Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2017, Blaðsíða 38
Vikublað 21.–23. febrúar 201734 Fólk Aðstoða íslenska hönnuði á Reykjavík Fashion Festival R eykjavík Fashion Festival verður haldin í sjöunda sinn dagana 23.–25. mars 2017. Verður hátíðin haldin samhliða Hönnunarmars og fara viðburðir fram í Silfurbergi í Hörpu – tónlistar- og ráðstefnu- húsi. Hátíðin hefur verið haldin í marsmánuði frá árinu 2010 og hefur stækkað ár frá ári og þykir stökkpall- ur fyrir hæfileikaríka fatahönnuði. Hátt í 180 manns taka þátt í undir- búningi RFF og stendur undirbún- ingur yfir í sex mánuði. Hönnuðir sem munu vera með tískusýningu á Reykjavík Fashion Festival í ár eru Another Creation, Anita Hirlekar, Cintamani, Magnea, Myrka og Inklaw. „Þetta er flottur hópur sýnenda sem gefa hver á sinn hátt vel til kynna hversu fjölbreyttur okkar tískuheimur er. Anita Hirlekar, sem hefur hlotið mikla athygli erlendis, er að sýna sína fyrstu línu á Íslandi, Harpa Einars mun frumsýna sitt nýja brand MYRKA og Cintamani kynnir nýja stefnu sem er „streetwe- ar“-miðað. Inklaw mun stíga fyrsta skrefið á pöllum með mjög spennandi og nýstárlegt konsept, og eru Ýr og Magnea að sýna áfram- haldandi þróun á línum sínum en við munum eftir stórkostlegum sýn- ingum þeirra frá síðustu hátíð. Sum- ir hafa áður sýnt á hátíðinni en aðrir koma nýir inn og mikil eftirvænting er ríkjandi varðandi hvað hönnuðir munu sýna á pöllum RFF,“ segir Kolfinna Von Arnardóttir, fram- kvæmdastjóri Reykjavík Fashion Festival. Kynna hönnuði með myndböndum Í ár var ákveðið að auka kynningu á hverjum hönnuði fyrir sig til að kynna betur hverjir það eru sem koma að íslensku tískusenunni. Einnig vildi RFF tengja hönnuði betur út fyrir landsteina. Því flutti Reykjavík Fashion Festival, í sam- vinnu við Icelandair, inn tökufólk sem starfar einnig fyrir útgáfufélag- ið Conde Nast. Fyrir þá sem ekki vita er Conde Nast leiðandi útgáfufélag í tísku og lúxustímaritum og þótti tvíeykið Juliane Ullmann og Marco Lewes hæfast til að vera hönnuðum innan handar við framleiðslu kynn- ingarmyndbanda fyrir tískuhönnuði. „Þau eru einnig að vinna sér inn gagnagrunn sem nýtist þeim í fram- tíðarverkefnum svo við komumst að samkomulagi um að þetta yrði öllum til góða. Við erum virkilega ánægð með þetta nýja skref. Nú vinnum við að því að búa til flott kynningar- arkív um hönnuði sem koma að RFF og ætlum að búa til gagnagrunn um íslenska tískuhönnuði,“ segir Kolfinna. Ný heimasíða Um helgina var ný heimasíða RFF opnuð og þar munu myndböndin fljótlega birtast. Tvíeykið sem kom til landsins hefur áður búið til mynd- skeið fyrir blöð í eigu útgáfunnar, meðal annars Vogue, Architectural Digest og GQ magazine en einnig kynningarmyndbönd fyrir þekkta hönnuði á borð við Mikael Kors. Tök- ur fóru fram um helgina á vinnustof- um hönnuða og úti í náttúrunni. „Tískan er mikið kynnt á netinu. Það er því mikilvægt að hafa sterkt teymi með sér. Hugsunin á bak við þetta var að búa til góða kynningu á hönnuðum áður en sýningar fara fram og leyfa fólki að kynnast hverju og einu brandi. Þetta sama teymi kemur svo aftur hingað til Íslands og verður viðstatt hátíðina og tekur hana upp,“ segir Kolfinna og bætir við: „Við lögðum upp úr því að hönnuðir fengju að kynnast tvíeykinu persónulega. Samstarf sem þetta er dýrmætt og tengingar og vin- skapur þróast á milli hönnuða og er- lendra fagaðila og aldrei er hægt að vita hvert það leiðir.“ n Í fjörunni hjá Hrafni Gunnlaugssyni Frá vinstri: Hönnuðirnir Guðjón Geir Geirsson, Cristopher Cannon, Anton Birkir Sigfússon og Róbert Ómar Elmarsson, en þarna var verið að taka upp kynningarmyndband fyrir vinnustofu Inklaw. Framleiða kynningar- myndbönd fyrir RFF Tvíeykið Juliane Ullmann og Marco Lewes var hönnuðum til halds og trausts. Þú færð fallega borð- búnaðinn og fullt af fíneríi frá greengate hjá okkur Austurvegi 21, Selfoss / Sími 482 3211 facebook.com/sjafnarblom Höfðabakka 3, Reykjavík / Sími 587 2222 facebook.com/litlagardbudin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.