Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 11
Vikublað 21.–23. febrúar 2017 Fréttir 11 RíkisstjóRn í kRöppum dansi n Hveitibrauðsdagarnir hófust aldrei n Vandræði frá fyrsta degi n stjórnin þegar fallin í einu máli n Ekki einhugur milli stjórnarliða í stórum málum V erkfalli sjómanna lauk um liðna helgi þegar að samn- ingar í deilu þeirra við útvegs- menn náðust eftir tíu vikna verkfall. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra, lýsti því ítrekað yfir á síð- ustu metrum kjaradeilunnar að ekki kæmi til greina að stjórnvöld kæmu að lausn hennar með sértækum að- gerðum, svo sem með því að afnema skatt af fæðispeningum. Eitt skyldi yfir alla ganga. Páll gagnrýnir ríkisstjórnina Þessa afstöðu gagnrýndi Páll Magnússon, formaður atvinnu- veganefndar, harðlega og sagði alvarlegt að það skyldi stranda á stjórnvöldum að leysa málið, „eða þessum tveimur ráðherrum sem með þetta höndla, sjávarútvegs- ráðherra og fjármálaráðherra. Stjórnvöld eru ábyrg fyrir því gagn- vart þjóðinni að þessi auðlind sé nýtt. Það má ekki standa upp á þessi sömu stjórnvöld, að það séu þau sem komi í veg fyrir að flotinn sigli úr höfn og til veiða.“ Vildi sértækar aðgerðir Þá sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, að aðkoma ríkis- ins væri algjörlega óhjákvæmileg nokkrum dögum áður en samd- ist og vísaði til kröfu sjómanna og útgerðarmanna um að fæðispen- ingar yrðu undanþegnir skatti. „Ég er alveg tilbúinn að taka þann slag og tel að við verðum bara að sýna röggsemi og klára þetta mál í dag. Það þarf svo vitanlega að fara í gegnum þingið með breyting- um á skattalögum og þar fram eftir götunum.“ Þorgerður sögð hafa hótað sjómönnum Sem kunnugt er leystist kjaradeilan án þess að til þessarar sértæku að- komu ríkisvaldsins kæmi. Þorgerður Katrín lýsti því hins vegar yfir að hún hefði verið með bráðabirgðalög til- búin ef ekki hefði komið til þess að deilan leystist. Spurð hvort hún hefði hótað því að setja lög á verkfallið neitaði hún því en sagði að deiluaðil- ar hefðu verið meðvitaðir um að lög- in væru tilbúin. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, kom hins vegar fram í gær og sakaði Þorgerði um að hafa stillt samn- inganefndum sjómanna upp við vegg og hótað þeim lagasetningu. Sjómönnum hafi verið stillt upp við vegg. Samningurinn var sam- þykktur með naumum meirihluta síðastliðið sunnudagskvöld, 52,4 prósent samþykktu samninginn en 46,9 prósent höfnuðu honum. Það styrkir ekki ríkisstjórnina að óein- ing hafi verið innan hennar um aðkomu ríkisvaldsins að málinu auk þess sem talsmenn sjómanna gagnrýna síðan þátt Þorgerðar Katrínar. í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar er lögð áhersla á að ráðast gegn launamun kynj- anna. „Í því skyni að sporna við launamisrétti af völdum kynferð- is verði áskilið að fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri taki upp ár- lega jafnlaunavottun.“ Í þingmála- skrá ríkisstjórnarinnar er frum- varp um jafnlaunavottun boðað en félags- og jafnréttismálaráð- herra, Þorsteinn Víglundsson, ætlar að leggja frumvarpið fram. Jafnlaunavottun var eitt af stærstu kosningamálum Viðreisnar. Fyrst Óli Björn Nú bregður hins vegar svo við að þingmenn ríkisstjórnarinnar, eða öllu heldur þingmenn Sjálf- stæðisflokksins, hafa lýst því yfir að þeir hyggist ekki styðja frum- varpið. Fyrstur reið á vaðið Óli Björn Kárason sem sagði í viðtali við Viðskiptablaðið 9. febrúar að hann myndi ekki styðja frumvarp- ið. Ríkisstjórn sem boði aukin af- skipti af atvinnulífinu sé ekki sér- lega hægri sinnuð, sagði Óli Björn og meinti ekki sem hrós. Svo Brynjar Nokkrum dögum síðar lýsti Brynj- ar Níelsson því einnig yfir, í við- tali við mbl.is að hann myndi ekki heldur styðja frumvarp um jafn- launavottun. „Ég held að þetta sé bara vanhugsað og menn séu að gefa sér rangar forsendur,“ sagði Brynjar og bætti við: „Þetta er bara einhver vitleysa. Ég vona að menn endurskoði þetta.“ Brynjar hafði raunar áður lýst því yfir að hann væri óánægður með stjórnarsátt- málann og sérstaklega jafnlauna- vottunina. Í viðtali við DV kallaði hann frumvarpið óþarfamál, „til dæmis þessi helvítis jafnlauna- vottun. Það er algjörlega fráleitt.“ Ráðherra lýsir efasemdum Auk þeirra Óla Bjarnar og Brynjars hefur Sigríður Á. Andersen einnig tjáð sig um kynbundinn launamun og jafnlaunavottun. Í grein í árs- hátíðarriti Orator, félags laganema við Háskóla Íslands, sagði Sigríður að ekkert væri hægt að fullyrða um kynbundið misrétti á launamark- aði. Sigríður vitnaði í skýrslu vel- ferðarráðuneytisins frá árinu 2015 þar sem sagt er að ekki sé hægt að fullyrða að óútskýrður launamun- ur sem mælist sé eingöngu vegna kynferðis. Yrði þeim upplýsing- um gerð betri skil í opinberri um- ræðu léki ekki vafi á að þrýstingur á opin berar aðgerðir í jafnréttismál- um „til dæmis kynjakvóta og jafn- launavottanir, myndi minnka.“ Ekki í höndum ríkisstjórnarinnar Ríkisstjórnin hefur minnst mögu- legan meirihluta, 32 þingmenn af 63. Í praxís má því segja að stjórnin sé fallin, alla vega í þessu máli. Nán- ast fordæmalaust er að svo margir þingmenn ríkisstjórnarflokka lýsi sig andsnúna ríkisstjórnar- frumvarpi að þingstyrkur sé ekki fyrir málinu. Ríkisstjórnin mun því þurfa að treysta á velvild stjórnar- andstöðunnar til að koma málinu í gegn. Samkvæmt heimildum DV munu þingmenn stjórnarandstöð- unnar vera nokkuð klofnir í málinu. Annars vegar hlakkar í þeim vegna vandræða ríkisstjórnarinnar en hins vegar eru þeir margir með hálfgert óbragð í munninum vegna þess. Ástæðan er sú að almennt styðja þeir jafnlaunavottun og sjá ekki fyrir sér að geta verið á móti málinu en hafa á sama tíma engan áhuga á að skera ríkisstjórnina úr snörunni. stjórnin í praxís fallin Stjórnarþingmenn andvígir ríkisstjórnarfrumvarpi p áll Magnússon, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi, studdi ekki ráðherra- skipan Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins, og lá ekki þeirri af- stöðu sinni. Í stöðuuppfærslu á Face- book 11. janúar greindi Páll frá þessu og sagði ráðherraskipanina ganga gegn lýðræðislegu umboði og að hún fæli í sér lítilsvirðingu gagnvart Suður- kjördæmi. „Á þingflokksfundi í gær- kvöldi sagðist ég því miður ekki geta stutt þá ráðherraskipan sem formað- ur flokksins gerði tillögu um. Fyrir því væru tvær ástæður: Í fyrsta lagi gengi þessi skipan í veigamiklum atriðum gegn því lýðræðislega umboði sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu áunnið sér í prófkjörum og síðan kosn- ingum í haust. Í öðru lagi fæli hún í sér lítilsvirðingu gagnvart Suðurkjördæmi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann sinn stærsta sigur í kosningunum.“ Ráðherravalið mistök Páll lét ekki þar við sitja heldur mætti hann í Vikulokin á Rás 1 og ítrekaði þessa afstöðu. „Ég lít á þetta sem mis- tök,“ sagði Páll. „Formaður flokksins er skynsamur maður og leiðréttir þau ábyggilega við fyrsta tækifæri.“ Ekki er hægt að halda því fram að um þægilegt veganesti hafi verið að ræða fyrir Bjarna og ríkisstjórnarsam- starfið, að fá sendingu sem þessa á fyrsta degi. Vitað er að fleiri voru ekki sáttir við ráðherravalið, þar á með- al Brynjar Níelsson, en fáheyrt er að óánægja sé orðuð með svo afgerandi hætti sem Páll gerði í þessu tilfelli. andsnúinn ráðherraskipan „Lítilsvirðing gagnvart Suðurkjördæmi“ tala gEgn RáðHERRa Þingmenn Sjálfstæðisflokksins tala þvert á yfirlýsingar Þorgerðar Katrínar FÁKASEL - FYRIR ALLA Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050 matur, drykkur og skemmtun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.