Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Síða 11
Vikublað 14.–16. febrúar 2017
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu
þjónustu
okkar á
Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
36 á annarri
32 á hinni
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu gómsætar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka
Frosið hrefnukjöt
komið í verslanirBjörn ákærður fyrir morðið á
jóni Gunnari: réttarhöld hafin
n Ákærði neitar sök og fullyrðir að kunningi sinn, Ronnie Hällstrom, hafi banað Jóni
Fréttir 11
Meintur morðingi
Myndin er úr öryggiskerfi Akalla-
neðanjarðarlestastöðvarinnar
og er af Birni Kollberg
(til hægri), skömmu eftir
að hann á að hafa banað
Jóni Gunnari Kristjánssyni.
Öryggisverðir eru að hafa
afskipti af honum á stöðinni
eftir að hann reyndi að lauma
sér inn án þess að borga
fargjald.
og ógnað hvor öðrum með verkfær-
unum.
Þekktust frá fyrri tíð
Á þessu stigi yfirheyrslunnar viður-
kennir Björn að leiðir hans og Jóns
hafi áður legið saman. Tvisvar áður
hafi skorist í odda með þeim, fyrst
nokkru áður þegar þeir slógust
og skölluðu hvorn annan og síðar
þegar Björn stal bíl af Jóni. Jón hafi
verið afar ósáttur við það, eðli máls-
ins samkvæmt, og endaði með að
lemja Björn fyrir verknaðinn. Þá hafi
Jón verið verulega ósáttur við vin
Björns sem leigði af honum íbúð og
stóð ekki við sitt. Þessir óuppgerðu
atburðir hafi leitt til þess að upp úr
sauð á tjaldsvæðinu í Akalla.
Fram kemur í yfirheyrslunni að
Jón hafi lagt frá sér kúbeinið á ein-
hverjum tímapunkti en þegar átök
brutust út milli mannanna hafi
Björn tekið það upp og slegið Jón
í handleggina. Jón reyndi að verja
sig og meðal annars rifið í hálsfesti
Björns með þeim afleiðingum að tví-
menningarnir féllu á jörðina. Slags-
málin bárust síðan að nærliggjandi
trjám í útjaðri tjaldsvæðisins en þá
fullyrðir Björn að Ronnie Hällstrom
hafi komið aðvífandi og stungið Jón
í brjóstholið. Björn hafi þá öskrað
að honum hvað í ósköpunum Häll-
strom væri að gera. Í kjölfarið hafi
hann ákveðið að hypja sig af vett-
vangi og tekið neðanjarðarlestina
niður í miðbæ Stokkhólms. Meira
viti hann ekki um afdrif Jóns né viti
hann ástæðu þess að Hällstrom hafi
stungið Jón.
Björn segir að það hafi ekki kom-
ið sér á óvart að hann væri bend-
laður við morðið en hann hefði
talið að rannsókn myndi leiða sak-
leysi sitt í ljós. Eftir þrjá mánuði frá
handtökunni hafi lögmaður Björns
tjáð honum að allt stefndi í að hann
yrði dæmdur fyrir morðið og því
hafi hann loks ákveðið að leysa frá
skjóðunni og segja sína hlið.
„Hann reyndi að reisa sig upp“
DV hefur einnig undir höndum
lögregluskýrslur vegna yfirheyrslu
Ronnie Hällstrom og annarra vitna
í málinu. Þegar skýringar Björns
voru bornar undir Hällstrom þá vís-
aði hann þeim algjörlega á bug og
sagði þær „hlægilegar“. Að hans mati
væri Björn að reyna að koma sjálfum
sér úr klípunni með því að benda á
aðra. Hann segist hafa komið að Jóni
í blóði sínu ásamt Ninu, barnsmóð-
ur hins meinta morðingja. Hann hafi
kallað á hana að hringja í sjúkrabíl
sem hún gerði og skömmu síðar
stökk hún upp í bíl og keyrði til móts
við sjúkraflutningamennina til þess
að tryggja að þeir kæmust sem fyrst
á vettvang. Á meðan hafi Hällstrom
beðið með Jóni sem enn var með
lífsmarki.
„Hann reyndi að reisa sig upp
en ég sagði honum að hann yrði
að liggja kyrr. Hann væri læknir og
hann ætti að vita það,“ segir Häll-
strom í skýrslunni.
Fékk hníf frá Hällstrom
Fram kemur í gögnunum sem DV
hefur undir höndum að Hällstrom
hafi verið handtekinn nokkrum
vikum eftir árásina og fengið rétt-
arstöðu grunaðs manns. Þar réði
miklu vitnisburður manns að nafni
Axel Overödder sem steig fram og
sagði að Hällstrom hefði laumað
að sér hníf sem mögulega tengist
morðinu á Jóni. DV hefur ekki upp-
lýsingar um hver svör Hällstrom
voru en rannsókn lögreglu á aðild
hans lauk þann 25.október 2016.
Þá hefur DV undir höndum vitn-
isburð eins íbúa í nærliggjandi
tjaldvagni, sem fullyrðir að hann
hafi séð Björn slá Jón af alefli með
járnröri og hafi Íslendingurinn fall-
ið fram á hnén við höggið. Meira sá
maðurinn ekki enda forðaði hann
sér af vettvangi.
Eins og áður segir var Björn Koll-
berg ákærður fyrir morðið á Jóni
Gunnari en Ronnie Hällstrom er
með stöðu vitnis. Málið var tekið fyrir
þann 9. febrúar en verður framhaldið
miðvikudaginn 15. febrúar. n
Meint morðvopn Hnífurinn sem Axel Overödder kom til lögreglu og fullyrti að Ronnie
Hällstrom hefði falið sér. „Hann reyndi að
reisa sig upp en
ég sagði honum að hann
yrði að liggja kyrr. Hann
væri læknir og hann ætti
að vita það.