Fréttablaðið - 03.10.2017, Page 24
Nýja týpan af Volkswagen Polo er nú stærri en fyrsta kynslóð af Golf sem þykir sláandi tíðindi. Nýja kynslóðin er átta sentimetrum lengri en forverinn.
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
Kostir oG Gallar
VolKswaGeN
Polo
l FRamhjóladRiF
l 1,0 lítRa tSi benSínvél
l 95 heStöFl
eyðsla frá: 4,6 l/100 km í bl. akstri
mengun: 105 g/km CO2
hröðun: 7,2 sek.
hámarkshraði: 187 km/klst.
verð frá: 2.390.000 kr.
Umboð: Hekla
l Útlit
l innanrými
l aksturseiginleikar
l Hljóðlátur
l Útsýni gegnum framrúðu
l Plastnotkun í stokki
milli framsæta
volkswagen Polo hefur verið í framleiðslu hjá Volkswagen síðan árið 1975 og hefur
selst í yfir 14 milljónum eintaka.
Eins og oft vill verða með nýjar
kynslóðir bíla hefur Polo stækkað
og er nú orðinn nokkru stærri bíll
en fyrstu kynslóðir Volkswagen
Golf. Polo lengist nú um 8 senti
metra, breikkar en lækkar þó til
þaksins. Hjólhafið lengist þó meira
en heildarlenging bílsins og er nú
9,2 cm lengra á milli hjóla. Skott
rými Polo stækkar líka heilmikið,
eða um 71 lítra. Einna athygli
verðast með nýja kynslóð bílsins
er að nú má fá hann með stafrænu
mælaborði og minnist greinarrit
ari ekki að slíkt sé fáanlegt í öðrum
svo smáum bíl. Reyndar var fyrsti
bíllinn sem undirritaður sá með
stafrænu mælaborði lúxusbílinn
Jaguar XJ fyrir um 7 árum, en sá
fyrsti sem ekki telst til lúxusbíla
Volkswagen Passat fyrir ríflega
tveimur árum. Þetta er til marks
um það að tækni sem þótti stefnu
markandi og sást fyrst í rándýrum
lúxusbílum fyrir nokkrum árum
er nú komin í smábíla. Annað
óvenjulegt við Polo nú er að hann
má fá með 300 vatta hljóðkerfi og
telst það ekki heldur algengt fyrir
smábíla að hugað sé svo vel að
hljóðkerfinu.
Átta vélarkostir
Það verður ekki annað sagt en
Volkswagen hafi lukkast vel við
endurhönnun Polo, hann er í raun
hrikalega laglegur smábíll, nú með
örlítið hvassari línum og sport
legri. Polo mun nú aðeins fást með
5 hurðum og 3 hurða útgáfan er
horfin. Vélarúrvalið í Polo spannar
allt frá 65 hestafla vél til 200
hestafla í GTIútfærslu hans. Með
1,0 lítra vél má fá hann í 65, 75 og
95 hestafla útgáfum og sú öflugasta
þeirra með forþjöppu. Seinna meir
mun Polo bjóðast með 115 hestafla
útgáfu með sömu 1,0 lítra vél.
Allar 1,0 lítra vélarnar eru þriggja
strokka. Þá verður einnig í boði
150 hestafla 1,5 lítra og fjögurra
strokka vél. Vélin í tilvonandi
GTIútgáfunni verður 2,0 lítrar og
200 hestöfl og er sá bíll aðeins 6,7
sekúndur í hundraðið. Þá verður
einnig í boði metanútgáfa Polo, 90
Polo verður fullorðinn
Sjötta kynslóð
Polo hefur
stækkað, batnað,
fríkkað og býðst
nú í enn feiri út-
gáfum en áður.
Polo verður í
boði í GTI-út-
gáfu með 200
hestafla vél, en
kemur þó síðar.
hestöfl og 1,0 lítra TGIvél. Tvær
dísilvélar eru í boði, báðar 1,6 lítrar
og 80 og 95 hestöfl. Það verður því
um mikið vélarúrval að ræða fyrir
kaupendur Polo. Velja má milli
beinskiptingar og frábærrar DSG
sjálfskiptingar.
Mikið aukið innanrými
Með 8 cm lengri bíl og 9,2 lengra á
milli hjóla hefur innanrými bílsins
eðlilega aukist mjög mikið og fer nú
hrikalega vel um aftursætisfarþega,
sem og þá sem fram í sitja. Þegar
komið er þó inn í bílinn vekur samt
mesta kátínu að sjá TFT 8 tommu
active info skjáinn fyrir miðju mæla
borðsins sem leysir af hólmi takkager
fyrri kynslóðar. Eins og títt er með
Volkswagenbíla er innréttingin
bæði falleg, sérlega stílhrein og gerð
úr vönduðum hráefnum. Allt virðist
ferlega vel smíðað og sterklegt. Þessi
innrétting á greinilega að endast og
það gera þær vanalega í Volkswagen
bílum. Eins og gríðarlegt vélarúr
valið þá má velja um 5 mismunandi
gæði innréttingarinnar, allt eftir því
sem menn tíma í slíkt og munar þar
talsverðu í verði. Volkswagen Polo
er furðu vel búinn bíll tæknilega og
má nefna aðstoðarkerfi líkt og fram
skynjara með vöktun á gangandi
vegfarendum, blindsvæðaskynjara og
bílastæðahjálp, sem þó er valbún
aður. Upplýsinga og afþreyingarkerfi
eru líka til fyrirmyndar. Ef undan ein
hverju á að kvarta fannst mér útsýnið
út úr framrúðunni skert, þaklínan
of neðarlega og of fyrirferðarmiklir
Apóstar. Einnig er plastnotkunin á
stokknum milli framsætanna fremur
fátækleg.
Góður akstursbíll
og hljóðlátur
Eins og við mátti búast er akstur nýs
Polo fágaður og góður og í raun fannst
mér alltaf eins og ekið væri á Golf,
en það er ekki leiður samanburður.
Bíllinn er þéttur og stífur, enda stífni
yfirbyggingarinnar mikið aukin milli
kynslóða. Fjöðrunin er afar vel stillt
og það gleður mjög farþega hvað bíll
inn er hljóðlátur. Mjög auðvelt er að
fara hratt í beygjurnar á þessum Polo
og hann hallar sér afar lítið til hliðar
við það. Aksturseiginleikar þessa bíls
eru afar hentugir til borgaraksturs
og enn skemmtilegri er aksturinn ef
flýta skal sér milli borgarhluta. Nýr
Polo með mjög aukið hjólhaf er þó
orðinn miklu hæfari bíll til aksturs
í lengri ferðum og liggur eins og
klessa á þjóðvegunum. Þessir góðu
eiginleikar plús allt það ágæta rými
sem nú finnst í Polo, fyrir bíl sem
kostar á bilinu rúmar tvær milljónir
til um þriggja milljóna eftir vélar
kosti og innréttingu, hljómar bara
ansi vel. Það að eiga smábíl, eins og
Polo er skilgreindur, er ekki eins og
að eiga smábíl hér áður fyrr. Akstur
og hegðun þessa bíls býður upp á
ekkert verri tilfinningu en í mörgum
öðrum bílum í millistærðarflokki.
Ekki slæmt það. Von er á nýjum Polo
bráðlega í haust í Heklu.
Hægt er að fá 300 watta hljóðkerfi í nýjustu kynslóð Vw Polo.
Með allir þessari lengingu fæst skárra rými í skottinu. Vélarúrvalið í Polo spannar allt frá 65 hestafla vél til 200 hestafla.
3 . o k t ó b e R 2 0 1 7 Þ R i Ð j U d a G U R10 b í l a R ∙ F R é t t a b l a Ð i Ð
Bílar
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
4
-4
1
D
0
1
D
E
4
-4
0
9
4
1
D
E
4
-3
F
5
8
1
D
E
4
-3
E
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K