Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Qupperneq 24
Vikublað 14.–16. febrúar 201720 Skrýtið
Ó
skarsverðlaunin verða af
hent við hátíðlega athöfn í
89. skipti þann 26. febrúar
næstkomandi. Þó að leikar
ar fái tilnefningu til Óskars
verðlauna er það engin ávísun á
velgengni til langframa. Fjölmargir
leikarar hafa ekki fundið fjöl sína
eftir að hafa unnið þessi eftirsóttustu
verðlaun sem veitt eru á sviði kvik
mynda á ári hverju. Hér má sjá sjö
dæmi um slíka leikara. n
einar@dv.is
EyðimErkurgangan
Eftir ÓskarsvErðlaun
1 Cuba Gooding Jr.Vann: Óskarinn fyrir besta leik í
aukahlutverki í myndinni Jerry Maguire
Hvenær: 1996
Þessi 49 ára gamli leikari var á há
tindi ferilsins undir lok liðinnar ald
ar þegar hann lék í myndum á borð
við Jerry Maguire og As Good as It
Gets. Hann tók hins vegar slæmar
ákvarðanir í kjölfarið og lék í misvel
heppnuðum myndum á borð við
Rat Race, Snow Dogs og Boat Trips,
auk fjölda annarra Bhasarmynda.
Nýlega lék hann þó O.J. Simpson í
þáttunum American Crime Story og
virðist hann að einhverju leyti hafa
fundið fjöl sína að nýju.
2 Adrian BrodyVann: Óskarinn fyrir besta leik í
aðalhlutverki fyrir myndina The Pianist
Hvenær: Árið 2003
Bíómyndin The Pianist kom Adrian
Brody á kortið fyrir alvöru, enda
sýndi hann magnaðan leik í frábærri
mynd. Myndin er að margra mati í
hópi bestu bíómynda sögunnar, en
hún hlaut þó aðeins þrenn Óskars
verðlaun. Brody hefur ekki verið
mjög áberandi á undanförnum árum
en fékk þó góða dóma fyrir leik sinn í
þáttunum Houdini árið 2014.
3 Jennifer ConnellyVann: Óskarinn fyrir besta leik í
aukahlutverki fyrir myndina A Beautiful
Mind Hvenær: 2002
Áður en Jennifer Connelly hreppti
Óskarinn hafði hún átt viðburða
ríkan feril og leikið í myndum á borð
við Requiem for a Dream. Frá árinu
2002 þegar hún sýndi stórleik ásamt
Russell Crowe í myndinni A Beauti
ful Mind hefur Connelly ekki verið
sérstaklega áberandi, ef undan eru
skilin nokkur hlutverk í myndum á
borð við Reservation Road (2007),
Blood Diamond (2006) og Noah
(2014).
4 Brenda FrickerVann: Óskarinn fyrir besta leik í
aukahlutverki fyrir myndina My Left Foot
Hvenær: 1990
Aðeins þremur árum eftir að Brenda
vann Óskarinn lék hún dúfna
konuna alræmdu í Home Alone
2. Ferill hennar lá niður á við eftir
frammistöðu hennar í My Left Foot.
Hún er þó hvergi nærri hætt að leika
en hefur að mestu komið fram í
sjónvarpsmyndum.
5 Roberto BeningniVann: Óskarinn fyrir
besta leik í aðalhlutverki fyrir
myndina Life Is Beautiful
Hvenær: 1999
Ítalski leikarinn
sló eftirminnilega
í gegn í myndinni
La Vita é Bella
skömmu fyrir alda
mót. Þessi viðkunn
anlegi náungi heillaði
flesta upp úr skónum eins og Ítala
er siður. Síðan þá hefur lítið spurst
til Beningni og hefur hann raunar
leikið í afar fáum myndum frá árinu
1999. Síðast lék hann í myndinni To
Rome with Love árið 2012.
6 Mercedes RuehlVann: Óskarinn fyrir besta leik í
aukahlutverki fyrir myndina The Fisher King
Hvenær: 1992
Mercedes Ruehl er nafn
sem hringir eflaust
ekki mörgum bjöll
um hjá kvikmynda
háhugamönnum.
Hún hefur þó leikið
í fjölmörgum þátt
um og kvikmynd
um en fáar hafa þó
slegið í gegn. Eftir að
hún vann Óskarinn lék
hún í heldur misheppnuðum bíó
myndum eins og Lost in Yonkers og
The Last Action Hero með Arnold
Schwarzenegger. Sem fyrr segir
hefur hún leikið í ýmsum þáttum
í gegnum tíðina, til dæmis Psych,
Entourace og Law & Order.
7 Michael CiminoVann: Óskarinn fyrir bestu
leikstjórn fyrir myndina The Deer Hunter
Hvenær: 1979
Michael
Cimino
var spáð
bjartri
fram
tíð eftir
að mynd
hans, The
Deer Hunt
er, sló eftir
minnilega í gegn.
Myndin skartaði Robert De Niro í
aðalhlutverki og var valin besta bíó
myndin á Óskarsverðlaunahátíð
inni árið 1979 auk þess sem Cimino
fékk verðlaun sem besti leikstjór
inn. Í kjölfarið fylgdi hvert floppið
á eftir öðru. Tveimur árum seinna
kom út myndin Heaven‘s Gate sem
er líklega einhver lengsta kvikmynd
sögunnar, rúmir fimm klukkutímar.
Myndin var dýr í framleiðslu og setti
kvikmyndafyrirtækið United Artists
nánast á hausinn. Myndin var illa
sótt og hlaut auk þess heldur lélega
dóma. Cimino náði sér aldrei á strik
eftir þetta, en hann lést í fyrrasumar,
77 ára að aldri.
n Það getur verið kalt á toppnum n Manstu eftir Michael Cimino?