Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 12
12 Helgarblað 9. júní 2017fréttir
Steinn Jónsson, sérfræðingur í í lungnasjúkdómum á Landspítalanum, vill fagstjórn yfir spítalanum
S
teinn Jónsson, sérfræðingur
í í lungnasjúkdómum á
Landspítalanum í Fossvogi,
segir framkvæmdastjórn
spítalans of einráða og það
verði heillaskref að skipa fagstjórn
yfir spítalann. Steinn segir að samn
ingur Sjúkratrygginga Íslands við
sérfræðilækna sé mikilvægur til að
tryggja aðgengi fólks að skilvirkustu
þjónustunni og gagnrýnir hann
harðlega hugmyndir Birgis Jakobs
sonar landlæknis um að segja upp
samningnum og færa starfsem
ina inn á Landspítalann. Erfitt er
að festa nákvæma tölu á hvað þjón
usta kostar á einkastofu saman
borið við Landspítalann. Í skýrslu
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
á kostnaðargreiningu á heilbrigðis
þjónustu, sem unnin var fyrir
Læknafélag Íslands árið 2004, kom
í ljós að meðalkostnaður á komu til
sjálfstætt starfandi sérfræðilæknis
kostaði á sínum tíma að meðaltali
rúmar 3.400 krónur á meðan heim
sókn á göngudeild Landspítala gat
kostað allt að 14.000 krónum. Tekið
er þó fram í skýrslunni að erfitt sé
að aðgreina allan kostnað á göngu
deildum vegna ýmissa óvissuþátta á
borð við húsaleigu og hvort sjúkling
ur á göngudeild sé að hitta lækni eða
annan starfsmann.
Misskilningur landlæknis
Steinn starfar að mestu leyti á
Landspítalanum en starfar einn dag
í viku á einkastofu. Undanfarin miss
eri hefur hann gagnrýnt Birgi Jakobs
son landlækni, þá sér í lagi í kjölfar
ummæla landlæknis í fjölmiðlum
um að læknar sem starfi að hluta á
einkastofum stofni öryggi sjúklinga
í hættu. „Það er mikill misskilning
ur hjá landlækni því sérfræðilæknar
á LSH eru ábyrgir fyrir starfseminni
alla daga allan ársins hring meðal
annars með vöktum í öllum sér
greinum. Þá er það rangt hjá land
lækni að sérfræðilæknar sem starfa
á stofum séu einyrkjar, þetta er alls
ekki þannig. Á síðustu tuttugu árum
hefur starfsemi sérfræðilækna breyst
í grundvallaratriðum að því leyti til
að nú eru starfandi öflug fyrirtæki
þar sem læknar í ýmsum sérgrein
um vinna saman. Fyrirbæri sem er
vel þekkt erlendis. Ég tek sem dæmi
Orkuhúsið, þar er starfandi á um
annan tug bæklunarlækna og svæf
ingalækna og röntgenlæknar sem
vinna saman, aðallega við stoðkerfis
vandamál. Hinum megin við götuna
er Læknastöðin í Glæsibæ, þar vinn
ur á fimmta tug sérfræðilækna í
ýmsum greinum skurðlækninga og
lyflækninga með sameiginlega að
stöðu, skurðstofur og rannsóknar
stofur, og geta leitað til kollega sinna
innanhúss út af vandamálum sjúk
linga. Í þessu felst öryggi og augljóst
hagræði fyrir sjúklingana.“
Framkvæmdastjórnin of einráð
Steinn segir að læknar innan
Landspítalans séu langt frá því að
stýra starfseminni líkt og þeir geti
alfarið gert á sinni einkastofu. Þetta
sé ein höfuðástæðan fyrir því að
læknar vilji frekar vinna á stofu og í
hlutastarfi á spítalanum. Þótt Steinn
sjái margt sem þurfi að breyta innan
spítalans þá sé hann langt frá því að
vera alslæmur:
„Mér finnst Landspítalinn standa
sig að mörgu leyti mjög vel þegar
kemur að háþróaðri þjónustu. Þegar
maður lítur á árangur til dæmis í
krabbameinslækningum og hjarta
og æðasjúkdómum ásamt mörgum
öðrum mikilvægum hlutum sem
við berum saman við aðrar þjóðir,
þá er þetta stór hluti af okkar ár
angri í lækningum á Íslandi. Spít
alinn gæti hins vegar staðið sig enn
betur ef honum væri stjórnað með
tilliti til fagsjónarmiða lækna, ég tel
að framkvæmdastjórnin sé of einráð
og það er vandi sem liggur í stjórn
skipulagi spítalans sem var komið á
við sameiningu Borgarspítalans og
Landspítalans um aldamótin.“
Steinn telur það hafa verið feil
spor þegar hætt var að hafa sérs
taka stjórn yfir spítalanum og þess
í stað sé ráðherra beintengdur
við framkvæmdastjórn spítalans í
gengum forstjóra, telur hann það
einstaklega óheppilegt fyrirkomu
lag. „Þetta hefur leitt til þess að
framkvæmdastjórnin er einráð og
einangruð og leitar ekki til fagfólks
ins um lausn mála. Þetta hefur leitt
til deilna milli læknaráðs og fram
kvæmdastjórnar svo ekki sé talað
um áhrif á starfsanda hér inni. Það
er mjög mikilvægt á svona stórri
stofnun að það ríki góður starfs og
liðsandi. Það á að leyfa hugmyndum
fólks að njóta sín og gera það þannig
að allir séu stoltir af því að starfa á
Landspítalanum. Mér finnst stjórn
kerfi spítalans ekki laða fram það
besta, þvert á móti.“
Óábyrgur málflutningur
landlæknis
Fyrir skömmu var greint frá því að
fjárlaganefnd Alþingis hygðist skipa
stjórn yfir Landspítalann og segir
Steinn að það sé skref í rétta átt:
„Þetta er nákvæmlega það sem þarf
að gera. Það þarf fjölskipaða faglega
stjórn yfir spítalanum, sem ræður for
stjóra, hefur eftirlit með hans störf
um og sinnir stefnumótun fyrir spít
alann.“
Gefum okkur að allri einkarekinni
heilbrigðisþjónustu hér á landi yrði
lokað, hver yrðu áhrifin af því?
„Það myndi stórskerða aðgengi
sjúklinga að sérfræðilæknaþjón
ustu. Ég held að þessi málflutningur
landlæknis sé til dæmis algjörlega
óábyrgur. Hann hefur ekki einu sinni
haft fyrir því að kynna sér þessa hluti
og virðist kæra sig kollóttan um af
leiðingarnar af þessu. Ég hef orðið
fyrir mjög miklum vonbrigðum með
hans framgangsmáta í þessu máli. Ég
veit að hann er klár maður og hon
um gengur ekki illt til í sjálfu sér, en
hann hefur bara rangt fyrir sér. Og
það virðist ekki vera hægt að sann
færa hann um að sjá stóru myndina
í þessu máli.“
Alþjóðleg skýrsla engin vitleysa
Steinn segir íslenska heilbrigðis
kerfið sé langt frá því að vera að
hruni komið, þótt alltaf sé þörf á
meiri fjármunum þá felist vandinn í
skipulaginu. Hér á landi er veitt ein
besta heilbrigðisþjónusta á jörðinni,
það sanna nýlegar skýrslur Health
Consumer Powerhouse sem birtar
eru á netinu á tveggja ára fresti. Þá er
nýleg grein í Lancet sem ber saman
árangur í heilbrigðisþjónustu í fjölda
landa einnig gæðastimpill fyrir ís
lenska heilbrigðisþjónustu.
„HCP er alþjóðlegt, sjálfstætt
fyrir tæki sem tekur út heilbrigðiskerfi
Evrópulanda á tveggja ára fresti og
skrifar um það skýrslur. Íslendingar
eru alltaf í topp 10, iðulega í topp 5.
Nú erum við í fimmta sæti og aðeins
Noregur, ríkasta þjóð í heimi, fyrir
ofan okkur af hinum Norðurlöndun
um. Við erum talsvert ofar en Svíar,
sem landlæknir vísar alltaf til. Danir
eru fyrir neðan okkur, líka Finnar.
Við stöndum okkur vel í þessum
samanburði. Samkvæmt greininni í
Lancet vorum við í öðru sæti og þar
með fyrir ofan öll hin Norðurlöndin.
Það má spyrja sig hvað hefur skapað
þennan árangur?“ segir Steinn.
Hann vill meina að samningur
Sjúkratrygginga Íslands við sérfræði
lækna, þar sem almannatryggingar
borga með hverjum sjúklingi, tryggi
að hver sem er hafi aðgengi að sér
fræðilækni. Það sé varla hægt á
Landspítalanum í dag. Steinn segir
sjálfur að hann eigi stundum í vand
ræðum með að ná í lækni í gegnum
skiptiborð Landspítalans. Samn
ingurinn sé það sem tryggi aðgengi
að skilvirkustu heilbrigðisþjónust
unni og það kerfi þurfi að verja.
„Áliti eins læknis sem situr hér á 7.
hæð í Fossvoginum er hægt að grafa
undan, en svona alþjóðlegar skýrslur
geta ekki verið byggðar á einhverri
vitleysu. Það er ábyrgðarhluti að tala
þennan árangur niður. Enginn hér
á landi borgaði fyrir þessa skýrslu
og það er ekki verið að leita eftir
einhverri tiltekinni niðurstöðu, og
hvað skýrir þennan árangur okkar?
Það eru líklega margir samverkandi
þættir, Landspítalinn á sinn þátt og
heilsugæslan líka en einn af þeim
mikilvægustu er þessi einstaki samn
ingur milli sérfræðilækna og Sjúkra
trygginga, sem landlæknir vill loka og
setja starfsemina inn á spítalann. Það
myndi stórauka kostnað, gera að
gengi mun verra og starfsfólkið yrði
óánægðara.“ n
„Áliti eins læknis
sem situr hér á 7.
hæð í Fossvoginum er
hægt að grafa undan,
en svona alþjóðlegar
skýrslur geta ekki verið
byggðar á einhverri vit-
leysu.
Ari Brynjólfsson
ari@pressan.is
Ábyrgðarhluti að
tala árangurinn niður
Steinn Jónsson „Mér
finnst stjórnkerfi spítalans
ekki laða fram það besta,
þvert á móti.“ Mynd Sigtryggur Ari