Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Qupperneq 18
Vikublað 17.–19. janúar 2017 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 18 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Fyrirgefðu! Ekki er tilefni til að athuga hvort Bjarni Benediktsson hafi brotið gegn siðareglum ráðherra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslendinga í aflandsfélögum fyrr en hann gerði. Þetta er niðurstaða Tryggva Gunnarssonar, umboðs- manns Alþingis. Röksemdin sem umboðsmaður færir fyrir niður- stöðunni er sú að Bjarni hafi í raun og veru viðurkennt nú þegar að það hafi verið mistök að birta ekki skýrsluna fyrr en gert var. Velta má því fyrir sér hvort með þessu sé Tryggvi að setja fordæmi fyrir því að stjórnmálamenn fari í auknum mæli að biðjast af- sökunar á því þegar þeir klúðra hlutunum. Í það minnsta er ágætt að vera laus við athugun umboðs- manns með þeim einfalda hætti að segja bara „sorrí“. Felix Bergsson hlýtur nú að vera að íhuga endur- komu með þáttinn Fyrirgefðu, í sjónvarpi, nú er lag. Ef hún hefði verið í Sopranos þá hefðu hinir gæjarnir litið út eins og statistar Einar Kárason um frammistöðu Steinunnar Ólínu í Föngum. Það velur sér enginn að vera sjúklingur Ragnheiður Guðmundsdóttir – DV Þjálfarateymið þarf að taka liðið og slá hnefanum í borðið Guðjón Guðmundsson, Gaupi, um gengi Íslands á HM – X977 Ö rar tækniframfarir hafa leitt til þess að við þurfum ekki lengur einungis að hitta fólk augliti til auglitis til að eiga við það samskipti, við getum allt eins nýtt til þess samfélagsmiðla. Ekki ættum við að bölva tækninni sem virðist hafa auðveldað líf okkar svo mjög, en þarna er samt hætta sem við verðum að gera okkur grein fyrir. Það er hægt að ánetjast svo mörgu og einnig samfélagsmiðlum. Það getur varla verið eðlilegt að eyða mörgum klukkustundum á dag á Facebook og halda því áfram í sama mæli dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár. Samt er það einmitt þetta sem margir gera og sjá fátt athugavert við það, þótt einhverjir heyrist and- varpa og viðurkenna að þarna séu þeir að eyða of miklum tíma. Gríðar- mikill tími á samfélags- miðlum hlýtur að bjóða upp á að eitthvað láti undan, sérstaklega ef viðkomandi er barn eða unglingur. Síðustu ár höfum við fengið æ fleiri fréttir af rannsóknum sem sýna að íslensk ungmenni verja ískyggilega mikl- um tíma á samfélagsmiðlum með þeim afleiðingum að kvíði þeirra fer vaxandi, og þá sérstaklega stúlkna. Öll speglum við okkur í umhverfinu (samt í mismiklum mæli) og það er þáttur í mannlegu eðli að vilja fá hrós. Facebook-færslur hrópa á athygli og biðja um hrós og ef viðbrögðin eru lítil sem engin og fá „like“ berast þá er hætt við vonbrigðum, jafnvel svo miklum að sjálfsmynd viðkomandi láti á sjá. Það er ekki hollt að eiga of mikið undir hrósi og athygli annarra og getur ekki annað en aukið á kvíða og skapað öryggisleysi. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófess- or við Háskólann í Reykjavík og Col- umbia-háskólann í New York, er í forsvari fyrir rannsóknarmiðstöðina Rannsóknir og greining, sem í langan tíma hefur rannsakað líðan barna og unglinga. Í nýlegu viðtali sagði Inga Dóra að of lítill svefn, samfélagsmiðl- ar, kvíði og líkamsímynd séu allt þætt- ir sem tengist. Það segir sig líka sjálft að ungmenni sem vakir fram á nótt til að vera á samfélagsmiðlum og fær fyrir vikið ekki sinn níu tíma svefn er ekki upp á sitt allra besta daginn eftir. Samkvæmt mælingum Rann- sókna og greiningar eru 40 prósent þeirra stúlkna sem sofa minna en sex klukkustundir á sólarhring taugaó- styrkar. Ekki kemur það beinlínis á óvart en það er sláandi að margar unglingsstúlkur skuli ekki fá fullan nætursvefn. Margoft hefur verið bent á og ít- rekað að foreldrar eigi að fylgjast með netnotkun barna sinna og fræða þau um ýmsa vafasama þætti í netheim- um. Það er vissulega rétt að þetta ættu þeir að gera. Þær spurningar vakna hins vegar hversu vel allir for- eldrar eru í stakk búnir til að sinna þessu hlutverki sínu þegar þeir eru sjálfir tímunum saman á netinu að safna „likum“. n Kvíðin æska á Facebook „Það er ekki hollt að eiga of mikið undir hrósi og athygli annarra og getur ekki annað en aukið á kvíða og skapað öryggis- leysi. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Myndin Stakkaskipti Miðborgin er óðum að taka stakkaskiptum enda rísa byggingar á ógnarhraða á reitum við Lækjargötu og Kalkofnsveg og ekki síður þar sem ný hótel rísa hvert á fætur öðru við Hverfisgötu. mynd SiGTRyGGuR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.