Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Page 10
Vikublað 14.–16. febrúar 201710 Fréttir
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450
Björn ákærður fyrir morðið á
jóni Gunnari: réttarhöld hafin
n Ákærði neitar sök og fullyrðir að kunningi sinn, Ronnie Hällstrom, hafi banað Jóni
H
inn 9. febrúar síðast-
liðinn var fyrirtaka í máli
sænska ríkisins gegn þar-
lendum manni sem grun-
aður er um að hafa banað
Jóni Gunnari Kristjánssyni þann
18. júlí síðastliðinn. Árásin átti
sér stað á tjaldsvæði í grennd við
Akalla-neðanjarðarlestarstöðina í
samnefndu úthverfi Stokkhólms.
Í lok júlí var greint frá því að einn
einstaklingur hafi verið handtek-
inn en lögreglan taldi líkur á að tve-
ir hafi verið að verki. Nú liggur fyrir
að sá grunaði heitir Björn Kollberg
en hann á einnig yfir höfði sér dóm
fyrir tvær aðrar hættulegar líkams-
árásir nokkru fyrr, þjófnað á bif-
reið og fíkniefnalagabrot. Málsvörn
Kollberg er sú að benda á félaga
sinn, Ronnie Hällstrom, sem bú-
settur var á umræddu tjaldsvæði.
Heldur meintur morðingi því fram
að Hällstrom hafi veitt Íslendingn-
um hina banvænu áverka og að það
séu samantekin ráð íbúa tjaldsvæð-
isins að skella skuldinni á hann.
Hällstrom segir í yfirheyrslum að
áskanirnar séu „hlægilegar“.
Miklir áverkar á líkinu
Jón Gunnar Kristjánsson fæddist á
Íslandi árið 1981 og var því 35 ára
gamall þegar hann lést. Hann flutti
til Svíþjóðar tveggja ára að aldri og
bjó þar síðan ásamt fjölskyldu sinni.
Um tíma lagði hann stund á læknis-
fræði en virtist síðan hafa fallið af
beinu brautinni í lífinu og undir það
síðasta var hann farinn að umgang-
ast einstaklinga sem tengjast undir-
heimum þar ytra. Jón lætur eftir sig
tvö ung börn.
Árásin, sem kostaði Jón líf-
ið, átti sér stað í hádeginu, mánu-
daginn 18. júlí í blíðskaparveðri.
Í ákærunni gegn Birni Kollberg
kemur fram að Jón hafi verið ítrek-
að stunginn í brjótkassann, bakið
og handleggi auk þess sem hann
hafi verið sleginn með bandýkylfu
og járnstöng í höfuðið. Þá er það
niðurstaða lögreglurannsóknar að
Jón hafi legið varnarlaus í jörðinni
þegar mesta ofbeldið gekk yfir.
Áverkarnir á líkama Jóns voru veru-
legir og verða þeir ekki útlistaðir
frekar af tillitssemi við aðstandend-
ur Jóns. Opinber dánarorsök hans
er vegna alvarlegs áverka á heila og
blóðs í lungum.
Leysti frá skjóðunni eftir þrjá
mánuði
Í opinberum gögnum málsins kem-
ur fram að Björn Kollberg hafi verið
handtekinn 8. ágúst 2016 og tveimur
dögum síðar var hann úrskurðaður í
gæsluvarðhald þar sem hann hefur
setið síðan. Þremur mánuðum síð-
ar ákvað hann að leysa frá skjóðunni
þegar allt virtist stefna í hann yrði
dæmdur fyrir morðið. DV hefur und-
ir höndum afrit af yfirheyrslunni á
meintum morðingja en slík gögn eru
aðgengileg fjölmiðlum þar í landi.
Yfirheyrslan gefur innsýn í síðustu
stundir Jóns Gunnars en þess ber þó
að geta að lögreglan hefur talið vitn-
isburðinn það ótrúverðugan að Björn
var síðar ákærður fyrir morðið, þrátt
fyrir að hann fullyrði að annar hafi
verið að verki.
Björn heldur því fram að þennan
örlagaríka morgun, 18. júlí, hafi hann
verið staddur hjá vinkonu sinni og hr-
ingt í barnsmóður sína, Ninu, sem býr
í tjaldvagni á áðurnefndu tjaldsvæði í
Akalla. Þau hafi rætt um börnin sín
sem eru í fóstri á vegum hins opin-
bera og meðferðina sem Nina hafi
verið á leið í. Björn segist hafa tjáð
Ninu að hann myndi koma í heim-
sókn til hennar og lána henni peninga
og sígarettur. Þá hafi Nina kvartað
undan því að Jón haldi til á tjaldsvæð-
inu og hafi verið að valda sér ónæði.
Vinur Björns hafi síðan skutlað hon-
um til barnsmóður sinnar.
Átök brjótast út
Þegar á tjaldvæðið í Akalla var kom-
ið hafi Björn hitt vin sinn, áður-
nefndan Ronnie Hällstrom, sem
hafi tjáð honum að Nina væri í sím-
anum en að Jón Gunnar svæfi í for-
tjaldi vagnsins. Björn hafi þá þegar
í stað gengið að tjaldinu og lamið í
það til þess að vekja Jón. Hann hafi
síðan gengið að vinum sínum, með-
al annars Hällstrom, og fengið sér
sígarettu. Hann kveðst hafa verið
í afar góðu skapi en allt hafi breyst
skömmu síðar þegar Jón hafi kom-
ið gangandi út úr tjaldinu með kú-
bein í annarri hendi og skiptilykil í
hinni. Björn segist hafa vitað þá að
uppgjör væri yfirvofandi. Hann hafi
gengið til móts við Jón með stálrör af
ryksugu í hendinni sem Hällstrom
rétti honum. Tvímenningarnir hafi
þegar í stað farið að rífast hástöfum
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Jón Gunnar Kristjánsson Varð fyrir hrottalegri árás þann 18. júlí síðastliðinn sem endaði með
því að hann lét lífið. Réttarhöld yfir meintum morðingja standa nú yfir í Svíþjóð. Mynd Af fAceBooK
Ronnie Hällstrom Myndin er tekin af
sænsku lögreglunni þegar Hällstrom var
handtekinn þann 18. júlí. Hann var með stöðu
grunaðs manns þar til í októberlok 2016.