Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 14
Vikublað 17.–19. janúar 201714 Fréttir S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Dularfull mannshvörf á höfuðborgarsvæðinu n Fólkið sem skilaði sér ekki heim n Erfitt að sjá aðstandendur brotna saman n Lögregla Þ að er eins og jörðin hafi gleypt Birnu Brjánsdóttur, tvítuga konu, sem horfin er sporlaust. Síðast sást til hennar á Laugavegi og þegar þetta er skrifað hefur lögregla úr litlu að moða. Þá virðist sem lögreglan hafi ekki mikið að byggja á. Manns- hvörf á Íslandi hafa löngum vakið mikla athygli en í þessari umfjöllun eru rifjuð upp minnisstæð mál þar sem fólk hefur horfið á höfuðborgar- svæðinu eða nágrenni þess. Í öll skiptin var fjöldi manns sem tók þátt í að leita að fólkinu við erfið- ar aðstæður. Þá eru björgunarsveit- armenn undir miklu álagi þar sem hver klukkutími skiptir máli. Seint á sunnudagskvöldi óskaði lögregla eftir aðstoð leitarhunda björgunar- sveita, of seint hafa sumir sagt, og um hádegisbil í gær örkuðu björgunar- sveitarmenn um miðbæinn í leit að vísbendingum. Síðar um daginn fór annar hópur til leitar í nágrenni við Flatahraun. Það er lögregla sem yf- irleitt óskar eftir aðstoð björgunar- sveita. Sigurður Ólafur Sigurðsson, margreyndur leitarmaður, útskýrði ferlið í samtali við DV fyrir tveimur árum: „Fyrst byrjar yfirleitt rann- sóknarvinna hjá lögreglunni, það er ein leiðin ef lítið er vitað eða ekki vit- að hvenær viðkomandi sást síðast. Ef það er einhver sem tilkynnir og það er klárlega einhver sem saknar við- komandi, þá fer af stað samstarf lög- reglu og svæðisstjórnar björgunar- sveita. Það getur verið að það byrji líka á rannsóknarvinnu, til að kom- ast að því hvar viðkomandi sást síð- ast og þar fram eftir götunum. Hvert tilfelli er ólíkt, stundum eru leit- arhópar kallaðir til strax ef síðasti viðverustaður er þekktur.“ „Það er ekkert eitt sem sameinar alla þá sem við leitum að, nema þá að þeirra er saknað. Reglan er sú að leitað er á meðan að við teljum að hægt sé að finna viðkomandi. Alltaf eru til einhver tilfelli sem við get- um ekki útskýrt og finnum ekkert. Fræðin taka á þessu með þeim hætti að það er hægt að reikna út og skil- greina hversu vel hefur verið leit- að. Hægt er að ná líkindunum upp í ákveðnar tölur og þegar þeim hefur verið náð þá hættum við. Svo er ann- að sem við göngum út frá líka, yfir- leitt er leit ekki hætt formlega fyrr en mörgum árum seinna en hlé gert á leitinni. Við höfum lent í því að vís- bendingar komi fram mörgum árum seinna og þá er gerð frekari leit.“ Óvissa fyrir aðstandendur Oft taka aðstandendur þátt í leit og þótt samskipti séu í flestum tilvikum góð getur eitt og annað komið upp á. Óvissan tekur mest á fólk. Björg- unarsveitarmenn sjá aðstandend- ur breytast, brotna niður og tekur það einna mest á björgunarsveitar- menn. Þorsteinn Þorkelsson, björg- unarsveitarmaður og sagnfræðing- ur, segir: „Almennt séð þá skilur fólk það mjög vel þegar við hættum leit, við skýrum okkar ástæður fyrir því mjög vel. Fólk vill í einhverjum tilvikum leita sjálft, en yfirleitt skilur fólk þetta þó því finnist það ömurlegt. Auð- vitað eru einhver dæmi um að fólk verði okkur reitt, en hitt er almenna reglan og annað er algjör undan- tekning.“ Mannshvörf á höfuðborgar- svæðinu Vísir greinir frá því fyrir sléttu ári síð- an að frá árinu 1970 séu 43 manns- hvörf óupplýst. Mál Birnu sker sig frá öllum þessum málum einfald- lega vegna þess að hún er kona. Í öll- um 43 málunum sem Vísir fjallar um eru það karlmenn sem er saknað. DV hefur fjallað ítarlega í gegnum tíðina um fólk sem hefur horfið sporlaust. Umfjallanir hér fyrir neðan byggja á eldri umfjöllunum blaðsins. Magnús Teitsson, 30. nóvember 1968 Hinn sextugi Magnús Teitsson, öðru nafni Mlax Keil, bjó með fjöl- skyldu sinni við Þinghólsbrautina í Kópavogi. Hann hafði skroppið í heimsókn í hús í Fossvoginum sem stendur beint á móti Fossvogskirkju- garðinum. Heimildir eru til fyrir því að Magnús lagði af stað heim frá þessu húsi um klukkan 7 en klukk- an 8 var hann enn ekki kominn heim. Þegar heimilisfólk hans fór að grennslast fyrir um hann kom í ljós að bíll hans var á sínum venjulega stað við heimili hans. Fljótlega var haft samband við lögreglu sem hóf leit strax um kvöldið. Næstu daga var gerð mjög víðtæk leit að manninum og tóku m.a. skólabörn úr Kópavogi þátt í leitinni. Engar haldbærar vís- bendingar hafa komið fram um það hvað varð um Magnús þetta kvöld. Viktor B. Hansen, 17. október 1970 Viktor B. Hansen og vinnufélagi hans úr Slippnum í Reykjavík, Egill Hall- grímsson, fóru á rjúpnaveiðar. Þeir komu í sama bílnum í Arnarsetur í Bláfjöllum um kl. 13 en héldu þaðan hvor í sína áttina. Viktor hélt í aust- urátt og Egill í vesturátt og ætluðu þeir að hittast aftur hjá bílnum kl. 16. Egill kom að bílnum á tilsettum tíma en ekkert bólaði á Viktori og Egill beið eftir honum til kl. 21. Egill leit- aði aðstoðar og gekk niður á Sand- skeið sem er um tveggja tíma gang- ur en skildi bílinn eftir. Gekk á með éljum og þokuslæðingi annað slagið. Upp úr miðnætti hóf björgunarsveit leit sem stóð yfir í nokkra daga. Vikt- or var vanur fjallaferðum og átti ekki við nein heilsuvandamál að stríða. Hann fannst aldrei. Sverrir Kristinsson, 26. mars 1972 Sverrir var 22 ára og bjó á Nýja- Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Guðmundur Finnur BjörnssonMatthías ÞórarinssonHörður Björnsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.