Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2017, Blaðsíða 27
Helgarblað 6.–9. janúar 2017 Kynningarblað - Heilsa 3 Fólk á öllum aldri blómstrar í ballett Ballettskóli Eddu Scheving B allett fyrir allan aldur frá tveggja ára upp í 65 ára, jazz- ballett og pilates og sérstakt prógramm fyrir konur yfir sextugt er meðal þess sem er í boði í Ballettskóla Eddu Scheving. Skólinn var stofnaður árið 1961 og hefur starfað óslitið í 56 ár. Á síðasta ári festi skólinn kaup á nýju og glæsi- legu húsnæði í Skipholti 50c þar sem nú eru tveir salir og hefur skólinn því aukið töluvert starfssvið sitt. Í 20 ár hefur skólinn einnig haft útibú fyrir forskólaaldur í Grafarvogi en það er fyrir aldurinn 2–6 ára. Veturinn skiptist í tvær 12 vikna annir og endar haustönnin með for- eldrasýningu í kennslusal en á vorin er skólinn með glæsilegar nemenda- sýningar í Borgarleikhúsinu þar sem allir nemendur skólans frá þriggja ári aldri koma fram. Skólinn sérhæfir sig í kennslu í klassískum ballett fyrir alla aldurshópa frá tveggja ára aldri en býður nú einnig upp á jazzballett og söngleikjadans fyrir forskóla og jazz/modern fyrir eldri nemendur; sér táskótíma ásamt styrktar- og þoltímum fyrir eldri nemendur; og hörkuþjálfun fyrir ballerínur á aldr- inum 20–30 ára sem geta ekki hætt að dansa. Pilates-tímar eru í boði á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Ballett-fitnesstímar eru í boði fyrir fullorðna og svo eru Silfursvanir sem er alveg nýtt prógramm fyrir 65 ára og eldri. Kennsla hefst 9. janúar og innritun er nú í fullum gangi. Skoða má allar upplýsingar á síðu skólans www.schballett.is Brynja Scheving er skólastjóri Ballettskólans og er einn af fjórum aðalkennurunum en í hverjum hóp með 9 ára og yngri eru aðstoðar- kennarar. Einn af kennurum við skólann er Edda, dóttir Brynju, en hún hefur dansað síðan hún var þriggja ára og hefur verið að aðstoða við skólann frá því hún var 14 ára, en starfar nú við hlið Brynju alla daga rétt eins og Brynja gerði sjálf með móður sinni, Eddu. „Ballettinn er góður grunnur fyrir svo margt og hvort sem börn- in halda áfram að æfa ballett síðar þá er víst að grunnurinn sem þau fá út úr náminu er mjög góður. Í for- skólanum læra börnin grunnstöður og æfingar í klassískum ballett sem hæfa þeirra aldri og þroska en skipt er í hópa eftir aldri. Þau gera æfingar sem liðka og styrkja, læra að standa í röð og fylgja settum reglum. Litlum sporum og æfingum er svo fléttað inn í litla látbragðs- dansa eins og blómið, fiðrildi, mýs og kisur sem dæmi. Þetta er mjög þroskandi og afar skemmtilegt pró- gramm fyrir þennan aldur. Svo eftir því sem þau eldast og þroskast tek- ur meiri alvara við,“ segir Brynja, en fjölbreytni í námsframboði skólans hefur aukist: „Okkur finnst frábært að geta aukið töluvert starfssvið okkar og boðið upp á fjölbreyttara nám. Í fyrra byrjuðum við með tveggja ára hópa sem köllum krúttdans. Einstaklega krefjandi en mjög gam- an að sjá árangurinn og hvað þessi litlu kríli ná að herma eftir okkur og öðlast styrk og öryggi og smátt og smátt geta þau séð af foreldrum sínum og notið sín ein við að dansa. Nú getum við einnig boðið upp á sér jazz/modern-tíma fyrir allan aldur og erum einnig með tíma fyrir aldursflokkinn 20–30 ára. Það eru margir nemendur á þessum aldri sem elska að dansa en hafa ekki fundið sér tíma við hæfi.“ En ballett er ekki síður góð líkamsrækt fyr- ir fullorðna og í Ballettskóla Eddu Scheving dansa margar eldri konur sér til yndis, og jafnvel karlar: „Ballett- fitness er frábært prógramm fyrir full- orðna sem við höfum boð- ið upp á í ein átta ár og hefur verið mjög vinsælt. Þessi hópur hefur ver- ið með á jólasýningu eldri nemenda í Tjarnarbíói og uppsker mikið klapp og fögnuð. Eiginlega hafa þau alltaf slegið í gegn með sínum atriðum. Silfursvanir er nýtt hjá okkur núna þar sem við bjóðum upp á enn mýkri og léttari tíma sem einkennast þó mest af tignarlegum hreyfingum og glæsileika. Ég sá oft á netmiðlum að „heldri“ konur óskuðu þess að svona tímar væru í boði hér á landi og við erum tilbúnar með frábært prógramm fyrir aldurinn 65 ára plús. Pilates-tímarnir hafa verið mjög vinsælir hjá okkur í vetur. Þetta er frábært kerfi til að styrkja miðju lík- amans. Tímarnir byggjast á styrktaræfingum, jafnvægis- æfingum og djúpvöðvaþjálfun. Mik- il áhersla er lögð á að bæta og laga líkamsstöðu. Pilates-æfingar halda hryggnum sterkum og sveigjanleg- um en það er einmitt hryggurinn sem heldur líkamanum uppi. Mjög góð þjálfun til að styrkja miðju lík- amans. Við bjóðum upp á morgun-, hádegis- og kvöldtíma.“ n Sem fyrr segir er Ballettskóli Eddu Scheving til húsa að Skipholti 50c. Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu er að finna á heimasíð- unni schballett.is eða síma 861-4120. Silfursvanir Balletttímar fyrir 60 ára og eldri. Kennararnir Mynd AnnA KriStín Scheving
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.