Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Blaðsíða 22
Helgarblað 27.–30. janúar 20172 Snyrtistofur - Kynningarblað Heilsa og útlit notar nýjustu tækni og vísindi Hlúa bæði að líkama og sál S nyrti- og heilsustofan Heilsa og útlit sérhæfir sig í því að hlúa bæði að líkama og sál með notkun nýjustu og fram- þróuðustu tækja og efna. Sandra Lárusdóttir, sem er menntað- ur einkaþjálfari, stofnaði fyrirtækið sumarið 2014 og hefur það á skömm- um tíma náð að festa sig í sessi með sérhæfðum meðferðum sem bæta vellíðan, útlit og heilsu. „Okkar markmið er að kúnnanum líði sem best með sjálfan sig og að hann njóti sín í rólegu og afslappandi umhverfi hjá okkur. Það er svo bónus ef útlitið lagast líka,“ segir Sandra. Sandra er umboðsaðili fyrir heilsuvörufram- leiðandann Weyergans, en þeir fram- leiða hágæðatæki fyrir hvers kyns sogæðameðferðir sem Sandra notar í meðferðum sínum hjá Heilsu og út- liti. „Við sérhæfum okkur í sogæða- meðferðum og ber öllum hér skylda til þess að læra á allar meðferðirn- ar. En einnig bjóðum við upp á aðrar meðferðir eins og húðmeðferðir, vax og fitufrystingu,” segir Sandra. IONO-JET súefnisvél fyrir húðina Fyrsta vélin sem hægt er að nota í allt sem viðkemur húðinni! Dag- lega verður húðin fyrir margs konar skaðlegum áhrifum í nú- tímasamfélagi, þar má telja upp mataræði, eðlilegt öldrunarferli og ýmsa umhverfisþætti sem setja öll mark sitt á húð okkar. IONO-Jet er einstök og víðfeðm súrefnismeðferð fyrir allsherjar húðfegrun og spornar gegn öldr- unarmerkingu húðar. Þá er hægt að stilla vélina á fimm meðferðar- leiðir, það er; Djúphreinsun (e. Peeling) með áhrifaríkum ensímum Húðlýsing á litablettum eða öldrunarflekkjum Húðnæring fyrir húðina Húðlyft- ing fyrir slappa húð Húðafeitrun (e. Detox) sem gefur húðinni ljóma Hægt er að vinna vel á hvers kyns bóluvandamálum og fíla- penslum. IONO-JET tækið er framleitt í Þýskalandi og er í stöðugri notkun hjá Weyergans-stofnuninni. Þessi nútímatækni er einstök og nýtist sér- lega vel í meðferðum gegn hinum fjölmörgu húðvandamálum. Tækn- in nýtist bæði í stök skipti til húð- fegrunar og fyrir heilar kúrmeðferð- ir á erfiðari húðvandamál, þar sem teknir eru fleiri tímar með tækinu með reglulegu millibili. Eins má nýta meðferðirnar með tilliti til árstíða- bundinna breytinga á húðinni. „Þær meðferðir sem IONO-JET býður upp á eru allar algjörlega sársauka- og skaðlausar og því er ekki nokkur hætta á að viðskiptavinur gangi út af stofunni okkar með rauða og sára húð. Þetta er eina vélin sem nota má til að skrúbba augnlokin, sem seg- ir töluvert um hvað þetta er mikið undratæki,“ segir Sandra. Notast er við rafgas og mismunandi náttúruleg efni svo sem hreina plöntusterkju, ákveðin serum, amínósýrur, sérvalin vítamín og stofnfrumur sem öll eiga það sameiginlegt að hafa mjög afger- andi virkni í sjálfri húðmeðferðinni. Vacu Sport byggir á geimvísindum Hentar meðal annars íþróttamönn- um og fólki með skert blóðflæði! Þekkt er að eftir hvers kyns slys, meiðsli og aðgerðir, virki heilun- ar- og bataferli líkamans hægar en vanalega. Afleiðingar eftir slík áföll eru meðal annars aukin vökvasöfn- un og bjúgmyndun. Æðakerfi lík- amans er þá oft undirlagt í marga daga og algengt er að blóðrásar- og sogæðatruflanir geti jafnvel varað árum saman. En með tilkomu Vacu Sport vélarinnar frá Weyergans High Care er hægt að flýta bataferli líkam- ans svo um munar. Tæknin var upp- haflega þróuð til að koma í veg fyrir blóðrásarvandamál hjá geimförum sem vinna í þyngdarlausu umhverfi. Með Vacu Sport er hægt að minnka bjúgmyndun hratt og endanlega. Þar fer fram taktfast þrýstings- og loft- tæmisnudd á æðakerfinu sem stó- reykur blóðflæði í æðum og vöðv- um þannig að svæði, sem hafa orðið fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr. Þannig fær líkaminn meira súrefni til sín og næringin skilar sér betur út í frumurnar. Meðferðin kemur þér mun fyrr í betra form og bætir heils- una með því að hraða endurhæfingu og endurnýjun þeirra svæða sem þurfa á því að halda. Meðferðin hefur einnig sannað sig gegn langvarandi verkjum eins og gigt og liðavanda- málum. „Fólk finnur töluverðan mun á sér í öllum líkamanum eftir að hafa fengið meðferð hjá okkur. Það má einnig minnast á að fjölmargir íþróttamenn nota Vacu Sport reglu- lega til að hjálpa líkamanum að jafna sig eftir íþróttameiðsl. Fótboltamað- urinn Ronaldo á til dæmis tvö svona tæki heima hjá sér og notar á hverj- um degi. Einnig notar portúgalska landsliðið í fótbolta Vacu Sport tækið á leikmenn sína með góðum árangri. Úti í heimi meðhöndla sjúkraþjálf- arar, læknar og aðrir meðferðar- aðilar alls konar fólk, allt frá ungum íþróttamönnum til aldraðra einstak- linga með skert blóflæði, með Vacu Sport, enda eru áhrifin ótrúleg. Vacu Sport virkar svo einnig í baráttunni gegn appelsínuhúð,“ segir Sandra. Súrefnishjálmur „Ein af vinsælustu meðferðunum okkar er húðmeðhöndlun í súrefn- ishjálminum,“ segir Sandra. Um er að ræða einstaka meðferð sem er 100% náttúruleg og mjög fljótvirk. Í með- ferðinni er unnið með oxun þar sem neikvæðar súrefnisjónir draga til sín súrefni í andrúmsloftinu. Orkan sem myndast við samrunann er leidd inn í höfuðhlífina sem virkar eins og ox- unarhjúpur utan um andlitið. Þannig vinnur orkan sér leið inn undir húð- ina og örvar sellulósaskiptin sem eru nauðsynleg til að húðin geti gegnt sínu hlutverki sjálf, eins og upp- byggingu, hreinsun, viðhaldi, stinn- ingu og styrkingu. Á meðan með- ferðaraðilinn andar orkunni að sér í gegnum munn og nef, nýtist súrefn- isflæðið einnig öllum líffærum og ekki síst heilanum. Þar sem engin aukaefni eru nýtt í meðferðinni er hún fullkomlega náttúruleg. Með- ferðin er viðurkennd af þekktum húð- meðferðarstofnunum í Þýskalandi og hentar viðskiptavinum vel sem gera miklar kröfur til öldrunarmeðferða og vilja sjá skjótan árangur. Í mörgum tilfellum er árangurinn merkjanlegur strax eftir fyrsta tímann. „Helga Möller, söngkona og flug- freyja, er í meðferðum hjá okkur. Helga vinnur á mjög óreglulegum tímum, bæði er hún að syngja seint á kvöldin og svo er hún í fluginu. Þessi vinnutími getur tekið á og þá sérstaklega Ameríkuflugið, þá finn- ur hún fyrir bjúgi og fótapirringi. Þá finnst henni sérstaklega gott að koma í Heilsu og útlit í Vacu Sport þrýstingstækið og henni líður líka alltaf vel eftir veru í súrefnishjálmin- um,“ segir Sandra. Fleiri meðferðaraðilar úti um allt land „Þess má geta að á Siglufirði er að finna heilsustofuna Weyergans Studio, þar sem boðið er upp á með- ferðir með tækjunum sem við flytj- um inn. Einnig notar Heilsu & Fegr- unarstofa Huldu í Borgartúni tæki frá okkur. Svo veit ég til þess að það á að opna aðra stofu á Akureyri,“ seg- ir Sandra. Heilsa og útlit er staðsett að Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi. Af- greiðslutími: Alla virka daga 09.00– 18.00. Hægt er að hafa samband með því að hringja í síma: 562-6969 eða senda tölvupóst á sandra@heilsaog- utlit.is Nánari upplýsingar má nálg- ast á vefsíðu Heilsu og útlits, heilsa- ogutlit.wixsite.com/heilsaogutlit og á Facebook-síðunni. n Eftir fimm skipti í súrefnishjálminum. Súrefnishjálmur 100% náttúruleg meðferð. IONO-JET myNd SIgTryggur arI Vacu Sport myNd SIgTryggur arI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.