Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Qupperneq 19
Kynningarblað Mér líður bara hvergi betur! S noker & Pool, Lágmúla 5, Reykjavík, er rótgróið fyrir- tæki og hefur verið starfandi síðan 1998. Fyrir nokkrum misserum var frískað upp á útlit staðarins sem jók enn á vinsæld- ir hans og gerði viðskiptavinahópinn breiðari. Núna sækja til dæmis fleiri konur staðinn en gerðu hér áður fyrir og er hann auk þess afar vinsæll vett- vangur fyrir hópskemmtanir enda býður hann upp á frábæra aðstöðu fyrir hópa. Til staðar eru átján pool- borð og fjögur snókerborð sem bæði einstaklingar og hópar nýta sér: „Starfsfólk mitt og ég reynum að hafa staðinn þannig að fólk geti komið og slappað af eftir erfiða daga eða bara til að skemmta sér og öðr- um. Við fáum mikið af fyrirtækja- hópum og margir af þeim koma ár- lega til okkar enda bjóðum við upp á mjög góða en ódýra skemmtun fyrir hópa,“ segir Brynjar Valdimarsson, eigandi Snoker & Pool. Þeir sem hafa áhuga á slíkri skemmtun geta sent e-mail á pool@pool.is og fengið til- boð fyrir hópinn. Jafnframt eru nám- skeið í boði bæði í pool og snóker þar sem Brynjar kennir undirstöðuatriði bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir. Hægt er að panta kennslu í síma 822-1471 hjá Brynjari eða senda tölvupóst á fyrrnefnt tölvupóstfang. Allir í hópnum eru síðan leystir út með klúbbkorti að gjöf. Geta tekið við mörgum í mat Brynjar leggur áherslu á að hópar séu sérlega velkomnir á Snoker & Pool og staðurinn henti virkilega vel fyrir hópa til að lyfta sér upp. Snoker & Pool getur tekið á móti stærri hóp- um en margir gera sér grein fyrir og sem dæmi má nefna að fyrir skömmu kom 80 manna hópur sem þar sem allir fengu sér hamborgara og spiluðu poolmót. Borðapantanir eru í síma 581-1147. Hópar eru jafn velkomnir, hvort sem fólk vill bara fá sér að borða, bara spila eða hvort tveggja. „Við erum með Klúbbakort þar sem félagsgjaldið er 500 krónur fyrir árið. Kortið veitir bæði afslátt af borðaleigu og veitingum,” segir Brynjar. „Við reynum að vera eins ódýr og hægt er og því er verðið hjá okkur mjög hagstætt, á bæði drykkjum og mat,“ segir Brynjar. Eins og áður segir er hægt að kaupa veitingar á staðnum; drykki, smárétti, hamborgara og pítsur. „Við erum með hamborgara og seljum mikið af þeim enda eru þeir ansi góðir, einnig pítsur frá Italiano sem er í Kópavogi. Þegar við erum með hópa þá getum við pantað frá þeim fyrir hópinn.“ Íþróttir í beinni „Búið er að koma upp mjög góðri aðstöðu til að horfa á boltann og aðra viðburði. Uppi eru átta flat- skjáir og sex skjávarpar sem sjá til þess að allir gestir geti fylgst með. Öll sjónvörpin eru í HD og hægt er að horfa á í 3D,“ segir Brynjar. „Við reynum að sýna frá öllum helstu íþróttaviðburðum þótt fótboltinn sé auðvitað vinsælastur, það myndað- ist til dæmis gríðarlega góð stemn- ing í kring um HM í fótbolta í fyrra- sumar.“ Hægt er að nálgast frekar upp- lýsingar um Snoker & Pool á heima- síðu fyrirtækisins www.pool.is eða með því að senda tölvupóst á pool@ pool.is. Opið er sunnudaga til fimmtu- daga frá kl. 11.00–01.00, föstudaga og laugardaga frá kl. 11.00–03.00 n Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 21. febrúar 2017 Afþreying Snoker & Pool

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.