Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 20
Bjarni Benediktsson svarar eigin spurningu á þessari síðu (10.10.) um hvort allt hafi verið
betra á Íslandi áður fyrr. Skrifar að
hann vildi frekar búa núna á Íslandi
en á tímabilinu frá landnámi og fram
undir okkar daga. Ekki skil ég svarið
sem pólitísk rök. Það er jafn sjálfsagt
og innihaldsrýrt og svar við því hvort
maður vildi fremur nota nýjan bíl en
Ford T-módel frá 1910.
Bjarni spyr margra annarra
spurninga, m.a. um heilbrigðisþjón-
ustuna, velferðarkerfið, mennta-
kerfið, jafnrétti, samgöngur, tækni,
alþjóðlegt hjálparstarf og auðlindir.
Af greininni má draga þá ályktun
að við skipum okkur fremst meðal
þjóða og getum verið stolt. Öll ber
greinin með sér að höfundur lítur
kerfisbundið fram hjá ótal stað-
reyndum um alvarlega ágalla og
skort innan þeirra málasviða sem
hann velur sér. Hann virðist í litlu
sambandi við napran raunveruleika
mismununar, láglauna, lasinna vega,
bótaskerðinga eða húsnæðisskorts,
og hann horfir fram hjá stóru sprung-
unum í heilbrigðisþjónustunni og
gengst ekki einu sinni við fátæktinni
sem því miður er nöturleg staðreynd.
Vinstri hreyfingin – grænt fram-
boð boðar umbætur til næstu
fjögurra ára og svarar þannig ákalli
almennings. Við teljum gerlegt að
mynda félagshyggjustjórn sem fetar
aðrar og betri leiðir en tvær síðustu
ríkisstjórnir. Lykilatriði er að afla
ríki og sveitarfélögum tekna hjá
þeim sem sannarlega eru aflögu-
færir, hlífa öðrum þegnum, færa
fjármuni til þeirra og líka til marg-
víslegra umbóta sem kallað er eftir
en ekki stóð til að framkvæma sam-
kvæmt fjármálastefnu síðustu ára.
Í tveimur af tíu efstu tekjuflokkum
landsmanna eru meðalárstekjur 11
til 18 milljónir kr. Það eru 54,8% allra
tekna á landinu. Til samanburðar
eru meðalárstekjur í neðsta flokki
318 þúsund kr.
Í efsta flokki eru 20.860 einstakl-
ingar með alls 339 milljarða í árstekj-
ur. Aflögufært fólk? Fjármagnstekjur
hafa verið um 95-100 milljarðar kr. á
ári. Nálægt helmingur af þeim falla í
hlut 1-2% fjármagnseigenda. Aflögu-
fært fólk? Og enn fremur: Bankar og
stór fyrirtæki eru flest afar vel haldin.
Aflögufær?
Umbætur næstu fjögur ár
útheimta þor, yfirvegun, sanngirni
og stöðugleika. Um leið má bæta
eitt og annað í ríkisrekstrinum. VG
er í stakk búið til að leiða nauðsyn-
lega vinnu til úrbóta undir traustri
forystu Katrínar Jakobsdóttur, í
samvinnu við þá sem ná saman um
samfélagslegar lausnir í áföngum.
Er mest allt í góðu lagi?
Ari Trausti
Guðmundsson
í 1. sæti á lista
VG í Suðurkjör-
dæmi
Áratugum saman hefur í ræðu og riti verið lýst eftir því að atkvæði landsmanna skuli
vega jafnt, hvar á landinu sem þeir
búa. Hið sama skuli gilda um Jón
og séra Jón. Flestir þeir sem valdir
voru á stjórnlagaþing í allsherjarat-
kvæðagreiðslu í nóvember 2010
til þess að endurskoða stjórnar-
skrá Íslands voru manna á meðal
sagðir vera af höfuðborgarsvæðinu
en ekki landsbyggðinni. Þetta var
reyndar ekki rétt, heldur má segja
að aðeins örfá okkar kalli sig Reyk-
víkinga. Við tókum sæti í stjórn-
lagaráði 2011 eftir fordæmalausa
aðför að lýðræðislegri niðurstöðu
eins og allir þekkja. Samhljóða
niðurstaða stjórnlagaráðs var að
í 39. grein um alþingiskosningar
skyldi vera ný setning sem hljóðar
svo: Atkvæði kjósenda alls staðar á
landinu vega jafnt.
Efni greinarinnar var síðar sent
kjósendum til samþykktar eða
synjunar og hlaut yfirgnæfandi
stuðning. Þetta er ein af þeim
breytingum sem nauðsynlegt
var að gera á stjórnarskrá okkar
frá 1944, en hún byggir eins og
allir vita á aldagamalli danskri
stjórnarskrá sem ætíð stóð til að
endurskoða. Jafnt vægi atkvæða,
hvar sem við erum búsett, telst til
grundvallarréttinda í lýðræðisríki
og ekki er hægt að sætta sig við
annað fyrirkomulag. Sumir hamra
á því að núverandi stjórnarskrá
sé bara ágæt og hafi ekki þarfnast
endurskoðunar. Ég er ekki sam-
mála því. Dæmið að ofan er bara
eitt þeirra mála sem nauðsynlegt er
að sett sé fram með skýrum hætti í
stjórnarskrá.
Auðlindir landsins
Ákvæði um auðlindir landsins
er annað dæmi. Almenningur á
Íslandi hefur lýst sig sammála
niðurstöðu stjórnlagaráðs en í 34.
grein segir svo meðal annars: Auð-
lindir í náttúru Íslands, sem ekki
eru í einkaeigu, eru sameiginleg og
ævarandi eign þjóðarinnar. Eng-
inn getur fengið auðlindirnar, eða
réttindi tengd þeim, til eignar eða
varanlegra afnota og aldrei má selja
þær eða veðsetja.
Hagsmunaöfl í þjóðfélaginu hafa
hamast í ræðu og riti gegn þessu
ákvæði, almenningi ekki til mikill-
ar undrunar. Ákvæði af þessu tagi
hafa þingmenn við fyrri tilraunir til
að endurskoða stjórnarskrána ekki
getað komið sér saman um.
Sveitarfélög
Þriðja dæmið sem ég vil nefna er um
sveitarfélög. Stjórnlagaráð ákvað að
mikilvægi þeirra kallaði á sérstakan
kafla í stjórnarskrá en þar er meðal
annars kveðið á um að sveitarfélög
ráði sjálf málefnum sínum eftir því
sem lög ákveða, þau skuli hafa næga
tekjustofna til að sinna lögbundn-
um verkefnum og að samráð skuli
haft við sveitarstjórnir og samtök
þeirra við undirbúning lagasetn-
ingar sem varða málefni þeirra. Þá
er kveðið á um að með lögum skuli
fjalla um rétt íbúa sveitarfélags til að
óska eftir atkvæðagreiðslu um mál-
efni þess.
Þetta er enn eitt nýmælið. Það
er tvímælalaust kominn tími til að
kveða á um stöðu sveitarfélaga í
stjórnarskrá.
Lokaorð
Við fögnum fullveldi Íslands 1.
desember 2018 best með því að lúta
vilja íslensks almennings sem studdi
helstu niðurstöður stjórnlagaráðs.
Ég skora á kjósendur að kynna sér
hvaða afstöðu stjórnmálaöfl sem
nú leita eftir atkvæðum til setu á
Alþingi hafa og kjósa þau sem vilja
nýja og lýðræðislega stjórnarskrá
sem byggir á vel ígrunduðum til-
lögum stjórnlagaráðs.
Jón og séra Jón
Katrín
Fjeldsted
læknir og fyrr-
verandi þing-
maður Reyk-
víkinga
Nú á dögunum kom út skýrsla hagdeildar ASÍ um þróun á skattbyrði launafólks
á Íslandi á árunum 1998-2016. Í
skýrslunni kemur fram að ein af
meginástæðum þess að skattbyrði
hafi aukist í öllum tekjuhópum sé
að persónuafsláttur hafi ekki fylgt
launaþróun sem valdi því að skatt-
byrði lægri launa hafi aukist mest en
að auki hafi stuðningur vaxtabóta- og
húsaleigubótakerfisins minnkað og
að íslenska barnabótakerfið sé veikt.
Í lokaverkefni til ML-gráðu í lög-
fræði sem unnin var 2014-2015 voru
m.a. skoðuð þau áhrif sem sílækkandi
persónuafsláttur hefur haft á kjör
elli- og örorkulífeyrisþega frá upp-
töku staðgreiðslu 1988. Þar kemst
höfundur að þeirri niðurstöðu að
ekki einungis hafi persónuafsláttur-
inn ekki haldið verðgildi sínu heldur
greiði þeir lakar settu sífellt hærri
hluta tekna sinna í staðgreiðslu.
Þann 1. janúar 1988 var horfið frá
eldra skattkerfi með ýmsum frádrátt-
arheimildum fyrir einstaklinga og í
þess stað komið á staðgreiðslukerfi.
Eitt af því sem lá fyrir var að persónu-
afsláttur skyldi að fullu koma í stað
þeirra frádráttarheimilda sem heimil-
aðar höfðu verið. Var þar sérstaklega
litið til þess að kjör elli- og örorkulíf-
eyrisþega skertust ekki. Í greinargerð
með frumvarpi til staðgreiðslulaga
kom fram að þrátt fyrir að allar tekjur
lífeyrisþega yrðu skattskyldar þá
myndi það ekki leiða til hærri skatt-
byrði. Aukinn persónuafsláttur varð
til þess að einungis verulegar tekjur
lífeyrisþega annars staðar frá leiddu
til skattgreiðslu þeirra. Við upphaf
staðgreiðslu 1988 var persónuaf-
slátturinn það hár að lífeyrisþegi sem
fékk einungis elli- og örorkulífeyri frá
almannatryggingum gat haft rúmlega
þrefalda þá upphæð í tekjur annars
staðar frá, t.d. lífeyrissjóði, áður en
skattleysismörkum var náð.
Upphaflega var persónuafslátt-
urinn tengdur lánskjaravísitölu og
hækkaði tvisvar á ári í samræmi við
hana og átti það að tryggja að per-
sónuafslátturinn héldi verðgildi sínu.
Hins vegar hefur upphæð persónuaf-
sláttar að mestu verið handstýrt síðan
1995. Árið 2000 var svo komið að líf-
eyrisþegar voru farnir að taka þátt
í greiðslu útsvars og á árinu 2007
greiddu þeir allt útsvar sitt og tekju-
skatt til ríkisins. Í dag er persónuaf-
sláttur 52.907 kr. á mánuði og greiða
lífeyrisþegar tæp 14% af óskertum líf-
eyri almannatrygginga og fullan skatt
af öðrum tekjum sínum. Hlutfallið er
18% ef tekinn er óskertur lífeyrir með
heimilisuppbót.
Mest áhrif á þá tekjulægstu
Persónuafsláttur í dag er kr. 52.907
kr. en væri 62.121 kr. ef afslátturinn
hefði verið uppreiknaður miðað
við neysluverðsvísitölu frá upptöku
staðgreiðslu. Hins vegar hefur borið
nokkuð á þeirri umræðu að réttast
hefði verið að láta afsláttinn fylgja
launavísitölu sem var tekin upp 1989.
Launavísitalan var sett 100 stig í des-
ember 1988, og var komin í 592,2 stig í
desember 2016. Í upphafi árs 1989 var
persónuafsláttur kr. 17.842 á mánuði
og væri því, ef hann hefði fylgt launa-
vísitölu, kr. 105.660 á mánuði vegna
ársins 2017 og skattleysismörk nú kr.
286.032 á mánuði. Þess í stað eru mán-
aðartekjur umfram 142 þús. kr. skatt-
lagðar. Einstaklingur með 180 þús. kr.
tekjur á mánuði er að greiða 13 þús.
kr. í staðgreiðslu. Persónuafsláttur
hefur mest áhrif á þá tekjulægstu þar
sem um fasta upphæð er að ræða. Því
yrði veruleg hækkun hans mikil kjara-
bót fyrir lágtekjufólk.
Ekki má gleyma því að persónuaf-
sláttur, sem ákvarðaður var við upp-
töku staðgreiðslu 1988, var ekki gjöf
frá ríkisvaldinu heldur var hann það
gjald sem ríkið galt í skiptum fyrir
þær frádráttarheimildir sem fyrir
hendi voru í eldra skattkerfi. Hinn
nýi persónuafsláttur átti að tryggja
að dreifing skattbyrðar raskaðist ekki
sem neinu næmi við umskiptin og að
lífeyrisþegar bæru ekki skarðan hlut
frá borði. Því miður hafa ríkisstjórnir
frá 1995 ekki borið gæfu til þess, eins
og dæmin hér að ofan sýna, að gæta
þess að persónuafsláttur héldi að
fullu verðgildi sínu.
Persónuafsláttur hefur ekki haldið verðgildi sínu
Sigríður Hanna
Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi
Mig rak í rogastans þegar ég las grein í Fréttablaðinu 27. september sl. eftir Jón
Sigurðsson, fv. formann Framsókn-
arflokksins. Það voru ekki skoðanir
hans sem vöktu hjá mér athygli,
enda skoðanir yfirleitt ekki mjög
áhugaverðar, heldur meðferð Jóns
á staðreyndum. Þegar veruleikinn
er andsnúinn skoðunum einhvers
er framreidd skæld frásögn og hún
klædd í búning sannleikans. Þetta
eru falskar frásagnir.
Grein Jóns fjallar um ESB og hve
varhugavert sé að huga að endur-
vakningu umsóknar okkar um
aðild. Jón hefur fullan rétt á því
að hafa hvaða skoðun sem hann
vill um ágæti eða ókosti aðildar.
Hann virðist sjálfur vera bæði
með og móti. Það er hans mál.
Stundum virðist hann vera mikill
þjóðernissinni sem með engu móti
vill skerða fullveldi þjóðríkisins
en harmar um leið ömurlegt hlut-
skipti landsins í brimróti gengis-
óróa. Því Jón fullyrðir að innganga
okkar í bandalagið sé ekki á dag-
skrá lengur, þar sem forysta ESB
hafi skellt í lás. Jón segir: „Forysta
ESB hefur lýst því yfir að ekki verði
tekið á móti aðildarumsóknum á
næstu árum.“ Það er nú svo.
Í ræðu sem Juncker hélt 13. sept-
ember sl. sagði hann orðrétt: „It is
clear that there will be no further
enlargement during the mandate
of this Commission and this Parli-
ament. No candidate is ready. But
thereafter the European Union
will be greater than 27 in number.“
Hann segir að enginn umsóknar-
aðili sé tilbúinn, þess vegna verði
enginn tekinn inn í bráð, þ.e. á
yfirstandandi kjörtímabili. Það er
ekki ESB sem lokar dyrum heldur
við sjálf.
Þegar ríkisstjórn B+D sat að völd-
um og vandræðagangurinn vegna
loka umsóknarferilsins stóð sem
hæst, sagði þáverandi formaður
framkvæmdastjórnar ESB að engar
nýjar umsóknir yrðu afgreiddar.
Þegar hann var spurður um aðild-
arumsókn Íslands svaraði hann
því til, að hvað ESB snerti væri hún
enn í gildi, þ.e. ekki þyrfti að senda
inn nýja umsókn heldur vekja þá
gömlu af svefni.
Heimssýnarfólk vitnaði sífellt í
fyrrihluta yfirlýsingar formanns-
ins og gáfu vísvitandi ranga mynd
af staðreyndunum. Leitt er að sjá
Jón feta sama öngstigið.
Að segja rangt frá
Þröstur
Ólafsson
hagfræðingur
Helga Jónsdóttir
ML frá Háskól-
anum á Bifröst
Í upphafi árs 1989 var per-
sónuafsláttur kr. 17.842
á mánuði og væri því, ef
hann hefði fylgt launavísi-
tölu, kr. 105.660 á mánuði
vegna ársins 2017 og skatt-
leysismörk nú kr. 286.032
á mánuði. Þess í stað eru
mánaðartekjur umfram 142
þús. kr. skattlagðar.
2017
2017
Þegar veruleikinn er and-
snúinn skoðunum einhvers
er framreidd skæld frásögn
og hún klædd í búning sann-
leikans. Þetta eru falskar
frásagnir.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-1
0
-2
0
1
7
0
5
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
F
-2
6
4
4
1
D
E
F
-2
5
0
8
1
D
E
F
-2
3
C
C
1
D
E
F
-2
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K