Fréttablaðið - 03.10.2017, Síða 12
3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r12 S p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
sport
FótboLtI Álftnesingurinn Guðjón
Pétur Lýðsson átti frábært tímabil
með Íslandsmeisturum Vals í sumar.
Hann er búinn að vera lengi í brans-
anum og gengið í gegnum ýmislegt
og fyrsti Íslandsmeistaratitill hans
var því sætur.
Síðustu ár hafa ekki verið auð-
veld fyrir Guðjón Pétur því hann
greindist með sáraristilbólgu fyrir
nokkrum árum og því var tvísýnt
með framhaldið í boltanum.
Barátta í tvö ár
„Er ég kom heim frá Svíþjóð þá
greindist ég með þennan sjúkdóm.
Það er smá vesen. Ég þurfti að berj-
ast við hann í um tvö ár og hef ekki
fundið fyrir neinu síðan,“ segir Guð-
jón en þetta er bólga í yfirborðsslím-
húð ristils sem veldur þar sárum og
blæðingum. Sjúkdómurinn er lang-
varandi og kemur í köstum en þess
á milli er sjúklingur einkennalaus.
Köstin einkennast af blóðugum,
slímkenndum niðurgangi með eða
án magaverkja að því er fram kemur
á doktor.is.
„Það hefur verið hörð vinna hjá
mér að komast aftur á sama stað og
ég var í boltanum fyrir veikindin
og það hefur tekist. Síðustu ár hafa
verið mjög góð en þetta var ekki
gaman. Það þurfti mikið til að kom-
ast í gegnum þetta. Ég þurfti mikla
hjálp með mataræðið á þessum tíma
og það gerði gæfumuninn.“
Mataræðið gerði gæfumuninn
Þetta er sami sjúkdómur og Darren
Fletcher, fyrrverandi leikmaður
Man. Utd, var að glíma við en hann
komst í gegnum það eins og Guðjón
Pétur.
„Þetta lýsir sér þannig að maður
nær ekki að stýra eigin hægðum og
það er erfitt að halda mat niðri. Þar
af leiðandi verður mikill næringar-
skortur og orkuleysi. Ég held það
geti ekki margir stundað íþróttir
sem eru að glíma við þetta en mér
tókst það. Ég samdi við Lukku í
Happ og fékk mat á hverjum einasta
degi. Ég borðaði hollt og vel. Það
gerði meira fyrir mig en einhver lyf
sem stöðvuðu þetta á sínum tíma en
mataræðið var það sem skipti máli,“
segir miðjumaðurinn en íhugaði
hann á einhverjum tímapunkti að
hætta í fótbolta er veikindin voru
hvað verst?
Fór að huga að öðru
„Ég var aldrei á því að hætta þó
svo ég fengi það frá læknunum að
ég ætti að fara að huga að öðrum
hlutum. Ég gerði það reyndar og fór
að undirbúa aðra hluti í lífinu en
fótbolta. Ég fór að smíða og stofn-
aði tvö fasteignafélög. Fótboltinn
á samt allan minn hug og þetta er í
raun fyrsta sumarið eftir veikindin
sem ég gerði ekkert annað en að
spila fótbolta.“
Það er uppgangur hjá Guðjóni og
Valsmönnum og hann er strax orð-
inn spenntur fyrir komandi tímabili
á Hlíðarenda.
„Vonandi gefum við í og fáum
fleiri toppleikmenn og náum að
gera betur í Evrópukeppni,“ segir
Guðjón en var þetta hans besta
tímabil í boltanum?
Grín að ég sé ekki í liði ársins
„Nei. Ég hef átt mörg góð tímabil en
held ég fái ekki alltaf athyglina því
ég er svo mikið í stoðsendingunum
og hjálparsendingunum sem leiða
að marki. Ég vil meina að ég sé svo-
lítill Iniesta. Það var ekki vitað að
hann væri góður fyrr en hann
var orðinn 28 ára. Mark-
miðið hefur alltaf verið
að koma að í kringum
15-20 mörkum. Ég
held ég hafi komið að
19 mörkum í sumar
og kom að 21 marki
hjá Blikum á sínum tíma
þannig að ég hef átt nokkur
góð tímabil. Ég held ég sé mjög
vanmetinn og það er grín að ég sé
ekki í liði ársins í Pepsi-mörkunum
en það er gott grín.“
henry@frettabladid.is
Kom aldrei til greina
að hætta í boltanum
Guðjón Pétur Lýðsson greindist með sáraristilbólgu fyrir nokkrum árum sem
hafði mikil áhrif á feril hans. Hann vann bug á meininu með breyttu mataræði.
Álftnesingurinn segist vera mjög vanmetinn knattspyrnumaður.
Á fullri ferð. Guðjón Pétur er hér í leik með Valsmönnum í sumar en hann
kom að ansi mörgum mörkum liðsins í sumar. FréttaBlaðið/anton
Ég held ég sé mjög
vanmetinn og það
er grín að ég sé ekki í liði
ársins í pepsi-mörkunum en
það er gott grín.
Guðjón Pétur Lýðsson
Tímabilin hjá Guðjóni
Pétri í úrvalsdeild:
2017 – Valur
(1. sæti) 22 leikir
8 mörk 7 stoðsendingar
2016 – Valur
(5. sæti) 22 leikir
4 mörk 2 stoðsendingar
2015 – Breiðablik
(2. sæti) 20 leikir
4 mörk 6 stoðsendingar
2014 – Breiðablik
(7. sæti) 19 leikir
7 mörk 5 stoðsendingar
2013 – Breiðablik
(4. sæti) 20 leikir
6 mörk 7 stoðsendingar
2012 – Valur
(8. sæti) 20 leikir
1 mark 1 stoðsending
2011 – Valur
(5. sæti) 17 leikir
8 mörk 4 stoðsendingar
2010 – Haukar
(11. sæti) 21 leikur
3 mörk 2 stoðsendingar
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
4
-1
A
5
0
1
D
E
4
-1
9
1
4
1
D
E
4
-1
7
D
8
1
D
E
4
-1
6
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K