Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2017, Qupperneq 27
Vikublað 14.–16. febrúar 2017 Sport 23
króna. Sú upphæð gæti þó hækkað
umtalsvert að ýmsum skilyrðum upp-
fylltum. Gabriel Jesus kvaddi svo Pal-
meiras í desember en skömmu áður
hafði liðið hampað meistaratitlinum í
brasilísku deildinni.
Umhyggju- og afskiptasöm móðir
Mail Online fjallaði ítarlega um
Gabriel Jesus á dögunum og í þeirri
umfjöllun kom margt athyglisvert
fram um þennan 19 ára Brasilíu-
mann. Talið er að Gabriel Jesus sé
með ríflega 100 þúsund pund á viku
hjá City, 14 milljónir króna, en móð-
ir hans, Vera Lucia de Jesus, er sögð
geyma nær allt sem Jesus fær í laun.
Þetta gerir hún að sögn til að halda
syni sínum á jörðinni.
Vera flutti til Englands til að vera
syni sínum innan handar en með í
för voru einnig tveir bræður Gabriels
Jesus og tveir vinir. Vera er einstæð
móðir og hefur verið með fingurna í
nær öllu sem sonur hennar gerir frá
því hann var barn. Hún sér til þess
að hann borði hollan og góðan mat,
hvenær hann fer út með vinum sín-
um og jafnvel hvaða stúlkum hann
fer á stefnumót með. „Kærustur
þurfa að fara eftir mínum reglum
og þær mega aðeins gista einstöku
sinnum. Ég mun ekki taka því þegj-
andi ef sonur minn vanvirðir dætur
annarra. Enginn af mínum sonum
mun gera dóttur einhvers ólétta. Ég
krefst virðingar af þeim því þannig
ól ég þá upp,“ sagði hún í viðtali fyr-
ir skemmstu. Bætti hún við að Jesus
þyrfti að lúta höfði þegar hún talaði
til hans. „Ég er góðhjörtuð en ég vil
að fyrir mér sé borin virðing. Gabriel
hefur alltaf verið hrekkjóttur en hann
hefur aldrei sýnt mér vanvirðingu.“
Fær vasapening
Gabriel Jesus hefur vafalítið notið
góðs af umhyggju móður sinnar þótt
hún hafi stundum verið erfið viður-
eignar. Eitt sinn sagði hann að móðir
hans væri erfiðari viðureignar en all-
ir þeir varnarmenn sem hann hefur
þurft að glíma við.
Caique, eldri bróðir Gabriels
Jesus, sagði í viðtali við Yahoo Brasil
í desember síðastliðnum að Vera,
móðir þeirra, héldi utan um allar
launagreiðslur Gabriels Jesus. Lætur
hún honum í té vasapeninga svo
hann geti átt fyrir helstu nauðsynj-
um. Í viðtalinu sagði Caique að
Gabriel Jesus hefði aldrei verið mikið
fyrir djammið, hann hefði ávallt haft
meira gaman af því að vera með fjöl-
skyldu sinni en úti á lífinu.
Vera og og Jesus eru góðir vinir og
virðing er orð sem á vel við um sam-
bandið milli þeirra. Hún þreytist seint
á að reyna að gefa syni sínum góð ráð
og skiptir þá engu hvort þau eru tengd
fótbolta eða einhverju öðru í lífi hans.
Vera sagði fyrir skemmstu að hún
talaði við hann fyrir hvern einasta leik
og gæfi honum ráð. „Ef hann skorar er
það frábært. En ef hann gerir það ekki
segi ég honum að hann sé jafn vel-
kominn heim og áður.“
Eftir 3-0 sigur Brasilíumanna á
Ekvador í undankeppni HM síðast-
liðið haust, þar sem Gabriel Jesus
skoraði tvö markanna, fékk hann
smáskilaboð frá móður sinni eftir
leikinn. „Gabriel, lærðu, passaðu
rangstæðuna. Þú varst tvisvar rang-
stæður í leiknum.“ Gabriel Jesus
segir að móðir hans hafi ekki einu
sinni óskað honum til hamingju með
mörkin tvö heldur gagnrýnt hann,
en þrátt fyrir þetta elski hann móður
sína og finnst gott að hafa hana við
bak sér. „Mamma er alltaf að nöldra
í mér en það er það sem ég vil. Það
hefur gert mig að þeim manni sem
ég er í dag. Þó að ég sé bara 19 ára hef
ég þurft að sýna ábyrgð lengi,“ sagði
Gabriel Jesus í viðtali.
Ólst upp án föðurímyndar
Gabriel Jesus ólst upp án föður-
ímyndar og viðurkenndi hann
fyrir skemmstu að stundum hafi
hann litið vini sína sem áttu föður
öfundaraugum. Það hafi þó ekki skipt
hann miklu máli enda hafi móðir hans
sýnt honum mikla umhyggju, eins og
systkini hans. „Hún hefur alltaf stutt
mig í öllu og þegar hún þurfti lagði
hún hendur á mig. Fyrir mér var hún
ávallt móðir mín og faðir.“
Gabriel Jesus er yngstur fjögurra
systkina; Caique er 24 ára, Felipe,
26 ára og Emanuele er elst, 32 ára.
Emanuele missti eiginmann sinn í
mótorhjólaslysi fyrir nokkrum árum
og flutti hún aftur heim ásamt börnum
sínum tveimur; þau voru því sex í lítilli
íbúð í Jardim Peri. Lucia kveðst hafa
vaknað klukkan sex alla morgna til að
koma Gabriel á fótboltaæfingu áður
en hún hélt sjálf til vinnu við ræstingar
í húsum hinna efnameiri í Sao Paulo.
Vera segir að þótt hún hafi hvatt
son sinn til dáða í fótboltanum hafi
hún einnig lagt ríka áherslu á að
hann sinnti náminu af kostgæfni. „Ég
sagði honum alltaf að fólk eins og við
þyrftum að leggja mikið á okkur til að
verða eitthvað í lífinu.“
Aldrei langt undan
Vera hætti að vinna eftir að Gabriel
Jesus varð atvinnumaður þó að
það hafi ekki verið ástæðan. Hún
neyddist til að hætta vegna slits í öðr-
um handleggnum sem gerði að verk-
um að hún átti erfitt með að beita sér
í vinnunni. Hún segir að strangt upp-
eldi hafi undirbúið hann betur fyrir
lífið í atvinnumennskunni. Hann sé
agaðri og skipulagðari fyrir vikið.
„Allt það sem við leggjum á okk-
ur skilar sér að lokum. Gabriel Jesus
hefur aldrei verið upptekinn af ver-
aldlegum hlutum, dýrum fötum eða
dýrri merkjavöru. Hann sá hvað ég
þurfti að gera til að eiga fyrir hlutun-
um. Hann kemur með góðan grunn
út í lífið og það mun hjálpa honum
á þeirri vegferð sem fram undan er.“
Sjálfur er Gabriel Jesus jarðbund-
inn eins og kom fram í viðtali við
hann í Brasilíu fyrir skemmstu. „Ég
kem úr fátæku samfélagi en ég reyni
að koma í heimsókn þegar ég get.
Ég held að það muni gera mér auð-
veldara að eiga við frægðina. Ég er
ósköp venjulegur náungi sem hef-
ur gaman af einföldum hlutum. En
ef ég geng of langt veit ég að móðir
mín er aldrei langt undan til að grípa
inn í.“ n
„Ég er
góðhjörtuð
en ég vil að fyrir
mér sé borin
virðing. Gabriel
hefur alltaf verið
hrekkjóttur
en hann hefur
aldrei sýnt mér
vanvirðingu.
Þrír góðir Philippe Coutinho, Neymar og Gabriel Jesus eru liðsfélagar í brasilíska landsliðinu.
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar
sem lífga upp á allar uppákomur
Aðeins
á viku
á starfsmann
Ávextir í áskrift
kosta um 550 kr.
á mann á viku og
fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.