Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2017, Blaðsíða 21
Vikublað 25.–27. apríl 2017 KYNNINGARBLAÐ Heitir pottar og gufuböð 3
Heitir pottar í sérflokki
og kröftugt vatnsnudd
Á. Óskarsson ehf.
Á. Óskarsson ehf. hefur sérstöðu meðal þeirra sem selja heita potta
hér á landi þar sem fyrirtækið
þjónar sundlaugum landsins með
dælur og ýmsan búnað. fyrirtækið
er einnig hið eina á Íslandi sem
sérhæfir sig í byggingu sundlauga
og uppsetningu hreinsikerfa. Um
allt land er að finna sundlaugar,
vatnsrennibrautir og annan sund
laugatengdan búnað og leiktæki
frá Á. Óskarssyni og nýlega afhenti
fyrirtækið færeyingum sína fyrstu
50 metra sundlaug. Það er áhuga
vert fyrir þá sem leggja mikið upp
úr góðu vatnsnuddi að vatnsdælur
sem knýja nudd í heitum pottum
frá Á. Óskarssyni eru sömu gerðar
og vatnsdælur sem knýja nuddið
á opinberum sundstöðum víða um
landið. kaupendur heitra potta
frá Á. Óskarssyni sem vilja nudd
geta því gengið að kraftmiklu og
framúrskarandi vatnsnuddi vísu í
sínum pottum.
Pottar í hæsta gæðaflokki
Á. Óskarsson hefur hátt í 40 ára
reynslu í sölu á heitum pottum og
er fyrirtækið því að öllum líkindum
með þeim reynslumestu á þessu
sviði hér á landi. fyrirtækið býður
upp á potta í hæsta gæðaflokki,
með eða án nudds, fyrir heimili
og sumarbústaði. einnig býður Á.
Óskarsson upp á potta í nokkrum
stærðum og gerðum fyrir almenn
ingslaugar, líkamsræktarstöðvar,
hótel og ferðaþjónustuaðila. fyrir
tækið selur enn fremur lagnaefni,
stúta, niðurföll, ristar og annað
sem þarf fyrir hitaveituskeljar og
steypta potta.
krafla er ein vinsælasta
pottaskelin sem Á. Óskarsson
býður upp á. hún er rúmgóð og
glæsileg í alla staði og fáanleg í
bláum eða grænum yrjóttum lit.
hönnun pottsins er einstaklega vel
heppnuð og eru sætin afliggjandi
og vel löguð þannig að þægilegt er
að sitja í þeim og láta líða úr sér.
Þessi pottur hentar vel fyrir heim
ilið, sumarbústaðinn og ferðaþjón
ustuaðila.
annar stórglæsilegur pottur er
askja sem er hringlaga með yfir
fallsrennu. hann rúmar allt að sex
fullorðna og, eins og aðra potta,
er hægt að fá hann með kröftugu
vatnsnuddi líkt og sundlaugar
gestir á Íslandi eiga að venjast.
enn fremur er hægt að fá pottinn
með loftnuddi og hann er fáan
legur með handriðum úr ryðfríu
stáli. askja hentar vel fyrir hótel,
ferðaþjónustuaðila, líkamsræktar
stöðvar og sundstaði.
Pottaskeljarnar frá Á. Óskars
syni eru sjálfberandi og sérstak
lega þykkar og sterkbyggðar.
Þær eru framleiddar úr trefja og
akrýlplasti en það efni veitir
pottum besta gæðastimpilinn því
það hvorki upplitast né rispast
auðveldlega og það verður hvorki
lint né stamt við hitabreytingar. að
auki hrindir það frá sér óhrein
indum og auðveldar því þrif í alla
staði.
hægt er að lesa meira um heita
potta frá Á. Óskarssyni á heimasíð
unni www.oskarsson.is
Á. Óskarsson ehf. er til húsa að
Þverholti 8 í Mosfellsbæ. Í verslun
inni er að finna mikið úrval af pott
um og fylgihlutum. starfsfólk Á.
Óskarsson býr yfir mikilli þekkingu
á vörunum og er boðið og búið að
veita viðskiptavinum góða ráðgjöf.
opið er virka daga frá kl. 9 til 12 og
13 til 17. sími: 5666600.
Á. Óskarsson á Facebook
Netfang: oskarsson@oskarsson.is
skemmtilegar
vatnsrenni
brautir frá Á.
Óskarssyni við
sundlaugina á
hellu.
Á. Óskarsson afhenti færeyingum sína fyrstu 50 m sundlaug haustið 2015.
Pottaskelin Krafla er glæsileg
og fáanleg í tveimur litum
Á. Óskarsson býður upp á
kraftmikið nudd líkt og býðst í
mörgum almenningslaugum.