerðuberg er eitt af sex menningarhúsum Borgarbókasafnsins. Sannkallað fjölmenningarhús þar sem ávallt eru áhugaverðir viðburðir í gangi. Í húsinu eru nokkrir salir og fundarherbergi til útleigu. Evelyn Rodriquez og Guðlaug P. Sigurbjörnsdóttir í kaffihúsinu í Gerðubergi en þar er eldaður ljúffengur matur alla daga. MYNDiR/ViLHELM Einn af nokkrum sölum sem Gerðuberg leigir út. Þeir eru misstórir og henta mismunandi hópum. Fyrirlesarar málþingsins, sem á ensku nefnist The Many Faces of Pain, koma úr bók- menntafræði, heilbrigðisvísindum og gervigreindarfræðum. Auk þess taka þrír rithöfundar til máls. Markmiðið er að fá þátttakendur til að bera saman bækur sínar og efla þannig skilning á sársauka og þjáningu sem flestir þekkja af eigin raun. Hjúkrunarfræðingurinn Sigríður Zoëga er einn þriggja skipuleggjenda málþingsins. Hún starfar við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og í verkjateymi Landspítalans. Hún segir hug- myndina hafa kviknað hjá Berg- ljótu Soffíu Kristjánsdóttur, pró- fessor í íslensku, sem hefur lengi velt fyrir sér tengslum hug- og heilbrigðisvísinda. „Einn doktors- nemi hennar hefur verið að skoða sársauka og út frá því fórum við ásamt Hannesi Högna Vilhjálms- syni, hjá Gervigreindarsetri HR, að velta fyrir okkur hvort ekki væri hægt að setja saman málþing þar sem efnið væri skoðað frá sem flestum hliðum.“ Sigríður segir líkamlegan og tilfinningalegan sársauka tengjast órjúfanlegum böndum. „Við skynjum líkamlega verki en um leið verður til tilfinningaleg reynsla. Við fótbrot fer af stað ákveðið ferli í líkamanum en um leið verður til túlkun á verkjaboð- unum í heilanum. Við hugsum; hverju breytir þetta fyrir mig og hvernig líður mér.“ Sigríður segir margt spila inn í upplifun fólks af sársauka og að ýmislegt sé hægt að gera til að hafa áhrif á verkina. Þá er ekki aðeins átt við hefðbundin inngrip og verkjalyf heldur sé í raun nauðsynlegt að vinna með einstaklinginn í heild. Fimm lykilfyrirlesarar taka þátt í málþinginu, sem fer fram á ensku. Þeir koma allir að utan en auk þess taka fimmtán Íslendingar til máls. „Við sem tengjumst heilbrigðisvís- indunum nálgumst efnið að mestu út frá þessum hefðbundnu líkam- legu verkjum en síðan verða þarna fyrirlesarar sem tala um sársauka hjá samkynhneigðum og innflytj- endum svo dæmi séu nefnd. Þá mun sálfræðingurinn Christopher Eccleston, sem leiðir verkjarann- sóknir við háskólann í Bath, fjalla um sálfræði líkamlegrar skynjunar svo dæmi sé tekið.“ Sigríður segir markmiðið ekki síður að fjalla um um þjáninguna og mun Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir á líknardeild Land- spítala, meðal annars koma inn á þjáningu við lífslok. „Þá er ekki aðeins um að ræða líkamlega þján- ingu heldur líka þjáninguna sem felst í yfirvofandi andláti og þeim hugsunum sem bærast með fólki í þeim sporum.“ Rithöfundarnir Naila Zahin, Auður Ava Ólafsdóttir og Hallgrímur Helgason leggja svo sitt af mörkum en þau hafa öll fengist við sársauka og þjáningu, hvert með sínum hætti. Sjálf heldur Sigríður erindi undir yfirskriftinni Pain, is it a problem? Í starfi sínu á Landspítalanum hittir hún bæði inniliggjandi sjúklinga og fólk sem kemur inn á göngudeild og veitir ýmiss konar verkjameðferð, fræðslu og ráð- gjöf. „Við erum þó ekki síður að fylgja fólki eftir og fræða það um þá möguleika sem standa til boða ásamt því að veita stuðning, enda óhjákvæmilegt að sinna andlega þættinum samhliða þeim líkam- lega.“ Að sögn Sigríðar byrjar fólk oft á því að reyna að sannfæra hana um að það sé með verki. „Ef um er að ræða fótbrot eða botnlangakast sjást verkirnir yfirleitt utan á fólki. Þegar um langvinna verki er að ræða eru þeir hins vegar ekki eins sýnilegir og margir lenda í því að þeim er hreinlega ekki trúað.“ Sigríður segir bráða verki grunn- viðbragð sem hjálpi fólki að halda lífi. „Þeir gefa okkur merki um að eitthvað sé að svo við drögum okkur í hlé, hvílumst eða leitum aðstoðar. Þegar um langvinna verki er að ræða hætta þeir að vera þetta viðvörunarmerki. Tauga- kerfið fær engu að síður áfram boð um að eitthvað sé að og við finnum áfram til.“ Sigríður segir ýmsa sjúkdóma liggja að baki miklum verkjum. Má þar nefna HIV, gigt, sykursýki, krabbamein og ýmsa taugasjúk- dóma. Sömuleiðis áverka eftir slys og verki í tengslum við aðgerðir. „Stundum vitum við þó ekki hvað orsakar verkina. Fólk getur til dæmis verið með slæma verki í baki þótt ekkert sjáist á mynd. Það reynist mörgum erfitt því þá er engin haldbær skýring. Verkirnir eru eftir sem áður til staðar.“ Nýverið spurði Sigríður sjúkling hver upplifun hans væri af því að vera með króníska verki. Hann svaraði því til að verkirnir hefðu stolið frá honum lífinu. Hann gæti ekki gert það sama og aðrir og að verkirnir settu hann til hliðar í samfélaginu. Hann sagði þó erfiðast að verkirnir sæjust ekki utan á honum. Spurð hverjum málþingið sé ætlað segir Sigríður það opið öllum og ókeypis inn. „Við þjáumst öll og sumir segja þjáninguna jafnvel nauðsynlega til að finna tilgang lífsins. Við getum því öll speglað okkur í efninu.“ Allar nánari upplýsingar er að finna á hi.is. Sársaukinn hefur mörg andlit Málþingið Svipbrigði sársaukans verður haldið í Háskóla Íslands dagana 1. til 3. september. Þar kemur saman fólk úr ólíkum fræðigreinum og ræðir um sársauka og þjáningu frá ýmsum hliðum. Við þjáumst öll og sumir segja þján- inguna jafnvel nauðsyn- lega til að finna tilgang lífsins. Við getum því öll speglað okkur í efninu. Sigríður Zoëga Vera Einarsdóttir vera@365.is Sigríður starfar í verkjateymi Landspítalans. Hún segir líkamlegan og tilfinn- ingalegan sársauka tengjast órjúfanlegum böndum. fRéttabLaðið/ViLHELM 10 KYNNiNGaRbLað fÓLK 2 9 . áG ú S t 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 9 -0 D 4 4 1 D 9 9 -0 C 0 8 1 D 9 9 -0 A C C 1 D 9 9 -0 9 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.