Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Síða 12
Vikublað 14.–16. febrúar 201712 Fréttir
H
afnar voru framkvæmdir við
uppbyggingu um 2.050 íbúða
í Reykjavík á árabilinu 2014
til 2016 og eru þær íbúðir á
ýmsum byggingarstigum. Sumar eru
fullgerðar, aðrar fokheldar og aðrar í
smíðum. Af þeim eru um 800 leigu-
og/eða búseturéttaríbúðir og um
1.250 eigna- eða söluíbúðir. Auk þess
voru gefin út um 350 byggingarleyfi á
tímabilinu til uppbyggingar á eigna-
eða söluíbúðum. Gert er ráð fyrir að
uppbygging á um 1.300 íbúðum hefj-
ist á þessu ári og á árunum 2018 til
2019 hefjist uppbygging á um 2.600
íbúðum í Reykjavík.
Tölurnar hér að framan eru
fengnar frá skrifstofu borgarstjóra. Í
samstarfssamningi meirihluta borg-
arstjórnar sem undirritaður var
árið 2014 kom fram að borgarstjórn
stefndi að því að fjölga leigu- og bú-
seturéttaríbúðum um 2.500 til 3.000.
Uppbyggingin átti að fara fram í sam-
starfi við langtímaleigufélög og eink-
um þau sem rekin væru án hagn-
aðarsjónarmiða. Þá var samþykkt í
nóvember 2014 að heimila Félags-
bústöðum að fjölga félagslegum
leiguíbúðum borgarinnar um 500
á árunum 2015 til 2019, í samræmi
við samstarfssamninginn. Auk þess
gerir húsnæðisáætlun Reykjavíkur-
borgar ráð fyrir uppbyggingu íbúða
í samstarfi við Búseta, Félagsstofn-
un stúdenta, Byggingafélag náms-
manna, Félag eldri borgara og fleiri
til þess að auka framboð íbúða fyrir
alla. Við það bætast svo íbúðir sem
rísa á hefðbundnum íbúðamarkaði.
Á tímabilinu 2014 til 2019 má gera
ráð fyrir að byggðar verði upp um
5.700 íbúðir í borginni, gangi áætlan-
ir eftir. Þar af verði leigu- og búsetu-
réttaríbúðir um 2.650 til 2.800. Sam-
kvæmt upplýsingum frá skrifstofu
borgarstjóra eru nú staðfest áform
um uppbyggingu 3.733 leigu- og bú-
seturéttaríbúða í samvinnu við lykil-
samstarfsaðila sem nefndir eru hér
að framan. Þá verður fjölgun félags-
legra leiguíbúða Félagsbústaða að
hluta til knúin áfram með kaupum á
íbúðum. Þar fyrir utan eru leiguíbúð-
ir byggðar upp af félögum sem rekin
eru í hagnaðarskyni.
Eins og sakir standa eru 5.000
íbúðir í samþykktu deiliskipulagi
hjá borginni og eru um 1.500 þeirra
komnar á byggingarstig. Reiknað er
með að stærstur hluti þeirra 3.500
sem útaf standa komist á byggingar-
stig á þessu ári og á árunum 2018 til
2019. Þá munu ríflega 1.000 íbúðir
til viðbótar bætast við á samþykktu
deiliskipulagi á næstunni. n
5.700 íbúðir í upp-
byggingu til 2019
n Framkvæmdir við ríflega 2.000 íbúðir hafnar frá upphafi kjörtímabils
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Langt komið Uppbygging
á Lýsisreitnum í Vesturbæ
Reykjavíkur er langt komin
þó að mörg handtök séu eftir.
Fólk er þegar flutt inn í íbúðir
á reitnum. Mynd SigtRygguR ARi
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Garn í sjöl